Færslur frá mars 2009

Eitt og annað

fran_aggi_hugh

Jæja, þá er bara ein kennsluvika eftir í skólanum. Það er hálf undarlegt að hugsa til þess hversu hratt árið hefur liðið og ennþá undarlegra að hugsa til þess að þetta sé að verða búið. Altsvo, kennslustundirnar eru allavegana að verða búnar… ritgerðir og prófalestur bíða manns næstu 4-5 mánuðina.

*

Við settum annars á fót körfuboltaklúbb heimavistarinnar minnar í síðustu viku. Ætlum að hittast vikulega á nálægu gymmi og spila í tvo tíma í senn. Fyrsti tíminn var núna á miðvikudaginn og það var hressilega tekið á því. Hafandi ekki spilað körfubolta af einhverri alvöru í yfir 8 ár var maður nú frekar stórkallalegur. Þetta var nú samt furðufljótt að koma. Eins og í öðrum íþróttum (að skák undanskilinni) ferst mér talsvert betur að verjast en sækja og var það ekkert öðruvísi á miðvikudaginn.

*

aggi_and_rupalPáskapartý Passfield-búa var annars haldið í gærkvöldi. Skemmti mér afskaplega vel þar… og hefði vafalaust skemmt mér ennþá betur ef ég hefði ekki þurft að mæta í tíma klukkan 9 í morgun! Það var reyndar frekar fyndið að fylgjast með köppunum sem voru á körfuboltaæfingu daginn áður… það var óvenjumikill spýtukallabragur yfir þeim! Myndin efst í þessari færslu er þaðan… Er með Ítalanum Francesco og Bretanum Hugh á henni. Umgengst þá einna mest hérna á vistinni. Myndin hérna til hliðar er svo af mér og hinni indversku Rupal. Við skiptumst á að hneyksla hvort annað með sögum að heiman… hún fer alltaf í jedúddagírinn þegar talið berst að öllum bastörðunum á Íslandi!

*

Á leiðinni heim í strætó áðan sat ég annars á milli konu sem var svo mikilvæg að hún þurfti að vera talandi í tvo gemsa í einu og kalls sem fannst ekkert eðlilegra en að vera að klippa neglurnar sínar í strætó(!). Fyrir framan okkur sat lágvaxinn maður með pósthúsrautt hár og 9 eyrnarlokka. Stórborgin er yndisleg.

Sjónarhóll síðuhaldara

Reiður!Síðuhaldari er viðmælandi Fréttablaðsins í dálkinum “Sjónarhóll” í dag. Ég beið spenntur eftir að sjá hvaða fyrirsögn viðtalið yrði undir og varð talsvert létt þegar ég sá hina meinlausu niðurstöðu – “Líst nokkuð vel á Oygard”.

Síðast þegar undirritaður var viðmælandi blaðsins þá var niðurstaðan öllu verri – “Reiður”(!).

Familíunni minni – og sérstaklega bróður mínum – þótti það alveg óheyrilega fyndið og ætlaði aldrei að hætta að japla á því!

Þetta tókst þó öllu betur – mæli auðvitað með því við lesendur Aggagaggsins að þeir kíki á stöffið.

The Swingle Singers

Francesco, félagi minn hérna á vistinni úti, kynnti mig nýlega fyrir snilldargrúppunni The Swingle Singers. Þetta er semsagt acapella sönghópur sem hefur verið starfræktur frá sjöunda áratugnum (með mismunandi söngvurum vitanlega) og er mest megnis í því að syngja (eða tóna) klassíska tónlist og fleira í þeim dúr. Ég er gjörsamlega orðinn húkkt á þessu!

Heyrum hljóðbrot:

Þeim sem hafa áhuga á að heyra í grúppunni bendi ég á www.deezer.com, sem er frönsk tónlistarsíða svipuð last.fm. Maður þarf reyndar að skrá sig (sem tekur lágmarkstíma), en fær í staðinn aðgang að yfir 200 lögum með Swingle Singers… og auðvitað fullt af annarri tónlist.

Tjékkit!

