Færslur frá ágúst 2008

Þar sem grasið er grænna

Fyrir tilviljun fór ég að skoða gamlar bloggfærslur eftir sjálfan mig og rakst á eina rúmlega fjögurra ára gamla sem er einkar relevant fyrir sjálfan mig um þessar mundir:

Vá vá…. vá!…Og í þessum skrifuðu orðum, þá nenni ég ekki að fara læra… þrátt fyrir að ég geri mér grein fyrir nauðsyn þess. Aðferðafræði og Upplýsingatækni eru einkar vitleysislegir áfangar… maður þarf bara að lesa hundruðir af tilgangslausum blaðsíðum til að fatta vitleysuna. Stærðfræði II er svona eins og létt útgáfa af einhverjum stærðfræðiáfanga í verkfræði… of létt til að ég nenni að opna bók í henni (sem mun jafnvel verða fallvaldur minn). Og svo er það Rekstrarhagfræðin. Hún er svo sem ágæt. Fór samt að fletta kennslugögnunum í Samanburðarstjórnmálum (sem er kennt í Stjórnmálafræði) í gær og var alveg heillaður… en hey, grasið er alltaf grænna hinum megin :)

Í ljósi þess að ég er á leiðinni í nám í samanburðarstjórnmálum núna í haust finnst mér þetta nokkuð fyndið… ég hef greinilega haft stjórnmálafræðina lengur bak við eyrað en ég gerði mér sjálfur grein fyrir…

Einfaldari Agnar

Ég hef tekið upp íburðarminni lifnaðarhætti hér á agnarfreyr.com. Var orðinn þreyttur á gamla útlitinu. Þetta lúkk er afskaplega einfalt sem hentar mér ágætlega. Neðst á forsíðunni má annars finna klassísku fídusana af gömlu síðunni. Þangað er hægt að ,,hoppa” með því að smella á takkann sem birtist þegar músin fer yfir svæðið rétt fyrir neðan efstu stikuna á síðunni. Mjög fansy.

Það eru annars tæpar 7 vikur í að ég flytji til Lundúna. Það er ekki laust við að maður sé orðinn nokkuð spenntur…

    Nýjustu ummælin

  • Margrét Rós um Ameríski háskólaboltinn (5):

    ég er ekki að ná utan um þessar tölur! Þetta er svaðalegt… Mikið er ég annars... (Skoða)
  • Agnar Freyr Helgason um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Þeir eru reyndar bara á haustin… en hey, við finnum örugglega eitthvað... (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Eru ekki alltaf leikir allt árið? Kannski dreg ég þig á leik þegar ég kem í heimsókn :) (Skoða)
  • Aggi um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Jújú, klappstýrur og allur pakkinn. Mæli tvímælalaust með því að skella sér á leik! (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (5):

    vá en spennandi! Voru ekki svona klappstýrur líka? Hvernig voru dansarnir? Oh mig... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar