Efnisflokkur: Ferðalög

Kominn

Á KárahnjúkumJæja, þá er fínni ferð um gjörvallt Austurlandið lokið. Fórum víða – heimsóttum Viðborð, Djúpavog, Breiðdal, Reyðarfjörð, Eskifjörð, Borgarfjörð eystri, Hollormsstaði, Atlavík, Lagarfljótið, Skriðuklaustur, Kárahnjúka, Egilsstaði og Tókastaði. Skemmtilegast var auðvitað að rölta um Eskifjörð með múttu en hún átti einmitt heima þar í ein fjörutíu ár eða svo.

Austfirðir 2007

EskifjörðurÉg er á leiðinni austur á land snemma í fyrramálið með múttu, bróa, mágkonunni, Halldóru frænku og Bjarna frænda. Við verðum í nokkra daga – gistum í Breiðdal, á Egilsstöðum og svo smellum við okkur í sumarbústað. Þau ætla síðan að klára hringinn, en ég flýg heim frá Egilsstöðum á sunnudaginn (flugmiðinn var á 3.500 kall, sem er verð sem er mér afar þóknanlegt!).

Híbýli feðrannaÞetta er annars í fyrsta sinn síðan ’95 sem ég fer eitthvað austar en Höfn. Við ætlum einmitt að stoppa þar og virða aðeins betur fyrir okkur húsið sem afi gamli (pabbi pabba) byggði í kringum 1930 og hefur staðið autt frá því að pabbafjölskylda flutti þaðan áratug síðar. Ég hef nokkrum sinnum komið þar fyrir utan (enda stendur það alveg við þjóðveginn), en ætla að hætta mér inn í þetta skiptið og skoða mig betur um.

Bjarni á 4ra ára afmælinuSkemmtilegast verður annars að fara með mömmu og bróa til Eskifjarðar, en familían átti einmitt heima þar fram til 1980. Hlakka mikið til að fá guided tour um þorpið – hvar hvað gerðist og sa videre.

Bjarni frændi, sem verður 5 ára í sumar, verður örugglega líka hress félagsskapur. Hann er keppnismaður mikill eins og frændi sinn og finnst ekkert verra en að tapa (ditto)… Borðaði einmitt kvöldmat með honum í gær og hann tilkynnti mér, þegar ég var nýbúinn að fá mér ábót og hann alveg að klára af disknum sínum að við værum í keppni um hver væri fljótari að klára af disknum. 10 sekúndum síðar hrósaði hann sigri og var óspar á að núa salti í sárin. Gleðin er hins vegar ekki alveg eins mikil þegar hann tapar – þá blótar hann í sand og ösku og endurtekur ,,Damn it” í sífellu!

UJ í Húsafelli

Sirkusþrautir í morgunsáriðUngir jafnaðarmenn fjölmenntu í Húsafell á laugardaginn í árlega útilegu samtakanna. Það var mikið stuð – sungið, spilað, leikið, keppt, spurt og leitað, svo fátt eitt sé nefnt. Dömurnar að Norðan fá klárlega prik í kladdann fyrir frábæran ratleik (sem mitt lið vann) og ekki síðri spurningakeppni (sem mitt lið vann líka), en Kubbur (no comment) var svo sem ágætur líka.

Annars var hópurinn nokkuð lengi í gang eftir votviðri framan af kvöldi – þegar líða fór á nóttina var hins vegar allt slíkt gleymt. Fótboltinn fékk að rúlla (þar sem ég átti eina mögnuðustu innkomu seinni ára), undarlegar sirkusþrautir voru reyndar (sbr. mynd til hliðar) og Magnús Már Guðmundsson og fleiri gerðu hetjulegar tilraunir til að slæda með stæl.

Ég geri fastlega ráð fyrir að MMG birti myndir af hópleiknum á síðunni sinni von bráðar.

Hætturnar leynast víða

Á síðustu árum hef ég meðal annars ferðast til Bangkok, Sarajevo og Vilnius og aldrei lent í neinu… Bróðir minn, sem aldrei ferðast neitt, fer til Kaupmannahafnar og lendir í vopnuðu ráni.  Magnað.

Árangur áfram – ekkert stopp

Jæja, þá er maður kominn heim úr pílagrímsferðinni til Manchester Englands Englands. Ég og ferðafélaginn skemmtum okkar alveg konunglega, þó að úrslit leiksins (1-1) hefðu gjarnan mátt vera önnur. Það var alveg ólýsanleg tilfinning að koma loksins á Old Trafford og upplifa stemmninguna. Það var reyndar svoldið áberandi að við vorum í einhverri túristastúka þar sem söngurinn og gleðin var mestöll í öðrum stúkum vallarins – fyrir utan tvo Indónesa sem kölluðu “United, United” í kór á fimm mínútna fresti, þá var fólkið í stúkunni sem við vorum í álíka hávært og stuðningsmenn íslenska landsliðsins á Laugardalsvellinum…

Eftir á að hyggja voru það líka klárlega afglöp af katastrófískri stærð að fullnýta ekki heimildina á kreditkortinu, framlengja dvölina um tvo daga og skella sér á United – Milan, sem var í gærkvöldi. Það gleður þó vissulega að sama hvað bjátar á hjá þeim rauðu þá virðast þeir ætla að taka Framsóknina á þetta í vor – ,,árangur áfram – ekkert stopp”.

Leyfi síðan að fylgja einni af vellinum – þvílík gleði, þvílíkt stuð.

Erna og Aggi á Old Trafford

Sjáumst á vellinum!

manchester_united_fc_squad

Á stundum sem þessum saknar maður David May. Við mamma munum vafalaust skála fyrir honum á Bishops Blaize pöbbnum síðdegis á morgun áður en við röltum yfir á Old Trafford til að horfa á Manchester United taka nettan snúning á dansgólfinu við Middlesbro. Hógvært mat: 3-2 fyrir United.

Glory Glory Man United, As the Reds Go Marching On!

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar