Vísir, mbl.is og DV greina frá því “tæpur helmingur” vilji hvorki Ingibjörgu Sólrúnu né Jón Baldvin sem formann Samfylkingarinnar. Ekki kemur fram í fyrirsögnum miðlanna tæpur helmingur hvers enda myndi fréttin vera heldur rýr ef greint væri frá því strax í upphafi.

Að slá því upp sem sérstakri frétt að helmingur allra kjósenda styðji ekki tiltekið fólk í flokk sem það kýs ekki er afskaplega léleg fréttamennska. Það kemur mér raunar ekkert sérstaklega á óvart að til dæmis Sjálfstæðismenn hafi lítinn áhuga á ISG eða JBH. Hvernig ætli þetta væri ef þessu væri öfugt farið – verið að spyrja um formann Sjálfstæðisflokksins til dæmis. Ekki held ég að sá stuðningur myndi ná mörgum tugum prósenta.

Það sem er auðvitað aðalfréttin er hvaða hug kjósendur Samfylkingarinnar hafa til formannsframbjóðendanna.  Að ISG sé með tæplega 70% stuðning þess stokks finnst mér raunar vera nokkuð mikil stórfrétt – svona miðað við hvað fólk hefur verið að gagnrýna hana og segja hana vera rúna öllu trausti. Hún hefur hins vegar greinilega ennþá stuðning meginþorra Samfylkingarfólks – skrítið að miðlarnir hafi ekki neinn áhuga á því…