Agnar á FacebookSíðuhaldari heitir Agnar Freyr og er 27 ára Reykvíkingur. Hann útskrifaðist með B.Sc.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands vorið 2006 og M.Sc.-gráðu í samanburðarstjórnmálum (með áherslu á efnahags- og velferðarmál) frá London School of Economics and Political Science í Bretlandi. Hann býr í Reykjavík, ólst upp í Breiðholtinu og á ættir að rekja til Eskifjarðar og Hornafjarðar.

Síðuhaldari hefur mikinn áhuga á kvikmyndum (góðum jafnt sem slæmum), ljósmyndun, sögu, stjórnmálum, efnahagsmálum, fótbolta, Manchester United, handbolta, tennis og óþörfum fróðleik. Hann átti ennfremur þátt í að stofna Vefritið.

Síðuhaldari hefur helst unnið sér það til frægðar að verða fjórfaldur skólaskákmeistari, rita fimm bækur um knattspyrnu, vera ósigrandi í ,,Atomic” með Blondie í Singstar og að steikja eitt sinn eitt þúsund hamborgara á innan við 90 mínútum. Hægt er að hafa samband við hann í gegnum tölvupóstfangið ahelgason (hjá) gmail.com eða msnið aggiflinki (hjá) hotmail.com.

Á agnarfreyr.com bloggar umræddur Agnar Freyr um lífið og tilveruna, safnar saman greinum sem hann hefur skrifað á öðrum vettvangi, birtir tengla á síður sem honum finnast áhugaverðar og eys úr kvikmyndaviskubrunni sínum.

Síðan fór í loftið 24. júlí 2007, en eldri færslur voru færðar af fyrri bloggum höfundar, sem ná allt aftur til ársins 2003. Þar sem það hefði verið hrikalega tímafrekt að flytja einnig yfir komment var því oftast sleppt, nema þegar sérstakt tilefni var til þess.

Síðan er knúin áfram af Wordpress-vefumsjónarkerfinu (sem er hreint út sagt frábært) og hýst hjá Go Daddy, en útlit síðunnar er byggt á Charade-hönnum CSSRockstars.

Síðan nýtur sín best í Firefox-vafranum með 1280×1024 upplausn.