Efnisflokkur: London 2008-09

Veðrið í London

londonved

Ég er sáttur.

Eitt og annað

fran_aggi_hugh

Jæja, þá er bara ein kennsluvika eftir í skólanum. Það er hálf undarlegt að hugsa til þess hversu hratt árið hefur liðið og ennþá undarlegra að hugsa til þess að þetta sé að verða búið. Altsvo, kennslustundirnar eru allavegana að verða búnar… ritgerðir og prófalestur bíða manns næstu 4-5 mánuðina.

*

Við settum annars á fót körfuboltaklúbb heimavistarinnar minnar í síðustu viku. Ætlum að hittast vikulega á nálægu gymmi og spila í tvo tíma í senn. Fyrsti tíminn var núna á miðvikudaginn og það var hressilega tekið á því. Hafandi ekki spilað körfubolta af einhverri alvöru í yfir 8 ár var maður nú frekar stórkallalegur. Þetta var nú samt furðufljótt að koma. Eins og í öðrum íþróttum (að skák undanskilinni) ferst mér talsvert betur að verjast en sækja og var það ekkert öðruvísi á miðvikudaginn.

*

aggi_and_rupalPáskapartý Passfield-búa var annars haldið í gærkvöldi. Skemmti mér afskaplega vel þar… og hefði vafalaust skemmt mér ennþá betur ef ég hefði ekki þurft að mæta í tíma klukkan 9 í morgun! Það var reyndar frekar fyndið að fylgjast með köppunum sem voru á körfuboltaæfingu daginn áður… það var óvenjumikill spýtukallabragur yfir þeim! Myndin efst í þessari færslu er þaðan… Er með Ítalanum Francesco og Bretanum Hugh á henni. Umgengst þá einna mest hérna á vistinni. Myndin hérna til hliðar er svo af mér og hinni indversku Rupal. Við skiptumst á að hneyksla hvort annað með sögum að heiman… hún fer alltaf í jedúddagírinn þegar talið berst að öllum bastörðunum á Íslandi!

*

Á leiðinni heim í strætó áðan sat ég annars á milli konu sem var svo mikilvæg að hún þurfti að vera talandi í tvo gemsa í einu og kalls sem fannst ekkert eðlilegra en að vera að klippa neglurnar sínar í strætó(!). Fyrir framan okkur sat lágvaxinn maður með pósthúsrautt hár og 9 eyrnarlokka. Stórborgin er yndisleg.

Holi

Holi

Indverska litahátíðin Holi var haldin hátíðleg hérna á heimavistinni fyrr í dag. Í stuttu máli snýst hún um að blanda litum saman við vatn og maka fólk út í gumsinu… síðan þegar fjör færist í leikinn þá fær maður heilu föturnar af köldu lituðu vatni yfir sig! Hef síðan rekist á nokkra í dag sem eiga erfitt með að ná litnum af húðinni… sjálfur er ég ennþá örlítið bleikur og gulur í framan, og með rautt handarfar á bakinu!

Ég er annars þessi bleiki á myndinni, annar frá vinstri í fremstu röðinni.

Ísland, fagra Ísland

Jæja, nú hefur gjörsamlega keyrt um þverbak. Ísland er aðhlátursefni eða varúðardæmi hvert sem maður kemur hérna í Bretlandi. Einn kennarinn minn er meira að segja farinn að sjá svo miklar aumur á mér, að hann er reglulega farinn að skjóta inn í að ástandið í Bretlandi sé nú ekki svo gott heldur og að Ísland muni vafalaust ná sér fljótt aftur á strik. Pólskur samnemandi minn greindi frá því að samkvæmt Pólverjunum sem væru að koma heim frá Íslandi væri allt farið til fjandans og í nýjasta Economist er Dublin kölluð Reykjavik-on-Liffey. Á forsíðu Independent í gær var svo fjallað um hrun Baugsveldisins, sem átti víst orðið tíundu hverja “High Street”-verslun. Þeir sem Independent ræddu við vildu meina að þetta hefði verið óumflýjanlegt, fjárfestingar Baugs hefðu margar verið mjög óskynsamar og viðskiptamódelið ósjálfbært. Þetta var semsagt ekki Davíð að kenna.

Allt þetta umtal særir fyrst og fremst þjóðarstoltið… sem er svo sem ekkert lítið eftir sigurför útrásarvíkinganna um allar trissur.

