Eurotrip 2008 – samantekt #1
Jæja, þá er rúm vika liðin síðan við Andri komum heim úr ævintýranlegri ferð til Hollands og Þýskalands. Við brölluðum eitt og annað í ferðalaginu og skemmtum okkur heilt yfir alveg afskaplega vel þessa tíu daga.
Ferðalagið hófst í Amsterdam, sem mætti sennilega kalla sorahöfuðborg heimsins. Verandi forvitnir heimsborgarar fundum við okkur að sjálfsögðu gistingu í Rauða hverfinu og drukkum í okkur amsterdamska ómenningu á laugardegi og sunnudegi. Fyrirfram hafði maður gert sér ákveðnar hugmyndir um hvernig hlutirnir væru í borginni, en einhvernveginn er ekkert sem getur undirbúið mann undir þann veruleika sem blasir við manni. Gluggastræti vændiskvennanna eru sérstaklega firrt og ómanneskjulegt… eða eins og einhver túristabæklingurinn sagði: “…gives windowshopping a whole new meaning”.
Eftir helgina var förinni heitið til Þýskalands, þar sem við dvöldum í Baden Baden fyrstu nóttina og smelltum okkur svo í stærsta skemmtigarð Þýskalands, Europa Park, daginn eftir. Baden Baden var nokkuð krúttlegur bær, en peningalyktina mátti svosem finna langar leiðir. Við Andri smelltum okkur einmitt í fínni fötin það kvöldið og spiluðum rúllettu og póker við fína fólkið í flottasta spilavíti sem ég hef komið inn í á ævinni. Sú ferð var ekki til fjár…
Daginn eftir hristum við það hins vegar af okkur með adrenalíntrylltum degi og skelltum okkur meðal annars tvisvar í rússíbanann á myndinni hér að ofan. Gamanið kárnaði þó heldur þegar við misstum af ferjunni okkar frá Konstanz, þar sem við borðuðum kvöldmat, til Friedrichshaven, þar sem við ætluðum að gista. Konan í móttökunni á gistiheimilinu okkar var ekki alveg sú hressasta og – eftir að hafa hreytt vel völdum orðum í okkur á þýsku – tilkynnti okkur að þar sem við værum þrem korterum of seinir værum við búnir að afsala okkur herberginu okkar og gætum ekki gist á þessum stað… kl. 23.50, strandaglópar í þýskum svefnsmábæ, án gistingar. Góð ráð voru dýr.
Tengdar færslur
Ein athugasemd
-
Eurotrip 2008 - samantekt #2 < London á línunni ritar:
28. september 2008 @ 19:15[...] Eurotrip 2008 – samantekt #1 [...]



Eurotrip 2008 – samantekt #1 Já, góð ráð voru dýr í Friedrichshaven. Eftir nokkur símtöl til vel valinna hótela í nágrenninu sáum við fljótlega að það myndi reynast fjandi dýrt...