Breytingar á síðunni
Hef dundað mér við að setja inn nokkrar nýjungar á síðuna á meðan bloggpásunni stóð. Þeirra helstar eru tvær:
- Skellti inn viðbót sem birtist fyrir neðan hverja færslu og sýnir þær færslur sem birst hafa á viðkomandi degi í fortíðinni. Þetta hefur ósköp lítið praktískt notagildi og gæti í rauninni orðið frekar bagalegt í ljósi þess að blogg mitt í fortíðinni hefur verið æði misjafnt. Lesendur síðunnar ættu þó vonandi að hafa gaman af!
- Ég er farinn að nota Google Reader til að lesa öll bloggin í rúntinum mínum. Readerinn býður upp á þann skemmtilega fídus að eyrnamerkja færslur sem manni finnast góðar og getur maður sent þær áfram með tölvupósti eða birt, til dæmis á bloggi sem þessu. Skellti tengli á færslurnar sem ég eyrnamerki hérna til hliðar – aldrei að vita nema einhver hafi gaman af því að kíkja á færslur sem mér finnast áhugaverðar annars staðar. Tenglasíðan er sömuleiðis drifin áfram af sama kerfi. Reyndar eitt: Það er mjög erfitt að eiga við kóðann sem er notaður til að búa til listana – fyrir vikið laumast með ensku orðin “from” og “read more”, sem fer óheyrilega mikið í taugarnar á mér!
Að öðru leyti hafa þetta verið smávægilegar breytingar sem ég hef gert á síðunni. Þar sem ég hef ekki prófað síðuna nema í Firefox og IE og ekkert athugað aðrar upplausnir eða stýrikerfi má vel vera að síðan sé alveg hökkuð í vöfrunum hjá einhverjum. Allar ábendingar um slíkt eru vel þegnar!
Tengdar færslur
2 athugasemdir
-
hrafnharðarson ritar:
2. júlí 2008 @ 21:13ef það væri ekki fyrir google reader þá hefði ég ekki litið hingað inn fyrr en í september.
Skemmtilegur flokkur hjá þér “byrjaður að blogga aftur”. Þú ert comeback kóngur eins og Tyrkirnir.
ps. ég lofa sterkri innkomu í hádegis ræktina í þar næstu viku þegar ég kem úr fríinu
-
Aggi ritar:
3. júlí 2008 @ 00:04Já, grenningardeildin þarf að taka sig saman í andlitinu!
Annars er alveg nauðsynlegt að halda utan um “byrjaður að blogga aftur” færslurnar :)

Þá er geðveikistörn þessarar annar lokið. Þrjár ritgerðir á rétt rúmum tveim vikum, auk þess sem ég skellti frá mér Vefritsgrein um mikilvægi þess að standa vörð um Lánasjóð íslenskra...