Efnisflokkur: Almennt þvaður

Gagnvirkt blogg

Það fer ekki mikið fyrir kommentum við færslur mínar í þessum mánuði. Miðað við vefmælingartólin sem ég greiði fúlgur fjár fyrir koma þó að jafnaði um 40 “unique visitors” á hverjum degi og valda um 50-60 “page hits”. Í ljósi þessa talna get ég ekki annað en dregið þá ályktun að það sé litlu sem engu að bæta við færslurnar mínar – þær eru einfaldlega fullkomnar eins og þær standa og lesendur draga þá ályktun að athugasemd frá þeim myndi virka hjákátleg við hlið slíks meistaraverks.
Eintalið verður þó leiðigjarnt til lengdar og hef ég í þeirri viðleitni ákveðið að skella inn einni gagnvirkri færslu, en neðangreindur leikur ku vera það heitasta á netinu síðan “klukkin” fóru eins og eldur um sinu netheimsins. Ég hef þó reynt að draga eins og frekast er hægt úr gelgjuskap og setja smá edge í þetta.
Framkvæmdin er einföld, þú skráir einfaldlega nafn þitt í komments, og bíður svo í ofvæni eftir svari frá mér við neðangreindum spurningum.

1. Ég segi þér frá fyrstu ljósu minningunni minni af þér.
2. Ég segi þér hvaða kvikmynd minnir mig á þig.
3. Ég segi þér hvaða bíll minnir mig á þig.
4. Ég segi þér hvar þú verður eftir 10 ár.
5. Ég spyr þig að einhverju sem mig dauðlangar að vita.

Tímamót

Ég stend á ansi ljúfsárum tímamótum þessa dagana – er að flytja úr Strandaselinu eftir tæplega 23ja ára dvöl þar… Get ekki sagt annað en að það sé skrýtið. Hlakka nú engu að síður mjög mikið til að komast í siðmenninguna í 101…

En já, þetta í bland við kommentaleysi og prófalestur mun sennilega valda því að ég blogga ekki mikið á næstunni.

Lifið heil og gangi ykkur vel í þeim verkefnum sem þið takið ykkur fyrir hendur á næstu vikum. Yfir og út.

Jájá

Helgin var ágæt. Ég kláraði hana með tilraun á múttu – stillti klukkuna á 6.59 í gærkvöldi. Það gerðist ekkert… mjög áhugavert, mjög svo.

Annars rakst ég einhvers staðar á eftirfarandi orð Dwight Eisenhowers, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna… “Every gun that is made, every warship launched, every rocket fired, signifies in the final sense a theft from those who hunger and are not fed, those who are cold and are not clothed.”

Góð pæling…

P.S. Gleymdi víst að minnast á það að ég tók þátt í skákmóti Ökonomíu fyrir rúmri viku síðan… Ég vann allar skákirnar. Síðan var mikill bjór drukkinn. End of story.

Ég hef verið klukkaður

Þrátt fyrir að mig gruni sterklega að þetta æði hafi byrjað á www.folk.is/gelgjan90 þá ætla ég nú samt að láta slag standa og verða við klukkinu…here goes:

1) Þegar ég var yngri langaði mig mest af öllu að verða geimfari. Ég ól þann draum innra með mér… þangað til að ég komst að því að geimfarar mega ekki vera yfir 180 cm. Þá var sá draumur úti.

2) Í gegnum tíðina hef ég æft badminton, körfubolta, handbolta, fótbolta og skák. Sem markmaður náði ég ágætum árangri bæði í fótboltanum og handboltanum, en ég var samt sigursælastur í skákinni… ég er hvorki meira né minna en fjórfaldur skólameistari í skák.

3) Ég hef gefið út fjórar bækur um knattspyrnu með bróður mínum og sú fimmta er á leiðinni. “Chelsea 1905 – 2005: Frá feita Willy til Eiðs Smára Guðjohnsen”… check it out.

4) Uppáhaldspersónan mín í Simpsons hefur alltaf verið Mr. Burns… hann er bara svo æðislegur karakter.

5) Ég á afar nútímalega fjölskyldu: Þrjár hálfsystur, einn hálfbróður og eina fóstursystur. Síðan er pabbi minn kominn á eftirlaun… og pabbi hans var flugmaður í bandaríska hernum… ekki amalegt það!

Jæja, ég vona að þetta hafi verið fullnægjandi. Mér skilst að ég eigi að halda klukkinu gangandi og hyggst ég gera það með nýstárlegum hætti… ég klukka eftirfarandi fólk og hvet það um leið til að byrja að blogga: Anna Pála, Eva, Maggi Már, Láru Jónasar og Tinnu Mjöll.

Megi Guð vera með ykkur.

Veikindi

Það er gífurlega leiðinlegt að vera veikur.
Dagskrá dagsins í dag:
9.30 Vaknað sökum ógetu til að sofa lengur.
9.33 – 22:27 Horfði á sjónvarp og skoðaði netheima. Inná milli fékk ég mér 6 parkódín; át kex, kex, kex og pizzu; og lagði mig um miðjan dag.

Ég bíð í ofvæni eftir því að sjá hvað ég muni gera þangað til ég sofna…

Ástin er yndisleg

Ég var í Árbæjarlauginni áðan. Það væri nú ekki í frásögur færandi nema útaf því að framhjá mér gengu viðkunnanleg eldri hjón þegar ég sat í heita pottinum. Maðurinn, sem hefur verið í kringum sjötugsaldurinn, sagði þá við konu sína (sem hefur greinilega verið í nýjum sundbol): “Já Guðrún, þessi sundbolur fer þér miklu betur en þessi gamli”… síðan kleip hann hana létt í rassinn.

Mér fannst þetta bara svo yndislegt að ég varð að deila þessu með ykkur.

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (3):

    Eru ekki alltaf leikir allt árið? Kannski dreg ég þig á leik þegar ég kem í heimsókn :) (Skoða)
  • Aggi um Ameríski háskólaboltinn (3):

    Jújú, klappstýrur og allur pakkinn. Mæli tvímælalaust með því að skella sér á leik! (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (3):

    vá en spennandi! Voru ekki svona klappstýrur líka? Hvernig voru dansarnir? Oh mig... (Skoða)
  • Halldór Elías Guðmundsson um Mættur til C-bus! (6):

    Velkomin í bæinn, hafandi búid hér í næstum 5 ár er tér velkomid ad hafa... (Skoða)
  • Elín Sigrún um Mættur til C-bus! (6):

    Ok it’s noted air í stað express! En átti ekki Mel Gibson líka að hafa lamið konuna... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar