Það verður að segjast eins og er að HandBolti.is, sem er svipuð að sniði og fotbolti.net, er stórfurðuleg síða. Á það sérstaklega við um viðtöl sem síðuhaldarar taka við leikmenn í íslenska boltanum, en þau eru gjarnan æði vafasöm… Þannig er markmaður kvennaliðs Gróttu t.d. spurður (í einu og sama viðtalinu) hver fallegasti handboltamaðurinn sé, hvaða stúlka í Gróttu sé heitust, hvað sé rómó og hvað sé sexý, hvernig hún reyni við hitt kynið, hvort hún sé ástfangin, hver sé fallegasti karlmaðurinn sem hún hafi séð, hvað sé það fyrsta sem henni detti í hug þegar hún heyri “nakinn kvenmaður”, “nakinn karlmaður” og “kynlíf”, að ógleymdri hinni klassísku: “Ef þú þyrftir að velja á milli að horfa á góðan handboltaleik, borða góðan mat, versla eða njóta ásta hvað mundi það verða?” Síðuhaldari kryddar svo viðtölin með undarlegum innskotum frá sjálfum sér. Þegar markvörðurinn svarar í sakleysi sínu að uppáhaldsmatsölustaðirnir sínir séu Serrano og Delí bætir síðuhaldarinn sínu innskoti við: “hún greinilega ódýrt daite” (!)

Vefborðaauglýsingar fyrir síðuna eru ekki minna undarlegar, en í einni slíkri sem ég rakst á rennur mynd af hálfnöktum íþróttakonum yfir skjáinn með orðunum “Við erum smá sexý… :-)”

Er ekki allt í lagi???