Sófinn á Barnaland
Fjölskyldan mín hefur tröllatrú á Barnalandi. Alltaf þegar að ég segi þeim að ég þurfi að losna við eitthvað þá er það fyrsta sem maður heyrir: ,,Settu þetta á Barnaland!“. Ég hef fussað og sveiað yfir þessu og ekki þótt mikið til þessarar ráðgjafar koma.
Þangað til fyrir fimmtán mínútum.
Hef verið að vandræðast með sófann minn útaf flutningunum enda er hann alltof stór til að komast fyrir í vistarverum mínum hjá móður minni eða geymslunni hennar. Eftir nokkrar símhringingar frá þeirri gömlu ákvað ég loksins að slá til, taka mynd af sófanum og skella auglýsingu inn á barnaland. Þetta gerðist fyrir svona 25 mínútum síðan. Tíu mínútum síðar voru tveir búnir að hringja og sófinn svo gott sem seldur…

