Della á Eyjunni.is
Það er greinilegt að Eyjan lítur orðið á sig sem varnarvígi íhaldsins ef marka má fréttaflutninginn þar. Nú síðast birtir Guðmundur Magnússon þar frétt um skoðanakönnun Capacent í dag undir fyrirsögninni:
3,5% skellur Samfylkingar. Stjórnarflokkarnir með meirihluta. Sjálfstæðisflokkur aftur stærstur.
Ég veit ekki hversu brenglað fréttamat maður þarf að hafa til þess að setja þessar upplýsingar um “skell” Samfylkingarinnar fremst í fyrirsögnina. Sömuleiðis er það út í hött í ljósi þess að vikmörk fylgis Samfylkingarinnar eru 3% í könnuninni, eins og fram kemur á öðrum fréttavefum. Þetta er því varla marktækur munur.
Eyjan kýs reyndar að sleppa því að nefna það.
Uppfært: Guðmundur Magnússon virðist vera sammála mér á blogginu sínu. Ég hélt að hann væri einn að uppfæra Eyjuna, en það er kannski ekki svo…

Vísir, mbl.is og DV greina frá því “tæpur helmingur” vilji hvorki Ingibjörgu Sólrúnu né Jón Baldvin sem formann Samfylkingarinnar. Ekki kemur fram í fyrirsögnum miðlanna tæpur helmingur hvers enda myndi...