Mér finnst það gjörsamlega fráleitt að Reykjavíkurborg skuli ekki sýna úrslitaleikinn á risaskjá einhversstaðar í borginni – manni hefði t.d. fundist það alveg upplagt að sýna hann á Miklatúni. En nei…. svo gott er það ekki.

Ég stefni á Vodafone-höllina í fyrramálið og get varla beðið. Er kominn í landsliðsbúninginn og hef sjaldan verið spenntari fyrir íþróttaviðburði… þetta er stærsta stund íslenskrar íþróttasögu hingað til og sennilega sú stærsta sem maður mun upplifa nokkurn tímann.

Strax í riðlakeppninni spáði ég því að Ísland myndi lenda í öðru sæti og að Frakkar yrðu meistarar. En þvílíkt *BÍP* – það þýðir ekkert annað en að trúa því að við vinnum þetta!

Áfram áfram áfram Ísland!