Eitt og annað

Jæja, þá er bara ein kennsluvika eftir í skólanum. Það er hálf undarlegt að hugsa til þess hversu hratt árið hefur liðið og ennþá undarlegra að hugsa til þess að þetta sé að verða búið. Altsvo, kennslustundirnar eru allavegana að verða búnar… ritgerðir og prófalestur bíða manns næstu 4-5 mánuðina.
*
Við settum annars á fót körfuboltaklúbb heimavistarinnar minnar í síðustu viku. Ætlum að hittast vikulega á nálægu gymmi og spila í tvo tíma í senn. Fyrsti tíminn var núna á miðvikudaginn og það var hressilega tekið á því. Hafandi ekki spilað körfubolta af einhverri alvöru í yfir 8 ár var maður nú frekar stórkallalegur. Þetta var nú samt furðufljótt að koma. Eins og í öðrum íþróttum (að skák undanskilinni) ferst mér talsvert betur að verjast en sækja og var það ekkert öðruvísi á miðvikudaginn.
*
Páskapartý Passfield-búa var annars haldið í gærkvöldi. Skemmti mér afskaplega vel þar… og hefði vafalaust skemmt mér ennþá betur ef ég hefði ekki þurft að mæta í tíma klukkan 9 í morgun! Það var reyndar frekar fyndið að fylgjast með köppunum sem voru á körfuboltaæfingu daginn áður… það var óvenjumikill spýtukallabragur yfir þeim! Myndin efst í þessari færslu er þaðan… Er með Ítalanum Francesco og Bretanum Hugh á henni. Umgengst þá einna mest hérna á vistinni. Myndin hérna til hliðar er svo af mér og hinni indversku Rupal. Við skiptumst á að hneyksla hvort annað með sögum að heiman… hún fer alltaf í jedúddagírinn þegar talið berst að öllum bastörðunum á Íslandi!
*
Á leiðinni heim í strætó áðan sat ég annars á milli konu sem var svo mikilvæg að hún þurfti að vera talandi í tvo gemsa í einu og kalls sem fannst ekkert eðlilegra en að vera að klippa neglurnar sínar í strætó(!). Fyrir framan okkur sat lágvaxinn maður með pósthúsrautt hár og 9 eyrnarlokka. Stórborgin er yndisleg.

13. mars 2009 @ 17:25
Mér finnst vanta umfjöllun um skattamál í þessa bloggfærslu.
14. mars 2009 @ 16:07
Kominn með heimsborgaraskegg! Þetta lýst mér vel á. Ég ætla að safna og vera með 2ja vikna þegar þú kemur heim.
14. mars 2009 @ 16:14
Þú ert eins og útilegumaður með þetta skegg hvaða týpa er nú í gangi hjá þér.