Þrepaskipt skattkerfi og ofurlaun

Árni Helgason, framkvæmdastjóri þingflokks sjálfstæðismanna, bloggaði um daginn um nýlegar hugmyndir um að taka upp þrepaskipt skattkerfi. Þeir sem tala fyrir slíku kerfi gera það gjarnan með sanngirnisrökum – það er að segja, að þeir sem hafi meira á milli handanna beri að borgi hlutfallslega meira til samneyslunnar en aðrir. Árni kemur með hin klassísku rök íhaldsmanna gegn slíkum hugmyndum – hærri jaðarskattur (sem þrepaskipt skattkerfi veldur á þá sem eru með háar tekjur) er vinnuletjandi og það er hætta á að þrepaskiptingin flæki kerfið um of, með þeim afleiðingum að það verði ekki eins skilvirkt og ella.

Bæði sjónarhorn hafa sitthvað til síns máls. Að sjálfsögðu er eðlilegt að þeir sem hafa hærri tekjur greiði hlutfallslega hærri tekjuskatt enda er kerfið þannig þannig uppbyggt núna útaf persónuafslættinum. Einstaklingur með 200 þúsund krónur greiðir þannig mun lægra hlutfall tekna sinna í skatt, en einstaklingur með 800 þúsund krónur. Þeir sem tala fyrir þrepaskiptu skattkerfi vilja hins vegar að það sé meiri munur á skattprósentunum en er núna.

Það eru hins vegar takmörk fyrir því hversu langt er hægt að ganga í þessum efnum. Ef gengið er of langt mun kerfið vissulega verða flókið og vinnuletjandi og þar af leiðandi vinna gegn hagsmunum þeirra sem eru tekjulágir til lengri tíma litið. Færri unnar klukkustundir munu leiða til lægri þjóðarframleiðslu, minni peninga í ríkiskassann af sköttum og svo koll af kolli. Það sem skilur hópana tvo að er svo vitanlega matið á því hvar þessi mörk liggja – vinstrimenn telja vera svigrúm til að hækka skatta á þá tekjuhærri, en íhaldsmenn telja hámarkinu vera náð.

Daniel Hammermesh, hagfræðiprófessor við Texas-háskóla, bloggaði á Freakonomics-blogginu í gær um svipaða deilu sem er í farvatninu vestanhafs. Obama, hið bandaríska ígildi frjálslynds jafnaðarmanns, hefur heitið því að hækka skatta á þá sem hafa hæstar tekjur í Bandaríkjunum enda hefur ójöfnuður þar vaxið geigvænlega á síðastu áratugum. Íhaldsmenn þar vestra koma með áþekk mótrök og þeir íslensku: að hærri jaðarskattur á tekjuháa sé svo vinnuletjandi að hann gangi einfaldlega ekki upp.

Hammarmesh er hins vegar síður en svo að kaupa þau rök og telur að áhrifin munu vera smávægileg. Eða með hans eigin orðum:

Conservatives will surely argue that this will reduce incentives to work.

Give me a break: Nearly all the labor economics evidence suggests that labor supply elasticities are very low at the upper end of the wage distribution. The disincentive effects on work effort will be trivial.

Á komandi árum, þegar fyrirsjáanlegt er að hækka þurfi skatta til að borga fyrir sukktímabil frjálshyggjunnar á Íslandi, þá munu svona mál einmitt vera í brennideplinum. Hvernig á að hækka skatta? Á að skella flatri skattahækkun á alla? Eða er réttlátt að þeir sem eru með breiðari bök taki stærri hluta byrðanna á herðar sér?

Í slíkum debat dugar einfaldlega ekki að vísa í sömu hagfræðikreddurnar og komu okkur í þá stöðu sem við erum núna. Við hljótum að líta til landanna í kringum okkur og sjá hvað þau eru að gera. Annað er einfaldlega ekki boðlegt.

Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík

Ég kaus í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrr í dag. Átti nú ekki í teljandi vandræðum með að velja átta á listann minn, en hefði þó gjarnan viljað velja tíu. Það er enda hálfundarlegt að Samfylkingarfólk í Reykjavík fái bara að velja fjóra í hvort kjördæmi, þegar við fengum til dæmis fimm þingmenn í öðru Reykjavíkurkjördæminu síðast. Að öðru leyti finnst mér prófkjörsfyrirkomulagið alveg til fyrirmyndar. Sérstaklega er ég ánægður með það að geta kosið á netinu, enda staddur í Lundúnum og ekkert væntanlegur heim. Þetta hlýtur að vera það sem koma skal – ég get til að mynda alveg séð fyrir mér að flokkurinn geti leitað oftar til félagsmanna og spurt um ýmis álitaefni með þessu netfyrirkomulagi.

Að sjálfsögðu kaus ég svo Önnu Pála vinkonu í 5. sætið. Hvet alla sem eiga eftir að kjósa til að gera slíkt hið sama!

Þrátt fyrir að engir kynjakvótar væru í prófkjörinu þá fléttaðist listinn minn (alveg óvart!). Ég er raunar mjög andsnúinn notkun kynjakvóta í prófkjörum. Þó að þeir geti átt við í ákveðnum tilfellum þá er það sérlega ólýðræðislegt að taka þannig fram fyrir hendurnar á kjósendum. Kynjakvótinn hefur reyndar snúist upp í andhverfu sína í prófkjörum síðustu daga – held að það séu þrjú eða fjögur prófkjör komin þar sem karlar eru að græða á kvótanum! Það er náttúrulega algjör della. EF það er notast við kynjakvóta á annað borð þá eiga þeir bara að gilda í aðra áttina – meginmarkmið kynjakvótanna er að tryggja jafnrétti, ekki jafnstöðu. Þeir ættu því aldrei að geta gagnast því kyni sem er þegar með miklu sterkari stöðu.

Ég held reyndar að það fyrirkomulag sem er núna notast við í prófkjörum í Samfylkingunni sé frekar slæmt og bjóði að mörgu leyti upp á klúðurslega röðun á lista. Kjósendur setja sína fjóra til átta frambjóðendur á lista og prófkjörsmaskínan spýtir svo út úr sér einhverri heildarniðurstöðu, sem getur oft verið ansi klúðursleg. Kynjaskiptingin getur til dæmis verið kjánaleg, nú eða ef litið er til málefnanna, þá getur það vel gerst að það vanti ákveðið jafnvægi á listann.

Að þessu leyti finnst mér Framsóknarflokknum hafa tekist vel til. Veit reyndar ekki að hve miklu leyti Framsóknarmenn notast við þessa aðferð núna, en fyrir síðustu alþingiskosningar notuðust þeir talsvert við kjördæmisþingin til að velja á lista. Meginkosturinn við þá leið er að þar er kosið í eitt sæti í einu og því liggur fyrir hver verður í efsta sæti áður en kosið er í annað sætið og svo koll af kolli. Fólk er því meðvitað um það allan tímann hvernig samsetning listans verður og getur þannig komið í veg fyrir klúðurslega niðurstöðu. Nú þegar Samfylkingin er farin að nýta sér tæknina í jafnmiklum mæli og í þessu prófkjöri núna, þá getur maður alveg ímyndað sér að það sé hægt að sameina þetta tvennt. Það er að segja, að nýta sér netleiðina til að kjósa í eitt sæti í einu.

Eitt það mikilvægasta sem flokkar gera er að velja sér það fólk sem mun standa fyrir stefnu þess á opinberum vettvangi. Mér finnst ekkert að því að gefa sér aðeins meiri tíma í málið – velja einn í einu og fá fyrir vikið sterkara lið, sem er líklegast til sigurs.

Hrun heimskapitalismans

FTFinancial Times* birtir alveg hreint prýðusgóðan pistil um hrun heimskapitalismans og, um leið, dogmatískrar trúar á einfeldningslegar hagfræðikreddur sem tröllriðið hafa hinum vestræna heimi frá tímum Thatcher og Reagan. Það sem gerir þennan pistil merkilegri en ella, er að sá sem heldur á penna er Martin Wolf, einn aðalefnahagsmálaspekúlant blaðsins og þangað til nýlega, stækur stuðningsmaður hins frjálsa heimshagkerfis. Mæli klárlega með lestri pistilsins.

* Áður en ég kom til London sór ég þess dýran eið að byrja aldrei blogg á að tala um grein sem ég las í Financial Times. Jæja, svo bregðast krosstré, sem önnur tré!

Tög:

    Nýjustu ummælin

  • Margrét Rós um Ameríski háskólaboltinn (5):

    ég er ekki að ná utan um þessar tölur! Þetta er svaðalegt… Mikið er ég annars... (Skoða)
  • Agnar Freyr Helgason um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Þeir eru reyndar bara á haustin… en hey, við finnum örugglega eitthvað... (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Eru ekki alltaf leikir allt árið? Kannski dreg ég þig á leik þegar ég kem í heimsókn :) (Skoða)
  • Aggi um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Jújú, klappstýrur og allur pakkinn. Mæli tvímælalaust með því að skella sér á leik! (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (5):

    vá en spennandi! Voru ekki svona klappstýrur líka? Hvernig voru dansarnir? Oh mig... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar