Þá er geðveikistörn þessarar annar lokið. Þrjár ritgerðir á rétt rúmum tveim vikum, auk þess sem ég skellti frá mér Vefritsgrein um mikilvægi þess að standa vörð um Lánasjóð íslenskra námsmanna á þessum síðustu og verstu. Ritgerðirnar voru annars hver annarri áhugaverðari… Sú fyrsta fjallaði um áhrif kosningakerfa á endurdreifingu gæða (betri þýðing á redistribution?), önnur fjallaði um gagnrýni Hayek á miðstýrðan áætlunarbúskap og sú þriðja um hvort að sjálfstæði seðlabanka samrýmist lýðræði í grundvallaratriðum. Það er örlítil ritgerðarpása framundan núna, en ég verð hins vegar að nýta tímann vel. Er alveg á síðasta snúningi með að velja mér ritgerðarefni fyrir meistararitgerðina og þarf að einhenda mér í það. Seinni partinn í mars byrjar svo annað ritgerðarbrjálæði – þá hef ég reyndar rétt rúman mánuð til að gera fjórar ritgerðir. Svo hangir próflesturinn náttúrulega yfir manni eins og langar skuggi á köldum haustdegi.

*

Eftir að hafa setið sveittur við skriftir síðustu vikurnar hefur mig sárlega vantað útrás fyrir (takmarkaða) sköpunargáfu mína. Ég hef því endrum og eins flúið raunveruleikann og mixað nokkrar heimasíður á milli ritgerðanna. Fannst ekki annað tækt en að taka síðuna mína í gegn í leiðinni og held ég að það hafi bara tekist nokkuð vel. Útlitið er reyndar að mestu byggt á öðru útliti, en ég hef aðlagað það mínum þörfum – bætt við kvikmyndadómafídus, kóða fyrir Google Reader, athugasemdir og fleira smálegt.

Eins og alltaf er það svo klárlega stefnan að láta þessa síðu snúast frekar um innihald en form… við skulum sjá hvernig það gengur!