Ég, ég, ég…. Magnús Már Guðmundsson, stjörnublaðamaður á Vísir.is, gerði athugasemd við síðustu færslu þar sem hann dróg í efa að á agnarfreyr.com kæmu yfir eitthundrað innlit daglega. Eftir nánari eftirgrennslan að hálfu síðuhaldara er rétt að taka fram að rannsóknarnef Magnúsar þefaði þarna uppi sannleikann – nær lagi væri að segja að á síðuna ráfuðu 60-80 einstaklingar inn daglega. Ekki skal fullyrt um hvort þar sé um að kenna egósentrískum færslum undirritaðs, en það verður þó að viðurkennast að ég býst fastlega við að heimsóknirnar munu aukast stórlega þegar fyrirsögnin hér að ofan birtist á Blogggáttinni öflugu. Myndin sem fylgir með af umræddum MMG og Banka-Geiranum ætti heldur ekki að skemma fyrir.