Kvöldið fyrir próf
Ég held að ég hafi aldrei nokkurn tímann eytt jafnmiklum tíma í lærdóm og ég hef gert síðan ég kom aftur hingað út til London um miðjan apríl… og hef ég þó ekki verið þekktur fyrir annað en að eyða drjúgum tíma yfir bókunum!
Afraksturinn af þeirri vinnu er að skila sér á blað þessa dagana - tók fyrsta prófið fyrir viku síðan, sem gekk mjög vel, og tek síðan fjögur próf á næstu átta dögum. Fyrst er það States & Markets á morgun, svo Politics and Policy in Great Britain á mánudaginn, Capitalism & Democracy á fimmtudaginn og loks Comparative Politics of Redistribution in Advanced Democracies á föstudaginn. Ég hlakka mikið til að klára þennan pakka og ekki síður að koma heim í íslensku sumarsólina.
Hef annars haft það fyrir sið allar götur síðan í menntaskóla að taka mér frí frá lestri kvöldið fyrir próf - slappa frekar bara af og koma mér í rétt hugarástand fyrir prófið. Maður er búinn að troða öllu sem hægt er í kollinn á sér, svo þetta snýst bara um að ná því öllu á blað á þeim skamma tíma sem maður hefur… og þá skiptir máli að vera úthvíldur og ferskur.
Í þetta skiptið skelltum við okkur nokkur á íþróttapöbb hérna í nágrenninu og áttum góðar stundir. Ég tók tvo leiki í keilu (127 og 123) og varð svo frægur að spila borðtennis við fimmtánfaldan(!) Noregsmeistara í þeirri ágætu íþrótt! Hafði ekki hugmynd um að Fred, sem býr gegn mér hérna á vistinni, hefði þetta á ferilskránni… Hann tjáði mér reyndar í þokkabót að hann hefði þrívegis att kappi við Gumma Stephenssen í keppni og alltaf haft betur.
Það þarf auðvitað ekki að taka það fram að þegar ég loksins náði stigi á hann sleit ég leiknum snarlega og lýsti sjálfan mig sigurvegara…
5 ummæli við “Kvöldið fyrir próf”
Skilja eftir svar
Aggagaggið hvetur lesendur sýna til að skella andlitsmynd af sér inn á Gravatar. Sú mynd birtist síðan alls staðar þar sem viðkomandi gerir athugasemd - til dæmis hér að ofan.
12. júní 2009 kl. 16:24
Blessaður gamli.
Ánægður með þessi skrif þín. Til fyrirmyndar.
Gamli
12. júní 2009 kl. 17:23
Kærar þakkir, Gamli. Það hvetur mann áfram að fá athugasemdir.
Þess má annars geta að fyrir prófið í dag fékk ég lagið “Geiri spæs” á heilann og söng vel valdar línur úr því.
13. júní 2009 kl. 15:34
Sæll bróðir.
Ég vil bara óska þér góðs gengis í öllum þessum lestri en að sjáflsögðu veit maður að þú verður með topp einkunnir eins og alltaf.
Hvenær ertu alveg búinn í prófunum? og hvenær færðu svo að vita hve árangur þinn var?
Kveðja
Þín systir í eilífðar sumarfríi
14. júní 2009 kl. 01:42
Takk fyrir það Anna Herdís Eiríksdóttir!
Prófin klárast annars næsta föstudag - niðurstöðurnar koma svo ekki fyrr en seint seint í haust.
Vona annars að þú njótir sumarfrísins!
20. júní 2009 kl. 22:20
Oj þetta var sko ekki gaman að lesa að vera i eilífðri sumarfríi! Hvenær á svo að koma heim elsku eini bróðir minn??Það er ömurlegt að eiga bara systur á landinu!! :( Mig langar að fá brósa heim!