Eurotrip 2008 – samantekt #1

Já, góð ráð voru dýr í Friedrichshaven. Eftir nokkur símtöl til vel valinna hótela í nágrenninu sáum við fljótlega að það myndi reynast fjandi dýrt að fá gott rúm til að gista í yfir nóttina. Hafandi verið nokkuð glannalegir með veskið fram að þessum tímapunkti, ákváðum við að taka ódýrari týpuna á þetta og gista í bílnum…

Þar sem þetta kvöld var farið að súrna aðeins sáum við að það gengi einfaldlega ekki að gista bara í bílnum… við yrðum að gera eitthvað gott geim úr þessu, svo að minningin myndi lifa áfram.  Og það gerðum við sko! Eftir eilitlar bollaleggingar var brugðið á það ráð að bruna yfir til Austurríkis – sem var í ca. 10 mínútna fjarlægð – og gista á eðaltrukkaplani við Autobahnið, rétt fyrir utan Bregenz. Alveg ógleymanleg lífsreynsla eða þannig… stemminguna á leiðinni yfir austurrísku landamærin má sjá á myndinni hér að ofan :)

Eftir virkilega erfiða nótt var vaknað uppúr 7 – enda lætin frá Autobahninu að verða ærandi – og haldið áleiðis inní Þýskaland. Þar heimsóttum við hinn glæsilega Neuschwanstein-kastala í Hochenschwangau og skelltum okkur svo til Berchesgaden, þar sem við gistum næstu nótt. Daginn eftir kíktum við svo á þriðjaríkissafnið í bænum og heimsóttum Arnarhreiður Hitlers, sem var nokkuð magnað ásjónar. Við kumpánarnir erum einmitt staddir þar á myndinni hér að neðan.