“Þessi hugmynd er rosalega 2007, Tryggvi minn”
Færslan úr háskólanum í pólitíkina fer þeim misvel, Tryggva og Gylfa. Ég hef nú reyndar ekki séð mikið til þeirra í sjónvarpi, en horfði á umræður þeirra í Íslandi í dag nú í kvöld um 20% niðurfellingu skulda. Á meðan Tryggvi var með hálfundarlegan málflutning um að fá ekki að skýra mál sitt og að hann væri nú ekki að “bulla bara eitthvað út í loftið”, fannst mér Gylfi útskýra mál sitt af yfirvegun og skýrleika… ekki skemmir svo fyrir að hann er líka hnyttinn og orðheppinn.
Get ekki annað en tekið undir með Gauta Eggerts í að vona að afskiptum Gylfa af stjórnmálum ljúki ekki við næstu kosningar. Ef að félagshyggjustjórnin heldur áfram þá held ég að það yrði einmitt mikill fengur af því að halda honum áfram sem viðskiptaráðherra (þó að ég sé reyndar almennt ekkert alltof hrifinn af “faglegum” ráðherrum).
*
Vangavelturnar um skuldastöðu heimilanna finnast mér annars ansi athyglisverðar. Hugmyndin um 20% flata niðurfellingu skulda er alveg góðra gjalda verð – hún er í rauninni ekkert ósvipuð því og ef vísitala neysluverðs væri skrúfuð niður um rúmlega eitt ár. Þó að það hljómi afskaplega einfalt og fallegt þá er það hins vegar afskaplega klunnaleg aðgerð. Jújú, aðgerðin myndi hjálpa fjölmörgum og bjarga frá gjaldþroti, en hún myndi líka leiða til þess að fjölmargir sem hafa enga þörf fyrir niðurfellingu skulda myndu fá óvæntan bónus frá skattgreiðendum framtíðarinnar.
Þá er nú miklu skynsamlegra að einangra þá sérstaklega sem eiga í greiðsluvandræðum og láta hina vera – hnitmiðuð og skilvirk aðgerð er það sem þarf. Gauti Eggerts og Jón Steinsson, tveir af færustu hagfræðingum landsins, færa einmitt rök fyrir slíkri aðgerð í grein sem birtist í Mogganum um daginn. Held að það sé miklu skynsamlegri og réttlátari ráðstöfun en sú sem Tryggvi mælir fyrir… raunar verð ég að viðurkenna að mér finnst alveg ótrúlegt ef Sjálfstæðismenn fari almennt að tala fyrir þeirri leið. En jújú, það er svo sem lúxusinn sem fylgir því að vera í stjórnarandstöðu – hugmyndirnar þurfa ekkert endilega að vera vatnsheldar.


24. mars 2009 @ 10:15
Það er kannski þess virði að velta því fyrir sér hversvegna efnafólk, fólk sem átti verulegar upphæðir inni á bankareikningum, fékk skattfé úthlutað til að kóvera það sem var umfram innistæðutryggingar.
Er þá ekki jafn réttlætanlegt að skuldarar fái skattfé sömuleiðis ?
Persónulega finnst mér þó báðar hugmyndirnar slæmar
24. mars 2009 @ 12:54
Þetta er reyndar mjög réttmæt athugasemd hjá þér Valþór… og eitthvað sem hefur furðulega lítið verið rætt um miðað við hvað þetta mun kosta skattgreiðendur.
Finnst þó líklegast að þetta hafi verið gert til að reyna að skapa ekki “self-fulfulling” vítahring. Ef ríkisstjórnin hefði tilkynnt eftir fall fyrsta bankans að allar innistæður yfir 2 m.kr. væru glataðar, þá hefði áhlaup á hina bankana fylgt í kjölfarið og þeir sjálfkrafa hrunið… en þeir hrundu nú samt, svo þetta breytti ekki það miklu.
Ætli Sjálfstæðisflokkurinn væri annars að mælast með upp undir 30% atkvæða ef þessir innistæðueigendur hefðu ekki verið leystir út af stjórnvöldum og þeir þannig fundið að fullu áhrifin af hruninu?
24. mars 2009 @ 16:31
Einhverjir myndu nú sjálfsagt gera fyrirvara við fullyrðinguna um að þessir ágætu menn sjeu svo færir. Greinin sem þú vísar í er bara rekstrarhagfræði 101.
Það þarf engan snilling til þess að láta sjer detta í hug skuldbreytingu á lánum. Enda eru þeir alls ekki fyrstir til þess.