Færslur frá nóvember 2008

Smáborgaraskapur

Verandi orðinn heimsborgari, þá get ég ekki annað en furðað mig á þessari frétt. Gamall fjölmiðlajöfur tapaði peningum á íslensku bönkunum og minntist einu orði á það í löngu viðtali á CNN…. Gvuð sé oss næstur! Hvernig getur þetta verið frétt?

Þetta er bara þvílíkur smáborgaraskapur og ekkert annað! Það er engu líkara en að íslenskir fjölmiðlamenn kembi erlenda fjölmiðla og uppveðrist svo ef minnst er á Ísland í fréttunum erlendis að það verði bara að fjalla um það.

Þegar ég var að útskýra fyrir amerískum félaga mínum hérna úti hvernig fréttirnir á Íslandi væru oftast hló hann dátt og sagði að þetta minnti sig á fréttirnar í smábæjunum í Ameríkunni. Alltaf þegar einhver úr bænum kæmist í fréttir annars staðar eða ef bærinn sjálfur væri í fréttunum annars staðar, þá væri alltaf fjallað um það í heimabænum. Svoleiðis er þetta á Íslandi… fréttirnar heima minna stundum meira á Ferndale Gazette heldur en New York Times. Smáborgaraskapurinn er algjör.

*

Núna ætla ég annars að halda áfram að drekka Fair Trade kaffið mitt og lesa The Guardian. Og síðan mun ég náttúrulega djakka mann og annan í undergroundinu á eftir.

- Heimsborgarinn

Nóvemberveikin

Svo lengi sem ég man eftir mér hef ég orðið veikur í nóvember. Fæ í hálsinn, svo hita, byrja svo að hósta og er svo hóstandi næstu 2 vikurnar. Ekki breytist þetta hérna í London – hef verið meira og minna veikur síðustu vikuna. Þetta kemur á versta tíma enda þarf ég að skila þrem ritgerðum á næstu dögum.

*

Ég er þó ekki sá eini sem er veikur. Svona lagað dreifist nokkuð hratt þegar maður býr á heimavist þar sem samneyti á milli fólks er mikið. Fólk er orðið nokkuð sammála um að við á annarri hæðinni erum sérstaklega illa haldin og því er þetta kallað “Second floor flu” í Passfield. Fólk á þriðju hæðinni er hins vegar farið að fá fyrstu einkennin, svo eitthvað er þetta farið að breiða sig lengra út…

The Trap: What Happened To Our Dream Of Freedom?

Félagi minn hérna í náminu úti benti mér um daginn á heimildaþáttaröðina ‘The Trap: What Happened To Our Dream Of Freedom?’, sem gerð var af Adam Curtis og sýnd á BBC í fyrra. Þættirnir flétta saman hagfræði, sálfræði, mannfræði, heimspeki og stjórnmálafræði til að gagnrýna harkalega hvernig frelsishugtakið hefur verið misskilið og skrumskælt á undanförnum þrem áratugum. Sérstaklega eru þættirnir gagnrýnir gagnvart hugmyndum hagfræðinga um homo economicus – hinn rökrétta mann – og hvernig tilvist hans hefur brenglað hugmyndir okkar um hegðun fólks. Sósíalískir vinir mínir ættu að hafa einkar gaman af þáttunum – öðrum kann að finnast Curtis lita fullfrjálslega út fyrir línurnar. Mér þóttu þættirnir allavegana mjög skemmtilegir og áhugaverðir.

Þættirnir eru þrír, hver þeirra er klukkustundar langur og hver þáttur er brotinn niður í sex parta. Tenglarnir hér að neðan vísa á hvern part.

F?#k You Buddy: 1, 2, 3, 4, 5 og 6.
The Lonely Robot: 1, 2, 3, 4, 5 og 6.
We Will Force You to Be Free: 1, 2, 3, 4, 5 og 6.

Dagblöðin

Undirritaður les The Guardian og The Times, hvað svo sem það kann að segja um hann.

Londonpunktar

Einlægar áskoranir í athugasemdum við síðustu færslu hafa verið teknar til greina. Í fréttum er þetta helst…

*

Síðasta föstudag var hrekkjavökuball íbúanna á Passfield Hall. Eins og ég er nú gjarnan utan við mig var ég að sjálfsögðu ekki kominn með neinskonar búning um kvöldmatarleytið… mér tókst þó að redda því í tæka tíð. Tók myndavélina með mér, lét spjátrungslega og sagðist vera papparazzi kvöldsins. Það vakti kátínu.

Myndin hér að ofan er annars af hluta hópsins… Megan, í miðjunni, var verulega sannfærandi í hlutverki Söru Palin og restin snerist svoldið í kringum hana.

*

Restin af helginni fór annars mestmegnis í lestur og meiri lestur. Það er svínslega mikið af lesefni sett fyrir hvern tíma og ef maður ætlar að eiga einhvern sjens á góðri einkunn þá þarf maður að liggja vel yfir bókunum. Eins steikarpönnulegt og það er nú, þá eru heldur engin jólapróf hérna, þannig að verð ekki prófaður úr efninu sem ég er að fara yfir núna fyrr en í júní! Eins gott að glósa skipulega og skiljanlega.

*

Ég reif augun þó aðeins af bókunum í gærkvöldi og fór á Quantum of Solace ásamt Ítalanum Francesco og Bretanum Hugh. 007 var eins og við var að búast fínasta skemmtun, þó að ég verði nú að segja að af Bondmynd að vera, þá var hún rétt svo í meðallagi. Casino Royale var að minnsta kosti talsvert betri.

*

Kennararnir mínir eru ansi skemmtilegir. Annar þeirra, sem er breskur, fer með gamanmál í hverjum einasta tíma og uppsker alltaf roknahlátur. Hinn leggur sig fram um að koma myndböndum af youtube í sem flesta fyrirlestra hjá sér…. sérstakt dálæti hefur hann á pandabjörnum… þeir hafa komið við sögu í þrem af fimm fyrirlestrum hans í Inngangi að samanburðarstjórnmálum!

*

Er annars á leiðinni á kosningavöku niðrí skóla… það verður ekki leiðinlegt, get sko lofað því. Spái Obama landslæd sigri með, tjah, ca. 350 kjörmönnum. Jájájá!

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar