Fyrsta skákin

Fyrsta skákin mín og litla frænda. Eftir snarpa sóknarlotu, þar sem ég náði “þrusuforystu” að sögn Bjarna, sömdum við um jafntefli þegar stefndi í blóðugt endatafl.

Fyrsta skákin mín og litla frænda. Eftir snarpa sóknarlotu, þar sem ég náði “þrusuforystu” að sögn Bjarna, sömdum við um jafntefli þegar stefndi í blóðugt endatafl.
Fyrir tæpum þrem árum skrifaði ég þriggja greina bálk um verðtrygginguna (I, II & III), sem birtist á Vefritinu. Í greinunum komst ég að þeirri niðurstöðu að verðtryggingin sem slík væri ekki svo slæm, heldur væru slæm áhrif hennar einungis afleiðing óábyrgrar ríkisfjármálastefnu yfirvalda. Ég fullyrti meira að segja að hún væri góð fyrir alla hlutaðeigandi, að því gefnu að efnahagslegur stöðugleiki ríkti.
Í lok þriðju greinarinnar bætti ég svo eftirfarandi við:
Telji andstæðingar verðtryggingarinnar hana engu að síður slíka böl að ekki verði lifað með henni, væri þó mun skynsamlegra að þeir myndu beita sér fyrir því að t.a.m. Íbúðalánasjóður byði upp á óverðtryggð húsnæðislán til jafns við verðtryggð húsnæðislán í stað þess að leggja til blátt bann við verðtryggingunni(hér er þó ekki verið að mæla með því, eingöngu verið að benda á að það sé skynsamlegri kostur). Þannig gætu húsnæðiskaupendur sjálfir vegið og metið, út frá eigin forsendum, hvor kosturinn myndi henta þeim betur.
Í umræðum leiðtoga stjórnmálaflokkanna á RÚV í gærkveldi nefndu tveir, ef ekki þrír, formenn stærstu flokkanna að þetta væri sú leið sem væri skynsamlegast að fara við að vinda ofan af víðtækum áhrifum verðtryggingarinnar hér á landi.
Loksins, loksins, eru ábyrgir stjórnmálamenn hættir að kvabba um afnám verðtryggingarinnar og farnir að horfa til þessarar mun raunhæfari og eðlilegari lausnar. Því hljóta allir góðir menn að fagna.
Ég er farinn að halda að enginn viti í raun og veru hvað ég er að læra þarna í Lundúnum. Mamma spurði mig allavegana í gær hvað ég “yrði” eftir að ég væri búinn að ljúka þessu námi og pabbi var nokkuð sannfærður um að ég kæmi sterkur inn í fjármálaheiminn næsta haust.
Þetta eru foreldrar mínir, gott fólk.
Svo það sé á hreinu þá er ég að stúdera samanburðarstjórnmál með áherslu á efnahagsmál. Ekki hagfræði og hvað þá fjármálafræði. Viðfangsefni námsins er náttúrulega nátengt hagfræðinni, en sjónarhornið er allt annað.
Það snýst mun frekar um að greina hvers vegna hlutirnir eru eins og þeir eru, hvernig og hvers vegna þeir eru mismunandi á milli landa og hvaða lærdóm sé hægt að draga af því. Hvers vegna eru velferðarkerfi ríkja heimsins misstór? Hvers vegna er ójöfnuður meiri í sumum löndum en öðrum? Hvaða áhrif hafa kosningakerfi á endurdreifingu gæða? Hvaða áhrif hefur lýðræðið á kapitalisma og öfugt? Hvernig samrýmist sjálfstæður seðlabanka lýðræði? Er velferðarríkið dauðadæmt vegna hnattvæðingar?
Ég er ótrúlega sáttur við þetta nám. Svo sáttur raunar að ég er alvarlega að velta því fyrir mér að halda áfram og taka doktorinn.
En meira um það síðar. Þessa dagana kemst ekkert að nema að njóta þess að vera í fríi á Íslandi… sem er viiirkilega næs.