Færslur frá október 2008

Samhengislausir punktar

Ég var að útskýra pólitíkina á Íslandi fyrir nokkrum Könum í gærkvöldi. Þegar ég var búinn að segja þeim frá því helsta og bæta við fróðleiksmolum um Mr. Oddsson stóð ég mig að því að hætta að tala í smá tíma og velta því fyrir mér hvað þetta væri allt saman fáránlegt. Af hverju í ósköpunum er formaður bankastjórnar seðlabankans fyrrverandi stjórnmálamaður, sem nota bene er að verja áratugsarfleifð sinnar stefnu í leiðinni? Og af hverju ber enginn ábyrgð? Enginn!?

*

Hinn danski Karl hérna á vistinni er ekki par hress með Sterling þessa dagana. Búinn að panta allar ferðirnar heim yfir námsárið til að fá þær á sem lægstu verði… og standa svo uppi með sex verðlaus pappírssnifsi! Fúlt.

*

Annars sýnist mér sem bresku fjölmiðlanir séu hættir að velta Íslandi eins mikið fyrir sér… dálksentimetrunum hefur að minnsta kosti fækkað snarlega. Aðalfréttin þessa dagana snýst um símaat sem stjórnendur einhvers gamanþáttar á BBC Radio 2 gerðu í gömlum kalli sem lék í Fawlty Towers. Það er allt alveg snaaaargeggjað yfir þessu máli hérna… útvarpsmennirnir búnir að segja af sér og fólk vill að einhverjir fleiri hjá BBC fjúki. Ísland er að minnsta kosti ekki á forsíðunum á meðan…

*

Námið gengur svo bara nokkuð vel. Er kominn í ágætisrútínu og fékk mér loksins líkamsræktarkort í gær… alveg ótrúlegt að ég hafi ekki verið búinn að hunskast til þess! Var farinn að sakna sundlauganna heima óheyrilega mikið og passaði því uppá að aðgangur að sundlaug fylgdi með kortinu.

Það sem hefur annars komið mér í örlítið opna skjöldu er hversu enskan mín er misjöfn. Hafandi aldrei þurft að tjá mig af einhverju ráði á ensku fannst mér alltaf eins og það myndi ekki vera neitt mál… það myndi bara vera eins og framlenging á því að hlusta eða lesa ensku, sem ég skil nánast óaðfinnanlega. En nei nei, eitthvað hefur maður nú þurft að stama á tímum og tala frekar almennt um hlutina! Alveg makalaust hvað það getur tekur langan tíma að formúlera setningu á íslensku í hausnum og þurfa svo að þýða hana yfir á ensku meðan maður talar. Þetta er annars aðallega einskorðað við það þegar ég er í tímum og er að tjá mig um námsefnið og slíkt, sem ég er ekki vanur… í almennum samskiptum er þetta ekkert mál. Finn samt að þetta hefur orðið talsvert skárra á síðasta mánuðinum og held að þetta ætti ekki að vera mikið vandamál þegar vora fer.

*

Reykskynjarakerfið fór annars í gang af fullum krafti kl. 00.05 í gærnótt og húsið rýmt eins og vera ber. Það var hressilegt. Sökudólgurinn var Megan, Kani frá Ohio, sem hafði gerst svo djörf að setja kerti á afmælistertu Bhövnu, frá Indlandi. Kerfið fór svo allt í gang þegar Bhavna blés á kertin!

250 manns út á götu, flestir á náttfötunum, sungu svo afmælissönginn fyrir þá indversku þegar slökkvuliðið var farið. Hún gleymir örugglega ekki þessum afmælisdegi í bráð!

Snjór

Úti snjóar. Hérna á vistinni er fólk sem hefur aldrei áður séð snjó… Það tístir af gleði og hleypur um úti, fagnandi úrkomunni.

Inni situr Íslendingurinn og lærir.

Tónlist

Mig vantar ferska tónlist í eyrun. Einhverjar uppástungur?

Í fréttum er þetta helst

Bretar eru mjög meðvitaðir um eldvarnaröryggi. Hér á vistinni eru ítarlegar reglur um allt sem tengist rafmagnstækjum, sem ganga meira að segja svo langt að maður þarf að fá leyfi fyrir öllum rafmagnstækjum sem maður er með í herberginu sínu. Klukkan 8.30 í gærmorgun var svo brunaæfing öllum að óvörum. Maður hafði nú hæfilegar áhyggjur af því að eitthvað væri að gerast í alvörunni, og flýtti sér því nokkuð hratt út. Úti söfnuðust svo allir – myglaðir og mismikið klæddir. Einhverjir ruku beint úr sturtunni…

Bestur var þó klárlega Spánverjinn Antonio. Hann kom cirka 5 mínútum á eftir öllum út, fullklæddur, með fartölvutöskuna á öxlinni og dragandi ferðatöskuna á eftir sér! Einn sem ætlaði sko ekki að glata neinu!

Af einskærri góðvild var svo önnur brunaæfing kl. 10.30 í morgun. Fólkið var nú öllu fljótara út í það skiptið…  Antonio þar á meðal :)

*

Kíkti á pöbbarölt með fólkinu í prógramminu mínu á fimmtudaginn. Þar á meðal voru þrír Norðmenn, sem spurði mig allir að því við mismunandi tækifæri hvenær (ekki hvort!) Ísland myndi taka upp norsku krónuna! Þeim leiðist ekki að stríða manni.

*

Undirritaður var annars í símaviðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi.

