Jæja, þá er komið nýtt ár, með nýjum tækifærum og áskorunum.

Heilt yfir var síðasta ár alveg ágætt hjá mér, þó að það hefði vissulega mátt vera betra að mörgu leyti. Það sem ég er þó sennilega sáttastur við er að hafa drifið mig aftur í skóla og að hafa loksins tekið einhverja meiriháttar ákvörðun um hvað ég vilji virkilega gera á næstu misserum og árum. Meira um það síðar.

Ég ferðaðist þrívegis til Bretlands á síðasta ári og hefði glaður viljað hafa farið víðar. Byrjaði í Glasgow fyrir akkúrat ári síðan í frábærum hópi, skellti mér svo með múttu til Manchester í apríl og eyddi frábæru síðdegi á Old Trafford, og fór loksins í vinnu- og skemmtiferð núna í haust til London. Samtals 12 dagar á erlendri grund, sem er afar slappur árangur. Þessu til viðbótar skellti ég mér í ógleymanlega raftingferð í Jökulsá með félögunum í ágúst og svo á slóðir forfeðranna á Austfjörðum með familíunni.

Þrátt fyrir háleit markmið um átak í líkamsræktarmálum varð mér lítið ágengt. Átti þó mína spretti á tennisvellinum, sem ég hyggst gera aftur næsta sumar. Spurning hvort maður finni sér ekki eitthvað praktískara hobbý yfir vetrarmánuðina… hugsanlega skvass. Og jú, svo væri það sennilega þjóðráð að fækka ferðum á KFC.

Pólitíkin tók heilmikinn tíma á árinu enda kosningaár. Ég varð formaður Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík í mars og tók þátt í frábærri kosningabaráttu sem skilaði flokknum mínum í ríkisstjórn. Samhliða því kynntist maður auðvitað fullt af nýju fólki og treysti böndin við aðra sem maður þekkti minna. Er mjög ánægður með hina nýju ríkisstjórn… og ekki síður nýja borgarstjórnarmeirihlutann!

Eitthvað varð nú minna úr öðrum áhugamálum á árinu – stefnan er klárlega sett á að verða duglegri við bókalestur og að taka fleiri ljósmyndir árið 2008.

Annars eru ansi miklar breytingar að verða hjá mér um áramótin. Ég hætti í fullu starfi núna í janúar og mun vera í ca. hálfu starfi fram á vor. Í staðinn verð ég talsvert meira í skólanum  og hlakka ég mikið til að takast á við þau verkefni.

Lesendum síðunnar óska ég gleðilegs árs – þó síðbúið sé – og þakka fyrir lesturinn.