Ísland í samhengi, Ungfrú LSE og þráðlaust net
Þá eru síðustu tímar annarinnar framundan á morgun. Annar þeirra verður sérlega áhugaverður – síðasti umræðutíminn í States and Markets. Síðustu tvær vikurnar höfum við verið að ræða um efnahagskreppur í sögulegu samhengi og sérstaklega hlutverk hins opinbera á slíkum tímum. Á morgun er umræðuefnið hins vegar núverandi heimskreppa, hvaða áhrif hún hefur í mismunandi löndum og hvernig stjórnvöld hafa brugðist við henni. Til að gefa fólki samanburðarvinkil á þetta voru allir beðnir um að taka saman 2ja blaðsíðna samantekt um eitt land og áhrif kreppunnar á það. Fólk var að sjálfsögðu beðið um að taka heimalandið sitt ef það hefði áhuga á því – ég skoraðist nú ekki undan því. Og ekki tókst mér að koma því frá mér sem ég ætlaði að segja á 2 síðum.. nei, ekkert minna en 5 blaðsíður gátu dugað! Aldrei að vita nema maður setjist niður og skelli saman grein um þetta í jólafríinu.
*
Svo virðist vera sem heitasta málið á campus sé Ungfrú LSE keppnin sem var haldin um daginn. Rakst á umfjöllun um málið í skólablaðinu The Beaver. Frekar grillað!
*
Hversu steiktur þarf maður annars að vera til að spyrja afgreiðslukonu hvort að það sé “threadless network” á svæðinu?
Tengdar færslur
5 athugasemdir
-
Elín Sigrún ritar:
10. desember 2008 @ 21:37Okey ég vona að þú sért það greindur að vita að það er wireless en ekki threadless :S
-
Sólrún Lilja ritar:
10. desember 2008 @ 21:47Þú bara bloggar líkt og enginn sé morgundagurinn! Lýst vel á þig!
Annars þá er threadless mjög gott orð! Meikar fullkomlega sens!:)Og já, skelltu endilega í grein maður, hlakka til að lesa.
-
Ingi ritar:
11. desember 2008 @ 02:24Minnir frekar mikið á frægt atriði sem gerðist einmitt í London forðum daga.
-
Guffi ritar:
12. desember 2008 @ 15:15Kom þetta úr viskubrunni sama manns og kallaði á eftir leigubíl í London “Are you loose”
-
Maggi ritar:
13. desember 2008 @ 13:08“Are you loose” er aðeins of fyndið.

Jæja, þá hef ég innbyrt allt námsefni annarinnar á punktaformi í dag. 25 blaðsíður af þéttskrifuðum glósum, takk fyrir kærlega. Ekkert eftir nema að bíða eftir prófinu á morgun. Vilji...