Að vera í ‘góðum’ skóla

Það er ekki hægt að segja annað en að undanfarin vika hafi verið afskaplega erfið. Maður hefur lítið getað einbeitt sér að náminu og fylgst óhóflega mikið með því sem er að gerast á gamla góða Íslandi. Hugurinn hefur meira og minna verið með öllu fólkinu þar, sérstaklega gömlu vinnufélögunum í Landsbankanum, sem standa nú margir hverjir frammi fyrir því að vera án vinnu.

Harmsögum af raunum námsmanna erlendis hefur líka rignt yfir mann. Námsmenn hafa nú oftast ekki mikið á milli handanna og skakkaföll á borð við þau sem urðu í síðustu viku geta haft hrikaleg áhrif á aðstæður þeirra. Þannig hefur maður heyrt nokkrar sögur af fólki sem hefur lent í veseni með leigu og skólagjöld vegna ástandsins heima og auðvitað líka af fólki sem hefur ekki getað millifært pening að heiman fyrir helstu nauðsynjavörum.

Í öllu þessu ástandi hef ég hins vegar verið afskaplega heppinn. Ég hef getað tekið pening út af íslenska debetkortinu mínu – á fáránlega háu gengi þó – og hef því átt pening fyrir helstu nauðsynjavörum. Ég er með gistingu á heimavist hjá LSE og þeir hafa sömuleiðis verið afskaplega sveigjanlegir vegna þessara tímabundnu erfiðleika. Það sem meira er, þá fékk ég e-mail frá skólanum á fimmtudaginn, sem ég held að hafi farið á alla íslensku námsmennina við skólann.

Meginatriði póstsins voru á þessa leið:

I am writing to you on behalf of the School to say that we hope that you are settling in to your studies here.

We are of course aware from the international media about the financial crisis in Iceland: and the purpose of this message is to point you to some sources of support if this is affecting you directly.

As you will know if you attended one of the Support Services Induction sessions last week, there are a range of support services available at the School. If the circumstances in Iceland are affecting your ability to concentrate on your academic work, you should talk to your Departmental Tutor. Another good starting point for more general help and advice is the Student Services Centre, where there are advice staff on the counter each weekday. They can refer you to more specialised help if necessary.

If you have a specific problem over the financial arrangements you made for your time at LSE, then please make use of the Financial Support Office. The FSO may be able to help you to secure special funding which is available to registered students who encounter unexpected difficulty. This fund is open throughout the academic year: so if the current crisis is not having an immediate effect but causes you a problem at a later point during your studies, then there will still be help available at that time. [...]

Mér finnast þessi viðbrögð skólans alveg til fyrirmyndar og ég er ótrúlega þakklátur fyrir að vera í skóla sem býður manni slíkan stuðning á þessum síðustu og verstu. Þetta hefur heldur betur dregið úr áhyggjunum af eigin ástand enda líklegt að ég geti sótt mér þá aðstoð sem ég þarf ef ég lendi í einhverju frekara veseni útaf þessu ástandi.

Langaði bara að deila þessu með lesendum síðunnar… sendi annars baráttukveðjur til annarra námsmanna erlendis og fólksins heima – þetta fer allt einhvernveginn, þó margur efist um það á tímabili!

Tög:

Punktar

  • Fyrsti skóladagurinn í gær og ég skemmti mér vel. Með kostuglegum hætti tókst mér þó að missa af fyrsta klukkutímanum í fyrsta fyrirlestrinum mínum í LSE… var búinn að setja alla tímana mína inn í Google Calendar í síðustu viku, en brá svo á það stórsnjalla ráð að breyta tímakerfinu í Calendar úr íslenska yfir í það breska. Við það hliðraðist öll áætlunin mín aftur um eina klukkustund, takk fyrir kærlega!
  • Í gær gerði ég þau mistök að taka út 50 pund í hraðbanka af Mastercard-inu mínu. Það kostaði mig rúmlega 15 þúsund krónur, sem gerir rúmlega 300 krónur á pundið. Á sama tíma var gengið skráð víðast hvar í kringum 220-250 krónur. Þvílíkt okur – mér er skapi næst að hætta að nota Mastercard!
  • Á föstudaginn þarf ég að borga leiguna hérna á Passfield fyrir haustönnina, 1480 pund rúm. Þvílík tímasetning! Eins og sakir standa mun ég þurfa að borga leiguna á gengi í kringum 200 kr., sem er (vonandi fyrir Ísland) talsvert óhagstæðara gengi en ég mun fá námslánin mín greidd út á í janúar. Af hverju er ekki löngu búið að breyta útlánareglunum þannig að námsmenn sjálfir þurfi ekki að bera gengisáhættuna af námslánunum sínum? Mánaðarlegar greiðslur myndu til dæmis stórlega minnka þessa áhættu – nú eða þá að miða námslánin við eitthvað meðalgengi yfir önnina í staðinn fyrir að festa allt við gengið á útborgunardag. Pff!
  • Það var gjörsamlega fáránlegt að horfa á stjórnmálamanninn Davíð Oddsson í hlutverki Seðlabankastjóra í Kastljósinu áðan. Engu líkara en að hann væri ennþá í forsvari fyrir ríkisstjórn. Þarf ekki að huga að því að ráða nýjan seðlabankastjóra faglega þegar þessu stormviðri er lokið?
  • Til að enda á einhverju jákvæðu: Lenti á spjalli við ítalska stelpu yfir kvöldmatnum áðan og hún uppveðraðist öll við að heyra að ég væri frá Íslandi. Þá eru Sigurrós og Múm uppáhaldshljómsveitirnar hennar og Nói albinói ein af hennar uppáhaldsmyndum… 101 Reykjavík þótti henni hins vegar eitthvað slöpp. Því næst fór hún að spyrja mig út í einhverjar fleiri íslenskar hljómsveitir, sem ég vissi ekki einu sinni hverjar voru… frekar vandræðalegt það!

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar