Londonpunktar
Einlægar áskoranir í athugasemdum við síðustu færslu hafa verið teknar til greina. Í fréttum er þetta helst…
*
Síðasta föstudag var hrekkjavökuball íbúanna á Passfield Hall. Eins og ég er nú gjarnan utan við mig var ég að sjálfsögðu ekki kominn með neinskonar búning um kvöldmatarleytið… mér tókst þó að redda því í tæka tíð. Tók myndavélina með mér, lét spjátrungslega og sagðist vera papparazzi kvöldsins. Það vakti kátínu.
Myndin hér að ofan er annars af hluta hópsins… Megan, í miðjunni, var verulega sannfærandi í hlutverki Söru Palin og restin snerist svoldið í kringum hana.
*
Restin af helginni fór annars mestmegnis í lestur og meiri lestur. Það er svínslega mikið af lesefni sett fyrir hvern tíma og ef maður ætlar að eiga einhvern sjens á góðri einkunn þá þarf maður að liggja vel yfir bókunum. Eins steikarpönnulegt og það er nú, þá eru heldur engin jólapróf hérna, þannig að verð ekki prófaður úr efninu sem ég er að fara yfir núna fyrr en í júní! Eins gott að glósa skipulega og skiljanlega.
*
Ég reif augun þó aðeins af bókunum í gærkvöldi og fór á Quantum of Solace ásamt Ítalanum Francesco og Bretanum Hugh. 007 var eins og við var að búast fínasta skemmtun, þó að ég verði nú að segja að af Bondmynd að vera, þá var hún rétt svo í meðallagi. Casino Royale var að minnsta kosti talsvert betri.
*
Kennararnir mínir eru ansi skemmtilegir. Annar þeirra, sem er breskur, fer með gamanmál í hverjum einasta tíma og uppsker alltaf roknahlátur. Hinn leggur sig fram um að koma myndböndum af youtube í sem flesta fyrirlestra hjá sér…. sérstakt dálæti hefur hann á pandabjörnum… þeir hafa komið við sögu í þrem af fimm fyrirlestrum hans í Inngangi að samanburðarstjórnmálum!
*
Er annars á leiðinni á kosningavöku niðrí skóla… það verður ekki leiðinlegt, get sko lofað því. Spái Obama landslæd sigri með, tjah, ca. 350 kjörmönnum. Jájájá!


4. nóvember 2008 @ 21:47
Duglegur. Ánægður með strákinn. Gleðilega kosningavöku.
4. nóvember 2008 @ 22:44
Jeijj!!! þú bloggaðir!! Annars finnst mér frekar slapt að mæta sem paparazzi! Gastu ekki sett lak yfir þig og verið einhver Grikki. Anyways betra en ekki neitt.