Í bið
Jæja, þá hef ég innbyrt allt námsefni annarinnar á punktaformi í dag. 25 blaðsíður af þéttskrifuðum glósum, takk fyrir kærlega. Ekkert eftir nema að bíða eftir prófinu á morgun.
Vilji menn fá nasaþef af eftirfarandi atriðum þá er um að gera að ná á mér áður en prófið hefst í fyrramálið:
- Hvaða möguleika hefur Ísland til áhrifa innan EES?
- Hafa hagsmunir íslensks sjávarútvegs mótað stefnu Íslands í Evrópumálum?
- Hver eru áhrif þjóðernishyggju á Evrópustefnu Íslands?
- Hvaða þættir stuðluðu að samrunaþróun Evrópusambandsins?
- Hefur smæð íslenskrar stjórnsýslu haft áhrif á Evrópustefnu Íslands?
- Glatast fullveldið við inngöngu í Evrópusambandið?
- Hvernig hafa tengslin við Bandaríkin haft áhrif á Evrópustefnu Íslands?
- Hvernig má skilgreina alþjóðavæðingu?
- Hvað orsakar alþjóðavæðingu?
- Hversu alþjóðavætt er Ísland?
- Er alþjóðavæðing söguleg þróun?
Eins og ég segi – ef þið viljið ræða þetta við mig þá er um að gera að ná á mér fyrir kl. 8.45 í fyrramálið. Ég get ekki ábyrgst að ég verði viðræðuhæfur um þessi mál síðar… og alveg örugglega ekki um helgina.
Annars finnst mér þetta nám mitt alveg frábært!
Tengdar færslur
4 athugasemdir
-
Hildur Edda ritar:
11. desember 2007 @ 10:08Boring!
-
sölvi ritar:
12. desember 2007 @ 10:22Þarftu ekki að lesa meira en 25 bls. fyrir próf við Háskóla Íslands. Ég er hneykslaður!
-
Aggi ritar:
12. desember 2007 @ 10:49HEE: Þú ert sjálf Boring! (líka með stóru Bjé-i)
ASK: Þetta voru náttúrulega rúmlega fimmhundruð blaðsíður af lesefni. Ég glósaði þær hins vegar og glósaði svo glósurnar og kom þessu á 25 blaðsíður, takk fyrir kærlega.
Lifið annars heil.
-
Hildur Edda ritar:
13. desember 2007 @ 12:33Hey! ég er krútt

Ég er farinn að halda að enginn viti í raun og veru hvað ég er að læra þarna í Lundúnum. Mamma spurði mig allavegana í gær hvað ég “yrði” eftir...
Þá eru síðustu tímar annarinnar framundan á morgun. Annar þeirra verður sérlega áhugaverður – síðasti umræðutíminn í States and Markets. Síðustu tvær vikurnar höfum við verið að ræða um efnahagskreppur...
Ég er að skrifa ritgerð um þessar mundir um ansi hreint skemmtilegt efni – uppsprettu auðæfa í smáríkjum. Fór á ráðstefnu tengda efninu í september upp í háskóla og glósaði...
Ég er að fara í próf á morgun. Hvort það er kæruleysi eða eitthvað annað þá hef ég engar áhyggjur… barasta engar áhyggjur af því. Ekki er nú útaf því...