Efnisflokkur: Almennt þvaður

Hótel Mamma

Það er vægast sagt afar hamlandi að hafa ekki aðgang að internetinu á Hótel Mömmu. Maður er eins og kálfur að vori í hvert skipti sem maður kemst nálægt nettengdri tölvu og flettir í gegnum póstinn, facebook og fleira eins og óður maður væri. Bloggið hefur hins vegar fengið að sitja á hakanum, sem er miður enda er ég nýkominn úr ævintýralegri útlandaferð. Spurning um að planta sér á eitthvert netkaffihús fljótlega og reifa það helsta…

Síðbúin áramótafærsla

Jæja, þá er komið nýtt ár, með nýjum tækifærum og áskorunum.

Heilt yfir var síðasta ár alveg ágætt hjá mér, þó að það hefði vissulega mátt vera betra að mörgu leyti. Það sem ég er þó sennilega sáttastur við er að hafa drifið mig aftur í skóla og að hafa loksins tekið einhverja meiriháttar ákvörðun um hvað ég vilji virkilega gera á næstu misserum og árum. Meira um það síðar.

Ég ferðaðist þrívegis til Bretlands á síðasta ári og hefði glaður viljað hafa farið víðar. Byrjaði í Glasgow fyrir akkúrat ári síðan í frábærum hópi, skellti mér svo með múttu til Manchester í apríl og eyddi frábæru síðdegi á Old Trafford, og fór loksins í vinnu- og skemmtiferð núna í haust til London. Samtals 12 dagar á erlendri grund, sem er afar slappur árangur. Þessu til viðbótar skellti ég mér í ógleymanlega raftingferð í Jökulsá með félögunum í ágúst og svo á slóðir forfeðranna á Austfjörðum með familíunni.

Þrátt fyrir háleit markmið um átak í líkamsræktarmálum varð mér lítið ágengt. Átti þó mína spretti á tennisvellinum, sem ég hyggst gera aftur næsta sumar. Spurning hvort maður finni sér ekki eitthvað praktískara hobbý yfir vetrarmánuðina… hugsanlega skvass. Og jú, svo væri það sennilega þjóðráð að fækka ferðum á KFC.

Pólitíkin tók heilmikinn tíma á árinu enda kosningaár. Ég varð formaður Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík í mars og tók þátt í frábærri kosningabaráttu sem skilaði flokknum mínum í ríkisstjórn. Samhliða því kynntist maður auðvitað fullt af nýju fólki og treysti böndin við aðra sem maður þekkti minna. Er mjög ánægður með hina nýju ríkisstjórn… og ekki síður nýja borgarstjórnarmeirihlutann!

Eitthvað varð nú minna úr öðrum áhugamálum á árinu – stefnan er klárlega sett á að verða duglegri við bókalestur og að taka fleiri ljósmyndir árið 2008.

Annars eru ansi miklar breytingar að verða hjá mér um áramótin. Ég hætti í fullu starfi núna í janúar og mun vera í ca. hálfu starfi fram á vor. Í staðinn verð ég talsvert meira í skólanum  og hlakka ég mikið til að takast á við þau verkefni.

Lesendum síðunnar óska ég gleðilegs árs – þó síðbúið sé – og þakka fyrir lesturinn.

Gleðileg jól!

Vinir nær og fjær – gleðileg jól!

Sínum augum lítur hver á gullið

Ég þyki nú alla jafna ágætis íslenskumaður. Undantekningin á því er klárlega á sviði málshátta og orðtaka enda virðist það frekar vera regla en undantekning hjá mér að blanda saman tveim slíkum eða klúðra þeim á einhvern hátt. Það er sérstaklega bagalegt þegar maður er að reyna að hljóma gáfulega…

Annars er alltaf gott að fá einhvers viskulegan til að lesa yfir ritgerðir hjá sér… og benda manni á að það er silfrið, en ekki gullið, sem er litið misjöfnum augum!

16. nóvember

Mikið finnst manni nú leiðinlegt að fólk sé almennt hætt að þéra. Svona í tilefni dagsins.

Af tveim vefritum

Það birtast ansi hreint góðar greinar á Vefritinu og Deiglunni í dag, þó ólíkar séu þær.

Á Vefritinu linkar Lára á frábæra hvatningarræðu Steve Jobs við útskrift í Stanford-háskólanum fyrir tveim árum og mæli ég tvímælalaust með því að fólk gefi sér tíma til að hlusta á ræðuna.

Á Deiglunni skrifar Pawel Bartoszek skemmtilegan pistil um fáránleika þess að fyrrverandi forsætisráðherra þjóðarinnar sé nú Seðlabankastjóri. Segir hann meðal annars:

Helmut Kohl er ekki sendiherra Þýskalands í Belgíu. Margaret Thatcher situr ekki í útvarpsráði BBC. Tony Blair er ekki heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn Gordon Brown. Vaclav Havel stýrir ekki neytendastofnun í Tékklandi og Nelson Mandela er ekki hæstaréttardómari í Suður-Afríku. Engin þessara manna er svo seðlabankastjóri í ríki sínu.

Ó, hve ég er sammála!

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar