Rakst á eftirfarandi tilvitnun í einni af greininni sem ég er að lesa fyrir þessa viku.
The increase in incomes of the top 1 percent of Americans from 2003 to 2005 exceeded the total income of the poorest 20 percent of Americans, data in a new report by the Congressional Budget Office shows.The poorest fifth of households had total income of $383.4 billion in 2005, while just the increase in income for the top 1 percent came to $524.8 billion, a figure 37 percent higher.
New York Times, December 15th 2007.
Þetta er svo svívirðilegt að maður þarf að lesa þetta tvisvar til að átta sig almennilega á þessu. Það væri athyglisvert að sjá sambærileg gögn fyrir Ísland.
Þá er geðveikistörn þessarar annar lokið. Þrjár ritgerðir á rétt rúmum tveim vikum, auk þess sem ég skellti frá mér Vefritsgrein um mikilvægi þess að standa vörð um Lánasjóð íslenskra námsmanna á þessum síðustu og verstu. Ritgerðirnar voru annars hver annarri áhugaverðari… Sú fyrsta fjallaði um áhrif kosningakerfa á endurdreifingu gæða (betri þýðing á redistribution?), önnur fjallaði um gagnrýni Hayek á miðstýrðan áætlunarbúskap og sú þriðja um hvort að sjálfstæði seðlabanka samrýmist lýðræði í grundvallaratriðum. Það er örlítil ritgerðarpása framundan núna, en ég verð hins vegar að nýta tímann vel. Er alveg á síðasta snúningi með að velja mér ritgerðarefni fyrir meistararitgerðina og þarf að einhenda mér í það. Seinni partinn í mars byrjar svo annað ritgerðarbrjálæði – þá hef ég reyndar rétt rúman mánuð til að gera fjórar ritgerðir. Svo hangir próflesturinn náttúrulega yfir manni eins og langar skuggi á köldum haustdegi.
*
Eftir að hafa setið sveittur við skriftir síðustu vikurnar hefur mig sárlega vantað útrás fyrir (takmarkaða) sköpunargáfu mína. Ég hef því endrum og eins flúið raunveruleikann og mixað nokkrar heimasíður á milli ritgerðanna. Fannst ekki annað tækt en að taka síðuna mína í gegn í leiðinni og held ég að það hafi bara tekist nokkuð vel. Útlitið er reyndar að mestu byggt á öðru útliti, en ég hef aðlagað það mínum þörfum – bætt við kvikmyndadómafídus, kóða fyrir Google Reader, athugasemdir og fleira smálegt.
Eins og alltaf er það svo klárlega stefnan að láta þessa síðu snúast frekar um innihald en form… við skulum sjá hvernig það gengur!