Efnisflokkur: Manchester 2007

Árangur áfram – ekkert stopp

Jæja, þá er maður kominn heim úr pílagrímsferðinni til Manchester Englands Englands. Ég og ferðafélaginn skemmtum okkar alveg konunglega, þó að úrslit leiksins (1-1) hefðu gjarnan mátt vera önnur. Það var alveg ólýsanleg tilfinning að koma loksins á Old Trafford og upplifa stemmninguna. Það var reyndar svoldið áberandi að við vorum í einhverri túristastúka þar sem söngurinn og gleðin var mestöll í öðrum stúkum vallarins – fyrir utan tvo Indónesa sem kölluðu “United, United” í kór á fimm mínútna fresti, þá var fólkið í stúkunni sem við vorum í álíka hávært og stuðningsmenn íslenska landsliðsins á Laugardalsvellinum…

Eftir á að hyggja voru það líka klárlega afglöp af katastrófískri stærð að fullnýta ekki heimildina á kreditkortinu, framlengja dvölina um tvo daga og skella sér á United – Milan, sem var í gærkvöldi. Það gleður þó vissulega að sama hvað bjátar á hjá þeim rauðu þá virðast þeir ætla að taka Framsóknina á þetta í vor – ,,árangur áfram – ekkert stopp”.

Leyfi síðan að fylgja einni af vellinum – þvílík gleði, þvílíkt stuð.

Erna og Aggi á Old Trafford

Sjáumst á vellinum!

manchester_united_fc_squad

Á stundum sem þessum saknar maður David May. Við mamma munum vafalaust skála fyrir honum á Bishops Blaize pöbbnum síðdegis á morgun áður en við röltum yfir á Old Trafford til að horfa á Manchester United taka nettan snúning á dansgólfinu við Middlesbro. Hógvært mat: 3-2 fyrir United.

Glory Glory Man United, As the Reds Go Marching On!

Fyrirheitna landið framundan

Old-TraffordJæja, þá hefur eitt stykki pílagrímsferð til Old Trafford verið sett á Visa/rað! Er stefnan sett á leik Manchester United og Middlesbrough 21. apríl nk., sem ku vera í fjórðu síðustu umferð ensku deildarkeppninnar. Eins og staðan er núna gæti maður bundið vonir við að mínir menn hampi titlinum akkúrat þarna, en í samræmi við hóflega bölsýni mína býst ég við að þetta verði frekar leikur upp á líf og dauða í baráttunni við Chelsea!

Og jú, hin knattspyrnusjúka og hálf-sjötuga móðir mín mun njóta leiksins með mér. Nú er bara að fara að æfa söngvana…

    Nýjustu ummælin

  • Margrét Rós um Ameríski háskólaboltinn (5):

    ég er ekki að ná utan um þessar tölur! Þetta er svaðalegt… Mikið er ég annars... (Skoða)
  • Agnar Freyr Helgason um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Þeir eru reyndar bara á haustin… en hey, við finnum örugglega eitthvað... (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Eru ekki alltaf leikir allt árið? Kannski dreg ég þig á leik þegar ég kem í heimsókn :) (Skoða)
  • Aggi um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Jújú, klappstýrur og allur pakkinn. Mæli tvímælalaust með því að skella sér á leik! (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (5):

    vá en spennandi! Voru ekki svona klappstýrur líka? Hvernig voru dansarnir? Oh mig... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar