Samfylkingin með hreinan meirihluta í borginni
Hún er aldeilis athyglisverð könnunin sem var kynnt í Íslandi í dag í kvöld. Samkvæmt henni nýtur Samfylkingin í Reykjavík stuðnings tæplega 47% borgarbúa, á meðan Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 31,4%. Vinstri-græn mælast með 16,2%, en aðrir flokkar fá minna en 3%. Vissulega er þetta einungis könnun og skekkjumörkin hressileg, en það er engu að síður fróðlegt að umreikna fylgið yfir í fjölda borgarfulltrúa. Einföld D’Hondt-æfing leiðir eftirfarandi í ljós:
- Samfylkingin: 8 borgarfulltrúar
- Sjálfstæðisflokkurinn: 5 borgarfulltrúar
- Vinstri-græn: 2 borgarfulltrúar
Já, nú dámar mér!
Ætli það hafi gerst áður að annar flokkur en Sjálfstæðisflokkurinn mælist með hreinan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur í könnun?
Tengdar færslur
5 athugasemdir
-
Guffi ritar:
19. febrúar 2008 @ 22:05Svo mikið er víst að ég ætla ekki að borða hádegismat með þér á fimmtudaginn.
-
Einar Örn ritar:
20. febrúar 2008 @ 18:15Kjósa NÚNA! :-)
-
Aggi ritar:
20. febrúar 2008 @ 18:31Guffi: Þetta var grimmileg og ómannúðleg refsing hjá þér. Eins gott að viðmótið verði betra á morgun!
Einar Örn: Ef bara, ef bara það væri möguleiki!
-
hrafnh ritar:
21. febrúar 2008 @ 12:35ja hérna, þetta er flottasta og vandaðasta bloggsíða sem ég hef séð (með fullri virðingu fyrir Guf.fa).
Þú verður að drífa þig á Flugdrekahlauparann, ég vil sjá þig gefa henni 5*.
Sjáumst í kvöld kappi.
-
Aggi ritar:
21. febrúar 2008 @ 16:11Ég þakka hólið Hrafn! Guf.fa má nú samt eiga það að efnislega er bloggið hans talsvert skemmtilegra en mitt, amk upp á síðkastið.
Tilfinningafærslan hans er til dæmis rakin snilld! :)

Kosningayfirferð Stöðvar 2 yfir landið er nú hálfnuð. Hefur verið stoppað í þrem kjördæmum; Norðvestur-, Norðaustur- og Suðurkjördæmi. Hefur Félagsvísindastofnun verið fengin til að gera 800 manna skoðanakönnun í hverju...
Ég er nú svosem ekki útlærður í úthlutun þingsæta, en miðað við einfalda D’Hondt útreikningsreglu er þriðji þingmaður Samfylkingarinnar inni á undan fimmta þingmanni Sjálfstæðisflokksins (26/3=8,67 vs 40,4/5=8,08). Kjördæmissætin myndi...
Margrét S. Björnsdóttir er alltaf að senda mér email. Flestir þeirra eru merktir hagfrnem, hinem eða einhverri álíka orðavitleysu. Það væri nú ekki í frásögur færandi nema útaf því að ég...
Fundur Samfylkingarinnar um þær áskoranir sem framundan eru í efnahagslífinu var afar athyglisverður. Jón Sigurðsson kynnti þar rit sem starfshópur undir hans stjórn vann að og tekur meðal annars á...
Þetta er tilfinningin sem ég hef fyrir prófkjörunum… það skal þó tekið fram að ég hef afar stutt pólitískt nef og er lélegur í giski. Samfylkingin í Reykjavík: Ingibjörg Sólrún...