Efnisflokkur: Byrjaður að blogga aftur

Sumarið, haustið, mátturinn og dýrðin

Eftir rúmlega árshlé er maður mættur úr bloggdvala. Raunar er ég að taka nokkuð forskot á sæluna – ætlaði ekki að taka bloggskóna af hillunni fyrr en með haustinu, en eitt leiddi af öðru og BAMM, hér er ég að skrifa þessar línur!

Ég mun nú sennilega leyfa þessu að vera með rólegra móti í sumar, en ætla svo að reyna eftir bestu getu að vera duglegur við bloggið frá og með ágústmánuði, enda er stefnan sett á Bandaríki Norður-Ameríku seinni part þess mánaðar.

,,Ha?” gæti nú einhver hváð. ,,Til Bandaríkjanna!?”

Þá er því til að svara að síðuhaldari er á leiðinni í doktorsnám í stjórnmálafræði við Ohio State University í hinu mikla miðfylki Ohio í Bandaríkjunum. Þar mun maður væntanlega ala manninn næstu 4-5 árin, ef allt gengur að óskum.

Hví OSU (eins og við verðandi nemendur skólans köllum hann) en ekki einhver annar skóli? Jú, stjórnmálafræðideildin þar er nokkuð hátt metin, deildin er með breiðan hóp kennara á mínu sviði og styrkurinn sem ég fæ þaðan er ljómandi góður. Hví ekki segi ég nú bara!

Ég reikna annars með að nýta bloggið í að koma með digurbarkalegar og yfirlætisfullar athugasemdir um þjóðmál (minni heittelskuðu heiðbláu kærustu væntanlega til mikillar armæðu), deila áhugaverðum hugmyndum sem ég finn í fræðilitteratúrnum með lesendum, býsnast yfir lífinu á jaðri biblíubeltisins og tjá mig um annað það sem kann að vekja athygli mína hverju sinni – hvort sem það er fótbolti, kvikmyndir, hamborgarar, slappur húmor eða eitthvað allt annað.

Stay tuned, y’alls!

Það hlaut að koma að því: Byrjaður að blogga aftur XXIV

4606951165_9d5135f268_b

Meira síðar.

Þögnin rofin

…og það verður ekki aftur snúið!

Taka tólf

Jæja, eins og glöggir sjá er ég byrjaður að blogga aftur… enn og aftur. Frá því að ég stofnaði mitt fyrsta blogg fyrir þrem árum síðan (strandasel5.tk) hef ég gert æði margar tilraunir til að halda úti bloggi, án fullnægjandi árangurs.

Og hér með er auðmjúkri tilraun númer tólf (á að giska) ýtt úr vör. Lesendum er ráðlagt að bindast óreglulegum færslum höfundar ekki of sterkum böndum, þar sem hann er hverfull og dyntóttur.

Að því sögðu, bið ég ykkur vel að njóta.

Velkominn heim

Innreið mín í vefheima er hafin…. á ný. Megi hún vera farsæl.

Byrjaður aftur

Jæja… nú byrjar maður aftur með bloggið! Ég er einn af þeim sem byrjar að blogga af krafti og gefst svo upp eftir mánuð. Þetta mynstur er reyndar á fleiri stöðum í lífinu mínu. Ef ég byrja til dæmis í líkamsrækt eða að borða hollan mat þá gefst ég upp á mánuði… alveg stórmerkilegt!

Þess vegna mun ég prófa að iðka ný fræði í blogginu. Þegar maður ætlar til dæmis að léttast aðeins þá ku það vera betra að taka lítil skref heldur en að taka svakaleg megrunarstökk. Ætla að prófa það til tilbreytingar.

Því lýkur þessari bloggfærslu hér með.

P.S. How about those Redsocks?

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar