Varðandi námið
Ég er farinn að halda að enginn viti í raun og veru hvað ég er að læra þarna í Lundúnum. Mamma spurði mig allavegana í gær hvað ég “yrði” eftir að ég væri búinn að ljúka þessu námi og pabbi var nokkuð sannfærður um að ég kæmi sterkur inn í fjármálaheiminn næsta haust.
Þetta eru foreldrar mínir, gott fólk.
Svo það sé á hreinu þá er ég að stúdera samanburðarstjórnmál með áherslu á efnahagsmál. Ekki hagfræði og hvað þá fjármálafræði. Viðfangsefni námsins er náttúrulega nátengt hagfræðinni, en sjónarhornið er allt annað.
Það snýst mun frekar um að greina hvers vegna hlutirnir eru eins og þeir eru, hvernig og hvers vegna þeir eru mismunandi á milli landa og hvaða lærdóm sé hægt að draga af því. Hvers vegna eru velferðarkerfi ríkja heimsins misstór? Hvers vegna er ójöfnuður meiri í sumum löndum en öðrum? Hvaða áhrif hafa kosningakerfi á endurdreifingu gæða? Hvaða áhrif hefur lýðræðið á kapitalisma og öfugt? Hvernig samrýmist sjálfstæður seðlabanka lýðræði? Er velferðarríkið dauðadæmt vegna hnattvæðingar?
Ég er ótrúlega sáttur við þetta nám. Svo sáttur raunar að ég er alvarlega að velta því fyrir mér að halda áfram og taka doktorinn.
En meira um það síðar. Þessa dagana kemst ekkert að nema að njóta þess að vera í fríi á Íslandi… sem er viiirkilega næs.
Tengdar færslur
7 athugasemdir
-
Elín Sigrún ritar:
3. apríl 2009 @ 00:59Ég hef alltaf sagt fólki að þú sért í einhverju “samanburðar- stjórnmála eitthvað” þegar fólk spyr mig hvað þú sért að læra þarna úti…ég reyndar bæti við að þú eigir eftir að finna gott íslenskt orð yfir því það sem þú ert að læra…ég lít ekki út fyrir að hlusta en einhvernveginn sýgst þetta inn einhversstaðar hjá mér :D
-
Andri ritar:
3. apríl 2009 @ 09:45Og hvað verðuru þá þegar þú lýkur þessu námi? Kemuru sterkur inn í fjármálaheiminn í haust?
-
Guðrún Birna le Sage ritar:
3. apríl 2009 @ 15:48Þetta hljómar hrikalega skemmtilegt ;)
En velkominn heim, hlakka til að sjá þig í kvöld ;)
Kv. GB
-
Margrét Rós ritar:
6. apríl 2009 @ 13:40Fimm háskólapróf! :-)
En já þetta hljómar ekkert smá spennandi hjá þér Aggi. Mér finnst dr. fáránlega virðulegur status!!
Skemmtu þér vel á Íslandi… ertu til í að drekka eins og einn bjór fyrir mig á Ölinu… finnst pínu svekkjandi að koma ekkert yfir páskana.
Við hlökkum svo bara til að fá þig hingað í heimsókn sem fyrst. Svefnsófinn verður mættur í gestaherbergið eftir 5 vikur.
-
Aggi ritar:
7. apríl 2009 @ 01:56Ég stefni reyndar á að toppa Georg Bjarnfreðarson og ná sex háskólaprófum!
Annars er þrælsvekkjandi að hitta ykkur EÖE ekki yfir páskana… maður þarf klárlega að gera sér ferð til Svíþjóðar og hitta ykkur þegar skólinn verður búinn.
-
Lára Jónasar ritar:
26. maí 2009 @ 14:17en hvers vegna er ójöfnuður meiri í sumum ríkjum en öðrum?
-
AgnarFreyr ritar:
27. maí 2009 @ 00:30Þegar stórt er spurt…. Stutta svarið: Lönd þar sem verkamönnum hefur tekist að sameina krafta sína í víðtækum verkalýðsfélögum eru almennt mun jafnari en önnur lönd. Bæði virkar það beint í gegnum markaðinn, þar sem þau lönd eru gjarnan með ‘collective bargaining’ (íslenskan eitthvað að gleymast…) á milli aðila vinnumarkaðarins (ekki einstaklingssamningar semsagt) og sömuleiðis leiða sterk verkalýðsfélög yfirleitt til þess að sósíaldemókratískir flokkar hafi öflugt ‘base’ til að vinna með, sem leiðir til þess að ríkið er prógressífara í sinni stefnu. Það mætti svo telja fleiri þætti til… einstaklingar í löndum sem eru jafnari trúa því t.d. að jafnaði frekar en einstaklingar í ójöfnum löndum að árangur fólks í lífinu ræðst að talsverðu leyti af heppni (frekar en hæfni) og þar af leiðandi er þetta sjálfstyrkjandi mynstur – jöfn lönd halda áfram að vera jöfn og öfugt. Síðan eru til rannsóknir sem sýna að PR-kosningakerfi (hlutfallskerfi) leiði til jafnari dreifingu tekna en meirihlutaræði, af ástæðum sem mér finnast reyndar ekki mjög trúverðugar. En fylgnin er amk til staðar.
Ef þú vilt langa svarið, þá mæli ég með því að hitta mig síðla kvölds á Ölstofunni einhverntímann í sumar…

Jæja, þá hef ég innbyrt allt námsefni annarinnar á punktaformi í dag. 25 blaðsíður af þéttskrifuðum glósum, takk fyrir kærlega. Ekkert eftir nema að bíða eftir prófinu á morgun. Vilji...
Það verður seint hægt að stilla klukku eftir stopulum bloggfærslum mínum. Það er nokkuð ljóst. En hvað um það. Ég kem heim næsta föstudag. Og hlakka mikið til. Þetta hefur...
Vikan í Capitalism and Democracy kúrsinum mínum var tileinkuð viðfangsefninu “Redistribution to the rich”. Megininntakið var um það hvernig þeir efnuðu nota lýðræðislegar aðferðir til að efnast ennþá meira. Á...
Þá eru síðustu tímar annarinnar framundan á morgun. Annar þeirra verður sérlega áhugaverður – síðasti umræðutíminn í States and Markets. Síðustu tvær vikurnar höfum við verið að ræða um efnahagskreppur...