Efnisflokkur: Almennt þvaður

Einsemdin

Það má svo sannarlega segja að stundum verði gamall Röskvuliði svolítið einmana í nýju vinnunni sinni… Ég tel okkur þó vera í stórsókn í bankanum… við erum alveg 5 eða eitthvað!

Stærri en Unnur Birna!

Makalaust hvað vefrit á borð við b2.is gerir fyrir svona auma heimasíðu eins og mína – ég er nú þegar kominn með tvöfalt fleiri heimsóknir á síðuna mína en síða fegurstu konu heims. Gaman að þessu!

Annars hef ég lítið að segja og leyfi manneskju dagsins í dag að eiga orðið: “Ég gæti skitið á sviðið og samt myndi ég vinna þessa keppni.”

Armæðublogg

Mér til mikillar armæðu reif ég buxurnar mínar í gærkvöldi. Það væri þó ekki í frásögur færandi nema útaf því að rifan er í klofinu og örugglega einir 15cm á lengd! Ég biðst afsökunar hafi ég sært blygðunarkennd grandalausra gesta Hverfisbarsins og Celtic Cross.

Annars opnaði ég skólabók í dag í fyrsta skiptið í mánuð. Blaðsíðurnar eru jafnþungar og áður og textinn örugglega ennþá ólesanlegri. Tókst þó að klára verkefni dagsins með sóma.

Og varðandi handknattleikslandsliðið: Ég hef spáð rétt fyrir um alla þrjá leiki Íslendinga til þessa. Það læðist að mér sá grunur að við náum að vinna Rússana á þriðjudaginn, en því miður held ég að við ráðum engan vegin við Króatana í kjölfarið. Noregsleikurinn er svo algjört spurningamerki – þeir eru sýnd veiði en ekki gefin.

Lifið heil, með rísandi sól í hjarta,
Ace

Bleh

Að fá sér beikonborgara í morgunmat var klárlega afleikur.
Mæli annars með því að fólk glöggvi sér á sigurlistanum í komandi Stúdentaráðskosningum á www.roskva.hi.is

1. færsla 2006

Það er mikilvægt að vera vel skipulagður á nýju ári – það er að minnsta kosti liður í því að standa við áramótaheitið mitt. Ég hef því fjárfest í hinni glæsilegu: “Framkvæmdabókin 2006″.

Að öðru leyti hef ég lítið farið út síðustu dagana, enda ríkir skelfing og ótti hér á Hverfisgötunni. “Engill dauðans” vakir yfir götunni, eins og DV orðaði það svo smekklega.

Kóngurinn lengi lifi!

kongurinn.jpg

Ég óska lesendum mínum nær og fjær farsældar á nýju ári og þakka þeim fyrir lesturinn. Yfir og út þangað til 2006.

    Nýjustu ummælin

  • Agnar Freyr Helgason um Ameríski háskólaboltinn (4):

    Þeir eru reyndar bara á haustin… en hey, við finnum örugglega eitthvað... (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (4):

    Eru ekki alltaf leikir allt árið? Kannski dreg ég þig á leik þegar ég kem í heimsókn :) (Skoða)
  • Aggi um Ameríski háskólaboltinn (4):

    Jújú, klappstýrur og allur pakkinn. Mæli tvímælalaust með því að skella sér á leik! (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (4):

    vá en spennandi! Voru ekki svona klappstýrur líka? Hvernig voru dansarnir? Oh mig... (Skoða)
  • Halldór Elías Guðmundsson um Mættur til C-bus! (6):

    Velkomin í bæinn, hafandi búid hér í næstum 5 ár er tér velkomid ad hafa... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar