Efnisflokkur: Bækur

Bókalestur 2006

Ferðafélagi Jens gerir grein fyrir þeim bókum sem hann og frúin lásu á síðasta ári á síðunni sinni. Alveg fannst mér þetta afbragðsframtak hjá þeim gamla og fór ég að spögglera í kjölfarið hvað ég hefði nú verið duglegur við lesturinn undanfarna 12 mánuði. Taldi ég saman heilar 14 bækur sem ég las mér til yndisauka á árinu, sem er klárlega sjálfsmet. Þær voru annars, í engri sérstaktri röð (og án myndskreytinga):

Stjórnmál 

  • Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason
  • Valdatafl í Valhöll eftir Anders Hansen og Hrein Loftsson
  • Löglegt en siðlaust (ævisaga Vilmundar Gylfasonar) eftir Jón Orm Halldórsson
  • Stelpan frá Stokkseyri (ævisaga Margrétar Frímannsdóttur) eftir Þórunni Hrefnu Sigurjónsdóttur

Hagfræði 

  • Framtíðin er annað land eftir Þorvald Gylfason
  • Naked Economics – Undressing the Dismal Science eftir Charles Wheelan
  • Freakonomics – A Rogue Economist Explores the Hidden Side of Everything  eftir Steven D. Levitt og Stephen J. Dubner
  • The New Finance eftir Robert A. Haugen
  • Butterfly Economics eftir Paul Ormerod

Skáldsögur

  • Mýrin eftir Andrés Indriðason
  • Fífl dagsins eftir Þorstein Guðmundsson
  • Hr. Alheimur eftir Hallgrím Helgason

Annað

  • The Making of a Poker Player eftir Matt Matros
  • Í grófum dráttur eftir Halldór Baldursson

Þetta er nottla eftir minni, svo vel má vera að ég hafi gleymt einni eða tveim. Annars stefni ég klárlega á meira bókalestur á þessu ári og hef sett mér það markmið að klára a.m.k. 15 bækur árið 2007… og hananú!

Ævisaga Möggu Frímanns

stelpanfrastokkseyriBróðir minn var að gefa út Stelpuna frá Stokkseyri, ævisögu Margrétar Frímannsdóttur, nú í vikunni. Eins og venjan er fékk ég auðvitað eitt af fyrstu eintökunum mér til ánægju og yndisauka, og get fullyrt að ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Kaflarnir um formannskjörið í Alþýðubandalaginu 1995 og stofnun Samfylkingarinnar eru virkilega minnisstæðir, enda margt forvitnilegt sem kemur fram sem amk ég hef ekki áður vitað. Bróðir minn hefur annars gerst svo tæknilegur að birta brot úr bókinni á netinu – tjétjétjékkitt -> holar.blog.is

Barkakýli úr tré

Var að glugga í nýju ljóðabókina hans Þorsteins Guðmundsson, sem er alveg hreint prýðilega góð. Baksíðutextinn finnst mér sérlega góður, en hann hljómar svo:

Barkakýli úr tré inniheldur yfir 100 ljóð eftir Þorstein Guðmundsson. Hvert ljóð skiptist í nokkrar línur, hver lína skiptist í nokkur orð og hvert orð skiptist í nokkra stafi. Þetta eru stafir sem allir Íslendingar ættu að kannast við. A, b, p og svo framvegis.

    Nýjustu ummælin

  • Margrét Rós um Ameríski háskólaboltinn (5):

    ég er ekki að ná utan um þessar tölur! Þetta er svaðalegt… Mikið er ég annars... (Skoða)
  • Agnar Freyr Helgason um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Þeir eru reyndar bara á haustin… en hey, við finnum örugglega eitthvað... (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Eru ekki alltaf leikir allt árið? Kannski dreg ég þig á leik þegar ég kem í heimsókn :) (Skoða)
  • Aggi um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Jújú, klappstýrur og allur pakkinn. Mæli tvímælalaust með því að skella sér á leik! (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (5):

    vá en spennandi! Voru ekki svona klappstýrur líka? Hvernig voru dansarnir? Oh mig... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar