Efnisflokkur: Greinar

ESB: Sannfæring eða klækjastjórnmál?

Síðar í dag munu þingmennirnir 63 við Austurvöll taka afstöðu til þess hvort Ísland eigi að sækja um aðild að Evrópusambandinu (ESB). Í grein dagsins fjallar Agnar Freyr Helgason um þessa veigamikla ákvörðun og varpar kastljósinu á þá þingmenn sem virðast ætla að gleypa eigin sannfæringu og stunda klækjastjórnmál af gamla skólanum í atkvæðagreiðslunni. Segir meðal annars: ,,Þeir þingmenn sem áður lýstu þessum skoðunum, en róa nú að því öllum árum að fella tillöguna um aðildarviðræður gera það einungis í einum tilgangi – til að koma höggi á ríkisstjórnina í þeirri von að hún riði til falls. Það er í senn sorglegt og ömurlegt að fylgjast með slíkum málatilbúnaði í einu stærsta hagsmunamáli þjóðarinnar, sem gæti þegar fram í sækir myndað grunn að endurreisn íslensks efnahags- og atvinnulífs.” (meira …)

Stöndum vörð um LÍN

Í grein dagsins fjallar Agnar Freyr Helgason um Lánasjóð íslenskra námsmanna og mikilvægi þess að standa vörð um hlutverk hans á komandi misserum. Í stað þess að láta fyrirsjáanlegan niðurskurð í ríkisbúskapnum bitna á starfsemi hans telur Agnar þvert á móti mikilvægt að efla hann enn frekar og tryggja þannig jöfn tækifæri allra til framhaldsmenntunnar. Segir meðal annars í greininni: ,,Mikið óhagræði felst í því fyrir námsmenn að fá lánin einungis greidd út tvisvar á ári, auk þess sem ýmsar gildar ástæður geta verið fyrir því að námsmaður skili ekki fullum námsárangri. Ýmsar leiðir er hægt að fara til að bæta úr þessu. Sú sem oftast hefur verið nefnd til sögunnar, greiðsla námslána mánaðarlega, hlýtur að vera kostur sem núverandi ríkisstjórn veltir alvarlega fyrir sér við endurskoðun úthlutunarreglnanna í vor. Slík breyting ætti aukinheldur ekki að krefjast mikilla fjárútláta.(meira …)

Tög:

Með 51 kosningastjóra á launum hjá Alþingi

Herra FrumvarpÍ grein dagsins fjallar Agnar Freyr Helgason um tillögur forsætisnefndar Alþingis sem miða að því að allir landsbyggðarþingmenn eigi rétt á aðstoðarmanni í þriðjungsstarfi. Segir meðal annars í greininni: ,,Það þarf ekki frjótt ímyndunarafl til að geta sér til um kröfur þingmanna eftir nokkur misseri: Hvorki gengur að deila starfsmanni né að hafa hann einungis í 33% starfi – eina vitið í stöðunni verður að hver þingmaður fái sinn persónulega aðstoðarmann. Og þá verða aðstoðarmennirnir orðnir 51.(meira …)

Margur er knár þótt hann sé smár (II)

Uppsprettur velgengninnarRannsóknir á sérstöðu smáríkja hafa færst í aukana á undanförnum áratugum samhliða fjölgun þeirra í alþjóðakerfinu. Hafa Íslendingar ekki látið sitt eftir liggja í þessum efnum, en Rannsóknarsetur um smáríki við Háskóla Íslands hefur skapað sér sess sem ein aðal miðstöð smáríkjarannsókna í heiminum. Eitt af viðfangsefnum smáríkjarannsókna snýr að hagsæld þeirra, sem merkilegt nokk er frekar mikil samanborið við stærri ríki heimsins. Í þessari seinni grein af tveim um efnahagslega stöðu smáríkja, fjallar Agnar Freyr Helgason um efnahagslega sérstöðu smáríkja og hvernig hún hefur stuðlað að velgengni þeirra á undanförnum áratugum. (meira …)

Margur er knár þótt hann sé smár (I)

FánarRannsóknir á sérstöðu smáríkja hafa færst í aukana á undanförnum áratugum samhliða fjölgun þeirra í alþjóðakerfinu. Hafa Íslendingar ekki látið sitt eftir liggja í þessum efnum, en Rannsóknarsetur um smáríki við Háskóla Íslands hefur skapað sér sess sem ein aðal miðstöð smáríkjarannsókna í heiminum. Eitt af viðfangsefnum smáríkjarannsókna snýr að hagsæld þeirra, sem merkilegt nokk er frekar mikil samanborið við stærri ríki heimsins. Í þessari fyrri grein af tveim um hagsæld smáríkja, fjallar Agnar Freyr Helgason um þau efnahagslegu vandamál sem smáríki standa frammi fyrir og góðan árangur þeirra þrátt fyrir þau. (meira …)

Reglugerðarfargan Evrópusambandsins

paperwork2.gifÍ umfjöllun helgarinnar tekur Agnar Freyr Helgason fyrir orðræðu fjölmiðla og stjórnmálamanna og áhrifin sem hún hefur á almenna umræður og viðhorf. Hann tekur orðræðu um meinta skrifræðisáráttu Evrópusambandsins og umfjöllun fjölmiðla um samræmt SI-kerfi í Bretlandi sem dæmi um það: Ósjaldan var svo sagt frá Steve Thorburn, sem hrinti af stað hreyfingunni sem síðar var kennd við metra-píslarvottana, en hann var dæmdur fyrir að selja grænmeti og ávexti eftir þyngd í pundum en ekki kílógrömmum. Undirstrikar það uppstillingu miðlanna á málinu: Litli almenni borgarinn gegn hinu bjúrókratíska stórveldi. (meira …)

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar