Hrun heimskapitalismans
Financial Times* birtir alveg hreint prýðusgóðan pistil um hrun heimskapitalismans og, um leið, dogmatískrar trúar á einfeldningslegar hagfræðikreddur sem tröllriðið hafa hinum vestræna heimi frá tímum Thatcher og Reagan. Það sem gerir þennan pistil merkilegri en ella, er að sá sem heldur á penna er Martin Wolf, einn aðalefnahagsmálaspekúlant blaðsins og þangað til nýlega, stækur stuðningsmaður hins frjálsa heimshagkerfis. Mæli klárlega með lestri pistilsins.
* Áður en ég kom til London sór ég þess dýran eið að byrja aldrei blogg á að tala um grein sem ég las í Financial Times. Jæja, svo bregðast krosstré, sem önnur tré!

9. mars 2009 @ 13:23
Að sama skapi gerðir þú ekki ráð fyrir því að FT myndi skrifa um þetta efni!
kv. Þórir Hrafn