Mæli hiklaust með lestri þessara Staksteina Ztyrmis… þeir eru hiklaust málefnalegri en frumgerðin.
Dæmi:
Hvers konar þvættingur er þetta? Hvernig getur maðurinn þóst zjá þá vinda sem blása um hans gamla vinnustað? Vindar sjást ekki. Og síst allra frá Beirút. Það veit hver heilvita maður. Sér er nú hver vindgangurinn. Svona málflutningur er ógeðfelldur.
Taglhnýtingar Samfylkingarinnar dirfazt jafnvel að gagnrýna skipun Krístínar Edwald sem formanns barnaverndarnefndar. Og í hinu orðinu krefjast þeir aukins hlutar kvenna í stjórnunarztöðum. Kristín, eins og aðrar konur, hafa áhuga á börnum og því töldu menn sjálfsagt að hún tæki þetta embætti. Ekki þótti þörf á að ræða þetta sérstaklega við hana. En hverjir kalla þetta flaustursleg vinnubrögð? Eru það ekki þeir sömu og gagnrýndu nýlega skipun héraðzdómara á ógeðfelldan hátt og hafa þar með dæmt sig úr leik í umræðunni?
“Ég ætla ekkert að reyna að fegra þetta – en þetta var örugglega flottasta mark sem skorað hefur verið á EM frá upphafi.”
Logi Geirsson um negluna rétt fyrir hálfleik. Maðurinn er er náttúrulega snillingur!
Annars var kalda matið í síðustu færslu freeeekar fáránlegt mat. Ekki var ég betri fyrir Slóvakíuleikinn sem ég hafði djarflega spáð að myndi vinnast með einu marki. Held samt að spádómsgáfan sé að smella núna… Ísland tekur Frakka 25-23 og Slóvakar vinna Svía… Voila, Ísland fer áfram í efsta sæti með 4 stig!
Það er eitthvað svo yndislega undarlegt að upplifa það að bók sem maður keypti sér af einskærum áhuga reynist síðan vera ein af kennslubókunum í náminu manns…
*
Kalt mat: Ísland 33 – Svíþjóð 31.
Af einhverjum ástæðum þá hefur lestur minn á innlendum fréttavefmiðlum breyst mjög mikið undanfarna mánuði. Vísir finnst mér vera orðinn mun betri en hann var áður, auk þess sem Eyjan er mjög fín upphafssíða. Mbl finnst mér ekki orðið bæta neinu sérstöku við og eru heimsóknir mínar þangað orðnar talsvert stopular. Veit ekki hvað það er – kannski er það vöntun á “Óla Tynes fréttum”! Þetta er talsverð breyting frá því sem áður var, þegar ég las nánast engan fréttamiðil nema Mbl.
*
Fyrir alla þá sjálfhverfu einstaklinga sem finnast sín vandamál vera þau stærstu í heiminum (við öll semsagt) er umfjöllunin um daufblindu systurnar í Kastljósi gærdagsins algjört skylduáhorf.
Það verður að segjast eins og er að HandBolti.is, sem er svipuð að sniði og fotbolti.net, er stórfurðuleg síða. Á það sérstaklega við um viðtöl sem síðuhaldarar taka við leikmenn í íslenska boltanum, en þau eru gjarnan æði vafasöm… Þannig er markmaður kvennaliðs Gróttu t.d. spurður (í einu og sama viðtalinu) hver fallegasti handboltamaðurinn sé, hvaða stúlka í Gróttu sé heitust, hvað sé rómó og hvað sé sexý, hvernig hún reyni við hitt kynið, hvort hún sé ástfangin, hver sé fallegasti karlmaðurinn sem hún hafi séð, hvað sé það fyrsta sem henni detti í hug þegar hún heyri “nakinn kvenmaður”, “nakinn karlmaður” og “kynlíf”, að ógleymdri hinni klassísku: “Ef þú þyrftir að velja á milli að horfa á góðan handboltaleik, borða góðan mat, versla eða njóta ásta hvað mundi það verða?” Síðuhaldari kryddar svo viðtölin með undarlegum innskotum frá sjálfum sér. Þegar markvörðurinn svarar í sakleysi sínu að uppáhaldsmatsölustaðirnir sínir séu Serrano og Delí bætir síðuhaldarinn sínu innskoti við: “hún greinilega ódýrt daite” (!)
Vefborðaauglýsingar fyrir síðuna eru ekki minna undarlegar, en í einni slíkri sem ég rakst á rennur mynd af hálfnöktum íþróttakonum yfir skjáinn með orðunum “Við erum smá sexý… :-)”
Er ekki allt í lagi???
Í fyrra tók ég saman lista yfir allar þær bækur sem ég las árið 2006. Taldist mér til að þær hefðu verið 14, sem var klárlega sjálfsmet. Setti ég mér það markmið að lesa fleiri bækur árið 2007, sem gekk ekki alveg eftir. Þær sem vermdu náttborðið voru annars eftirfarandi, í engri sérstakri röð (ég gerist svo djarfur að telja skólabækurnar sem ég las spjaldanna á milli með, enda eðalbókmenntir):
Hagfræði
- Globalization and Its Discontents eftir Joseph E. Stiglitz
- Diversity in Development: Reconsidering the Washington Consensus, ritstýrt af Jan Joost Teunissen og Age Akkerman
- Síðustu forvöð eftir Þorvald Gylfason
- Choice and Consequence eftir Thomas C. Schelling
Stjórnmál
- Bill Clinton: An American Journey eftir Nigel Hamilton
- The Assault on Reason eftir Al Gore
- Tuttugasta öldin og lærdómar hennar eftir Mikhail Gorbatsjov og Daisaku Ikeda
- Ísland og Evrópusambandið: EES, ESB-aðild eða svissnesk lausn? eftir Auðunn Arnórsson ofl.
- Ný staða Íslands í utanríkismálum: Tengsl við önnur Evrópulönd, ritstýrt af Silju Báru Ómarsdóttur
- Við öll eftir Steingrím J. Sigfússon
- …og svo gluggaði ég í My Early Life eftir Winston Churchill, en á eftir að klára hana.
Skáldsögur
- Viltu vinna milljarð? eftir Vikas Swarup
Annað
- Að vera eða sýnast eftir Hörð Bergmann
- Little Green Book eftir Phil Gordon
13 bækur, sem er ágætis árangur (fyrir mig) á annasömu ári. Annars liggja núna 8 bækur óhreyfðar upp í bókaskáp sem bíða eftir að verða lesnar… ég hlýt einfaldlega að ná yfir 15 árið 2008!