*

Lífið gengur annars sinn vanagang hérna á Passfield Hall. Er kominn með fasta lærdómsrútínu og loksins farinn að mæta aftur í ræktina. Hin ógurlega snjókoma í upphafi vikunnar riðlaði reyndar öllu prógramminu hjá mér þar sem skólinn og bókasafnið voru lokuð og strætóarnir gengu ekki í þokkabót. Íslendingurinn í manni fékk þó allavegana tækifæri til að hlæja eitthvað að Bretunum á móti…

Ritað í Reykjavik-on-Thames, kl. 15.40.

Pólitíkin heima

Lítill hópur af fólki hérna á vistinni er farinn að hópast í kringum mig yfir miðnæturteinu á hverju kvöldi og biðja um öppdeit á stöðunni á Íslandi. Og alltaf getur maður sagt eitthvað nýtt.

*

Eina vitið í stöðunni er að kjósa í vor. Hvort það verður í mars, apríl eða maí finnst mér ekki skipta meginmáli. Að mörgu leyti er það ágætt að kosningarnar verði jafnvel ekki fyrr en í maí enda gefst nýjum framboðum þá góður tími til að koma saman framboðslistum. Nýtt fólk ætti þá sömuleiðis að hafa rýmri tíma til að koma sér fyrir í gömlu flokkunum.

Ég er hins vegar afskaplega efins um að það sé rétt að slíta núverandi stjórnarsamstarfi ef orðið er ljóst að það eigi að kjósa í vor. Hverju það myndi skila að fá nýja stjórn í þrjá mánuði – hvort sem það yrði vinstri stjórn eða utanþingsstjórn – veit ég ekki. Nýir ráðherrar væru varla sestir í stólana sína áður en þeir þyrftu að víkja úr þeim aftur. Ég er kannski alltof pragmatískur, en verkefnin sem ríkisstjórnin er að fást við eru risavaxin og þola það ekki að vera sett í eitthvað tómarúm fram að kosningum. Finnst Guðríður hitta naglann algjörlega á höfuðið hvað það varðar.

Að halda því fram að með því að sitja áfram í stjórn með Sjálfstæðisflokknum sé ISG að setja Samfylkinguna framar þjóðinni eða völdin framar þjóðinni er í besta falli hlægilegt. Það er augljóst að enginn hefði hagnast meira á því að slíta ríkisstjórninni strax í haust heldur en Samfylkingin. Það hefði mátt bóka stóran kosningasigur og forsætisráðuneytið á silfurfati. Í staðinn mun Samfylkingin þurfa að berjast upp í móti og vafalaust eiga mjög erfitt með að fá fólk til liðs við sig á komandi mánuðum. Skýrara dæmi get ég ekki séð um að taka þjóðarhagsmuni framar flokkshagsmunum.

Það er svo annað mál að ný (vinstri)stjórn þarf heldur betur að taka til hendinni. Það á að vera löngu búið að hreinsa út í Seðlabankanum og FME. Og auðvitað eigum við að sækja um aðild að ESB og leggja samninginn í dóm þjóðarinnar.

Hitt og þetta

Mikilli vinnuhelgi lokið. Kláraði fyrstu metnu ritgerðina mína seint í gærkvöldi og skilaði henni inn í dag. Spurt var “Does Economic Development Lead to Democracy?” Undirritaður svaraði já, en að það þurfi engu að síður að kanna betur hver orsakatengslin þarna á milli séu.

*

Eins og ég bjóst við fannst mér Twentieth Century European Liberal Though vera áhugaverðastur af þeim kúrsum sem ég taldi upp um daginn. Þetta er í fyrsta sinn sem ég tek einhverja stjórnmálaheimspeki, svo ég er búinn að birgja mig upp af bókum sem heita “Introduction to Political Philosophy” og svipað. Er líka byrjaður að lesa Liberalism eftir Paul Kelly, sem kennir kúrsinn. Hef það á tilfinningunni að þetta verði örugglega erfiðasti kúrsinn minn, en að sama skapi meira en þess virði.

*

Ég veit ekki hversu margir fylgjast með kvikmyndadómasíðunni minni, en hún er svosem að miklu leyti gerð fyrir sjálfan mig. Hefur lengi langað að halda uppá hvaða myndir ég horfi á með kerfisbundnum hætti enda með gagnablæti í meiralagi. Hvað um það, ég hef verið einstaklega duglegur í janúarmánuði og mun örugglega halda áfram að vera það enda Óskarinn framundan. Mæli hiklaust með Slumdog Millionaire og Seven Pounds, sem kom mér virkilega á óvart. The Curious Case of Benjamin Button fannst mér hins vegar alls ekki eins góð og ég bjóst við.

*

Og svo er það náttúrulega þetta.

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar