Færslur frá júlí 2008

Af öskri og söng

Wilhelms-öskrið er sennilega eitt mest notaða hljóðið í kvikmyndasögunni. Flestir hafa heyrt það – og það örugglega í tugi skipta – án þess að hafa hugmynd um það enda hefur því verið troðið í yfir 100 kvikmyndir á síðustu fimmtíu árum. Mæli með myndbandinu hérna fyrir neðan fyrir þá sem hafa gaman af kvikmyndanördaskap.

*

Ef litið er framhjá því hvað þetta er vandræðalega slappur texti við þjóðsönginn þá eru umrædd lög sennilega þau bjánalegustu sem maður hefur heyrt um. Allt að tveggja ára fangelsi fyrir að hæðast að þjóðsöngnum – hvar (og hvenær) erum við eiginlega stödd?

Neyðarkall úr Breiðholtinu

Símtal móttekið kl. 12.56:

[...]

Viðmælandi: ,,Svo hef ég verið að reyna að setja ryksugupoka í ryksuguna og það bara gengur ekki neitt!”

Aggi: ,,Núnú, ég get nú kíkt á það”

V: ,,Já, þú verður bara að gera það  – ég er búinn að sitja yfir þessu í tvo tíma og það gengur ekkert”.

A: ,,Hvern….”

V: ,,Og ekki nóg með það. Heldurðu að það sé ekki kónguló úti á svölum, fyrir utan gluggann”

A: ,,Nú já.”

V: ,,Já, hún er búin að spinna vef yfir allan gluggann. Þú verður að blása á hana eða eitthvað”

[...]

Símtali slitið kl. 12.57.

Ég er semsagt á leiðinni upp í Breiðholt STRAX eftir vinnu.

“I’m sorry, Iceland does espionage?”

Hef verið að horfa á hinn annars ágæta þátt Chuck, sem fer að hefja göngu sína á einhverri af íslensku stöðvunum á næstunni. Söguþráðurinn hljómar nokkuð absúrd, en þátturinn er engu að síður alveg ágætasta skemmtun:

When a twenty-something computer geek inadvertently downloads critical government secrets into his brain, his former college friend turned CIA recruits him as a secret agent, all while keeping him out of evil hands.

Í sjöunda þætti fara hlutirnir reyndar að verða stórhættulegir fyrir aðalsöguhetjuna. Þar lendir félaginn í sigtinu hjá íslenska njósnaranum Magnúsi Einarssyni… sem Íslendingar viðurkenna víst ekki opinberlega skv. CIA. Gaman að þessu!

LSE og skólagjöld

Eftir flikk flakk og heljarstökk ákvað ég að lokum að láta slag standa og skella mér í LSE. Ákvað hins vegar að skipta um prógrammið sem ég fer í – í staðinn fyrir að verða evrópuhagstjórnmálafræðingur er stefnan sett á að taka gráðu í samanburðarstjórnmálum með áherslu á efnahagsmál. Eða MSc Comparative Politics (Politics and Markets stream) eins og spekúlantarnir kalla þetta. Þessi prógrömm eru ekkert mjög frábrugðin hvor öðru – það síðarnefnda er hins vegar ekki með fókusinn á Evrópu og er öllu fræðilegra. Það varð ofan á að lokum.

*

Menntunin í LSE er sko ekki fríkeypis, svo það sé nú alveg á hreinu. Hún er raunar alveg svívirðilega dýr! Frændi LÍN er hins vegar svo góður að lána manni fyrir skólagjöldunum í nokkra áratugi. Hafandi upphaflega sótt um í skólanum í desember hef ég fylgst nokkuð náið með gengi breska pundsins gagnvart krónunni… já, það hefur verið heldur erfitt. Mér telst það til að skólagjöldin hafi mest hækkað um tæplega hálfa milljón króna (!) á tímabilinu þó að munurinn sé núna (kl. 00.21 aðfararnótt 3. júlí) kominn niður í einhverjar 430 þúsund krónur frá upphafi tímabilsins… Þvílík rússíbanareið!

Það mætti með góðu móti segja að á hverju augnabliki sem ég læt líða án þess að borga skólagjöldin sé ég að veðja ansi hárri fjárhæð á íslensku krónuna og styrkingu hennar. Ég segi því bara: Upp, upp, mín króna!

Breytingar á síðunni

Hef dundað mér við að setja inn nokkrar nýjungar á síðuna á meðan bloggpásunni stóð. Þeirra helstar eru tvær:

  • Skellti inn viðbót sem birtist fyrir neðan hverja færslu og sýnir þær færslur sem birst hafa á viðkomandi degi í fortíðinni. Þetta hefur ósköp lítið praktískt notagildi og gæti í rauninni orðið frekar bagalegt í ljósi þess að blogg mitt í fortíðinni hefur verið æði misjafnt. Lesendur síðunnar ættu þó vonandi að hafa gaman af!
  • Ég er farinn að nota Google Reader til að lesa öll bloggin í rúntinum mínum. Readerinn býður upp á þann skemmtilega fídus að eyrnamerkja færslur sem manni finnast góðar og getur maður sent þær áfram með tölvupósti eða birt, til dæmis á bloggi sem þessu. Skellti tengli á færslurnar sem ég eyrnamerki hérna til hliðar – aldrei að vita nema einhver hafi gaman af því að kíkja á færslur sem mér finnast áhugaverðar annars staðar.  Tenglasíðan er sömuleiðis drifin áfram af sama kerfi. Reyndar eitt: Það er mjög erfitt að eiga við kóðann sem er notaður til að búa til listana – fyrir vikið laumast með ensku orðin “from” og “read more”, sem fer óheyrilega mikið í taugarnar á mér!

Að öðru leyti hafa þetta verið smávægilegar breytingar sem ég hef gert á síðunni. Þar sem ég hef ekki prófað síðuna nema í Firefox og IE og ekkert athugað aðrar upplausnir eða stýrikerfi má vel vera að síðan sé alveg hökkuð í vöfrunum hjá einhverjum. Allar ábendingar um slíkt eru vel þegnar!

Þögnin rofin

…og það verður ekki aftur snúið!

    Nýjustu ummælin

  • Margrét Rós um Ameríski háskólaboltinn (5):

    ég er ekki að ná utan um þessar tölur! Þetta er svaðalegt… Mikið er ég annars... (Skoða)
  • Agnar Freyr Helgason um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Þeir eru reyndar bara á haustin… en hey, við finnum örugglega eitthvað... (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Eru ekki alltaf leikir allt árið? Kannski dreg ég þig á leik þegar ég kem í heimsókn :) (Skoða)
  • Aggi um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Jújú, klappstýrur og allur pakkinn. Mæli tvímælalaust með því að skella sér á leik! (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (5):

    vá en spennandi! Voru ekki svona klappstýrur líka? Hvernig voru dansarnir? Oh mig... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar