Færslur frá september 2008

Laffer um kreppuna

Það er magnað að hlusta Laffer – kauðann á bak við Laffer-kúrfuna -  í þessu myndbandi…  hann vildi örugglega að hann hefði sleppt þessu viðtali!

Tög:

Fyrstu dagarnir

Þrátt fyrir að það hafi verið feikinóg að gera síðustu daga þá hefur maður komið merkilega litlu í verk. Mestum tíma hef ég eytt á sameiginlega svæðinu hérna á vistinni, en það fyllist á hverju kvöldi af helvíti skemmtilegu fólki sem er til í spjall, bjór, foozball og fleira… síðan skemmir náttúrulega ekki fyrir að það er bar í kjallaranum sem selur bjórinn á eitt pund (það væri til að æra óstöðugan að umreikna það í íslenskar!).

Hafði afspurnir af því að samgangurinn á milli stúdenta væri einna mestur hérna á Passfield og miðað við það sem ég hef heyrt þá er það raunin… Skelli inn tveim myndum frá partýinu í gær hérna fyrir neðan -á þeirri efri er ég með Francesco frá Ítalíu; John, Archit, Sidharta og Jithin, öllum frá Indlandi; og Isaac frá BNA, og á þeirri neðri með Nathalie frá Hondúras/BNA, Milku frá Bretlandi, Hugh frá Bretlandi, Mark frá Írlandi, Francesco aftur og Brooks frá BNA. Hingað til hef ég kynnst Mark, Francesco, Sidharta og Archit best og týnst oftar en einu sinni í vodkaleiðangri með þeim! Indverjarnir eru reyndar helvíti stífir á því í vodkadrykkjunni og fannst ekki mikið til þess koma þegar ég skipti úr bjórnum yfir í hvítvín í gærkvöldi… “Do you want us to spike it?” var viðkvæðið sem ég fékk að heyra nokkrum sinnum!

Annars fer þetta bóhemlíf að hætta fljótlega og alvaran að taka við. Kynningarfundur hjá deildinni á fimmtudaginn og svo byrjar skólinn á fullu á mánudaginn kemur. Er aðeins farinn að renna yfir kúrsana sem mér stendur til boða að fara í – kennsluáætlanir, lesefni fyrir alla tíma og glærur fram í desember eru þegar komnar á innra netið, sem er annað en maður þurfti að venjast í HÍ!  – og ég verð nú bara að segja að þetta verður frekar erfitt val enda úr mörgum góðum kúrsum að velja.

En já… eigum við að ræða ruglið heima á Íslandi eitthvað? Nei, ég held nú síður.

Eurotrip 2008 – samantekt #2

Eurotrip 2008 – samantekt #1

Já, góð ráð voru dýr í Friedrichshaven. Eftir nokkur símtöl til vel valinna hótela í nágrenninu sáum við fljótlega að það myndi reynast fjandi dýrt að fá gott rúm til að gista í yfir nóttina. Hafandi verið nokkuð glannalegir með veskið fram að þessum tímapunkti, ákváðum við að taka ódýrari týpuna á þetta og gista í bílnum…

Þar sem þetta kvöld var farið að súrna aðeins sáum við að það gengi einfaldlega ekki að gista bara í bílnum… við yrðum að gera eitthvað gott geim úr þessu, svo að minningin myndi lifa áfram.  Og það gerðum við sko! Eftir eilitlar bollaleggingar var brugðið á það ráð að bruna yfir til Austurríkis – sem var í ca. 10 mínútna fjarlægð – og gista á eðaltrukkaplani við Autobahnið, rétt fyrir utan Bregenz. Alveg ógleymanleg lífsreynsla eða þannig… stemminguna á leiðinni yfir austurrísku landamærin má sjá á myndinni hér að ofan :)

Eftir virkilega erfiða nótt var vaknað uppúr 7 – enda lætin frá Autobahninu að verða ærandi – og haldið áleiðis inní Þýskaland. Þar heimsóttum við hinn glæsilega Neuschwanstein-kastala í Hochenschwangau og skelltum okkur svo til Berchesgaden, þar sem við gistum næstu nótt. Daginn eftir kíktum við svo á þriðjaríkissafnið í bænum og heimsóttum Arnarhreiður Hitlers, sem var nokkuð magnað ásjónar. Við kumpánarnir erum einmitt staddir þar á myndinni hér að neðan.

Í sveiflunni

Einar Örn tók þessa af mér um síðustu helgi… Ég verð nú bara að segja að mér finnst hún nokkuð skemmtileg!

Lundúnir

Jæja jæja, þá er maður kominn til London og byrjaður að læra til heimsborgara. Mætti seint á fimmtudagskvöldið á heimavistina – sjá mynd hér að ofan – og reif mig svo af stað snemma á föstudagsmorgun til að taka GRE-prófið. Niðurstöðurnar fékk ég strax að loknu prófinu og voru þær út úr kortinu vonum framar. Síðan þá hefur mestur tíminn farið í að koma sér fyrir (les: komast í fast netsamband) og gera eitt og annað smálegt. Kíkti að vísu í gærkvöldi á hitting með einhverju af fólkinu sem verður með mér í stjórnmálafræðideildinni í vetur og hitti þar fyrir allra þjóða kvikindi – mest kom mér það þó á óvart að þriðja fjölmennasta þjóðin á staðnum var sú íslenska! Ég kann Árna engar þakkir fyrir (og hann mér örugglega engar heldur) fyrir að draga svo illilega úr sérstöðu minni.

Næstu dagar eru annars þétt skipaðir – kynningarfundir og -partý verða nánast daglega þangað til skólinn byrjar eftir viku, auk þess sem maður ætlar að ná að túristast eitthvað aðeins áður en skólinn byrjar. Morgundagurinn verður þó öllu týpískari – við Addi ætlum að kíkja á pöbbinn uppúr hádegi og horfa á Everton rúlla yfir slakara liðið í Liverpoolborg.

Praktískt atriði: Nýja símanúmerið mitt er +44 (0)7593 017494. Þeir sem hringja úr íslenskum síma sleppa núllinu í sviganum.

*

Í tilefni af flutningunum skellti ég inn viðeigandi grafík í hausinn á síðunni og breytti nafninu aðeins – húrrah fyrir því.

Cheers frá London,
Aggi

Eurotrip 2008 – samantekt #1

Jæja, þá er rúm vika liðin síðan við Andri komum heim úr ævintýranlegri ferð til Hollands og Þýskalands. Við brölluðum eitt og annað í ferðalaginu og skemmtum okkur heilt yfir alveg afskaplega vel þessa tíu daga.

Ferðalagið hófst í Amsterdam, sem mætti sennilega kalla sorahöfuðborg heimsins. Verandi forvitnir heimsborgarar fundum við okkur að sjálfsögðu gistingu í Rauða hverfinu og drukkum í okkur amsterdamska ómenningu á laugardegi og sunnudegi. Fyrirfram hafði maður gert sér ákveðnar hugmyndir um hvernig hlutirnir væru í borginni, en einhvernveginn er ekkert sem getur undirbúið mann undir þann veruleika sem blasir við manni. Gluggastræti vændiskvennanna eru sérstaklega firrt og ómanneskjulegt… eða eins og einhver túristabæklingurinn sagði: “…gives windowshopping a whole new meaning”.

Eftir helgina var förinni heitið til Þýskalands, þar sem við dvöldum í Baden Baden fyrstu nóttina og smelltum okkur svo í stærsta skemmtigarð Þýskalands, Europa Park, daginn eftir. Baden Baden var nokkuð krúttlegur bær, en peningalyktina mátti svosem finna langar leiðir. Við Andri smelltum okkur einmitt í fínni fötin það kvöldið og spiluðum rúllettu og póker við fína fólkið í flottasta spilavíti sem ég hef komið inn í á ævinni. Sú ferð var ekki til fjár…

Daginn eftir hristum við það hins vegar af okkur með adrenalíntrylltum degi og skelltum okkur meðal annars tvisvar í rússíbanann á myndinni hér að ofan. Gamanið kárnaði þó heldur þegar við misstum af ferjunni okkar frá Konstanz, þar sem við borðuðum kvöldmat, til Friedrichshaven, þar sem við ætluðum að gista. Konan í móttökunni á gistiheimilinu okkar var ekki alveg sú hressasta og – eftir að hafa hreytt vel völdum orðum í okkur á þýsku – tilkynnti okkur að þar sem við værum þrem korterum of seinir værum við búnir að afsala okkur herberginu okkar og gætum ekki gist á þessum stað… kl. 23.50, strandaglópar í þýskum svefnsmábæ, án gistingar. Góð ráð voru dýr.

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar