Punktar
- Fyrsti skóladagurinn í gær og ég skemmti mér vel. Með kostuglegum hætti tókst mér þó að missa af fyrsta klukkutímanum í fyrsta fyrirlestrinum mínum í LSE… var búinn að setja alla tímana mína inn í Google Calendar í síðustu viku, en brá svo á það stórsnjalla ráð að breyta tímakerfinu í Calendar úr íslenska yfir í það breska. Við það hliðraðist öll áætlunin mín aftur um eina klukkustund, takk fyrir kærlega!
- Í gær gerði ég þau mistök að taka út 50 pund í hraðbanka af Mastercard-inu mínu. Það kostaði mig rúmlega 15 þúsund krónur, sem gerir rúmlega 300 krónur á pundið. Á sama tíma var gengið skráð víðast hvar í kringum 220-250 krónur. Þvílíkt okur – mér er skapi næst að hætta að nota Mastercard!
- Á föstudaginn þarf ég að borga leiguna hérna á Passfield fyrir haustönnina, 1480 pund rúm. Þvílík tímasetning! Eins og sakir standa mun ég þurfa að borga leiguna á gengi í kringum 200 kr., sem er (vonandi fyrir Ísland) talsvert óhagstæðara gengi en ég mun fá námslánin mín greidd út á í janúar. Af hverju er ekki löngu búið að breyta útlánareglunum þannig að námsmenn sjálfir þurfi ekki að bera gengisáhættuna af námslánunum sínum? Mánaðarlegar greiðslur myndu til dæmis stórlega minnka þessa áhættu – nú eða þá að miða námslánin við eitthvað meðalgengi yfir önnina í staðinn fyrir að festa allt við gengið á útborgunardag. Pff!
- Það var gjörsamlega fáránlegt að horfa á stjórnmálamanninn Davíð Oddsson í hlutverki Seðlabankastjóra í Kastljósinu áðan. Engu líkara en að hann væri ennþá í forsvari fyrir ríkisstjórn. Þarf ekki að huga að því að ráða nýjan seðlabankastjóra faglega þegar þessu stormviðri er lokið?
- Til að enda á einhverju jákvæðu: Lenti á spjalli við ítalska stelpu yfir kvöldmatnum áðan og hún uppveðraðist öll við að heyra að ég væri frá Íslandi. Þá eru Sigurrós og Múm uppáhaldshljómsveitirnar hennar og Nói albinói ein af hennar uppáhaldsmyndum… 101 Reykjavík þótti henni hins vegar eitthvað slöpp. Því næst fór hún að spyrja mig út í einhverjar fleiri íslenskar hljómsveitir, sem ég vissi ekki einu sinni hverjar voru… frekar vandræðalegt það!
Tengdar færslur
6 athugasemdir
-
Sólrún Lilja ritar:
7. október 2008 @ 22:05Ég mæli með að þú gefir þessari ítölsku snælduna GARG með Sálinni Hans Jóns míns! Þar fær hún að heyra almennilega íslenska tónlist :)
-
Maggi ritar:
8. október 2008 @ 21:15Ég ætlaði einmitt koma með Sálarkomment. Ehh… do you know Sálin hans Jóns míns?
Ég trúi ekki að þú hafir klikkað á klukkunni og tímamismun. Það skal ég segja þér bara nokkuð skondið. Jájá.
-
Aggi ritar:
9. október 2008 @ 14:02Ég þarf að tjékka á því já.. hvort hún hafi nokkuð heyrt um hljómsveitina Soul of my John…
-
Pálína Ósk ritar:
9. október 2008 @ 15:13Hæ hæ
Ég ráfaði inn á síðuna þína á mínu netflakki og auðvita kvitta ég fyrir komuna.
hafðu það gott í London á þessum krepputímum.
Kv.
Pálína Ósk
(öldskælingur) -
Fanney Dóra ritar:
10. október 2008 @ 14:00Hehehehehe… vandró móment án efa.
Þetta viðtal DO var einmitt ansi fyndið. Ég hélt á tímabili að ég væri að horfa á Spaugstofuna, nema þetta var bara fyndnara. Maðurinn er núlifandi Kalígula. -
Aggi ritar:
13. október 2008 @ 14:52Pálína: Takk fyrir það og sömuleiðis… manni skilst nú að ástandið sé talsvert verra heima. :/
Fanney: Var þetta kannski bara Örn?

Ég var að útskýra pólitíkina á Íslandi fyrir nokkrum Könum í gærkvöldi. Þegar ég var búinn að segja þeim frá því helsta og bæta við fróðleiksmolum um Mr. Oddsson stóð...