Þá er skólinn byrjaður aftur og maður í óða önn að koma sér í námsgírinn. Sökum einstakrar leti í jólafríinu er ég reyndar ekki alveg búinn með verkefni haustannarinnar – þarf að skila tveim ritgerðum núna í janúar sem tengjast haustkúrsum, svo það verður nóg að gera hjá manni. Sú fyrri mun fjalla um hvort efnahagslegar framfarir stuðli að lýðræði, en sú síðari mun (sennilega) fjalla um að hvaða leyti – ef einhverju – efnahagsstefna Breta hafi breyst þegar New Labour tók við af Íhaldsflokknum 1997. Ég er hins vegar ekki einn í letibátnum – heyrist á flestum félögunum mínum í náminu að það séu vökunætur framundan!
Þá eru síðustu tímar annarinnar framundan á morgun. Annar þeirra verður sérlega áhugaverður – síðasti umræðutíminn í States and Markets. Síðustu tvær vikurnar höfum við verið að ræða um efnahagskreppur í sögulegu samhengi og sérstaklega hlutverk hins opinbera á slíkum tímum. Á morgun er umræðuefnið hins vegar núverandi heimskreppa, hvaða áhrif hún hefur í mismunandi löndum og hvernig stjórnvöld hafa brugðist við henni. Til að gefa fólki samanburðarvinkil á þetta voru allir beðnir um að taka saman 2ja blaðsíðna samantekt um eitt land og áhrif kreppunnar á það. Fólk var að sjálfsögðu beðið um að taka heimalandið sitt ef það hefði áhuga á því – ég skoraðist nú ekki undan því. Og ekki tókst mér að koma því frá mér sem ég ætlaði að segja á 2 síðum.. nei, ekkert minna en 5 blaðsíður gátu dugað! Aldrei að vita nema maður setjist niður og skelli saman grein um þetta í jólafríinu.
*
Svo virðist vera sem heitasta málið á campus sé Ungfrú LSE keppnin sem var haldin um daginn. Rakst á umfjöllun um málið í skólablaðinu The Beaver. Frekar grillað!
*
Hversu steiktur þarf maður annars að vera til að spyrja afgreiðslukonu hvort að það sé “threadless network” á svæðinu?
Það verður seint hægt að stilla klukku eftir stopulum bloggfærslum mínum. Það er nokkuð ljóst.
En hvað um það.
Ég kem heim næsta föstudag. Og hlakka mikið til. Þetta hefur verið mjög strembin önn – mikið að lesa og mikið að skrifa. Það verður því kærkomið að koma heim, hitta vini og fjölskyldu, borða á sig gat af smákökum og njóta jólanna.
Fékk mína fyrstu einkunn núna um helgina. Úr ritgerð í Innganginum að samanburðarstjórnmálum þar sem ég bar saman structural-aðferðir (íslenskt orð, hjálp!) og rational choice-aðferðir við að útskýra lýðræði – hvers vegna það er til staðar í sumum löndum, en ekki öðrum og við hvaða skilyrði lýðræði kemst á. Var í alvarlegu tímahraki þegar ég skrifaði ritgerðina og var nokkuð sáttur með að ná að skrifa 2000 (ensk) orð á innan við sólarhring. Matið á ritgerðinni kom því afar skemmtilega á óvart:
Very good paper, you have summarized each argument well, critiqued them thoroughly, and noted how they relate to one another. You write well and the paper is well structured. I would give it a solid merit.
Svo lengi sem ég man eftir mér hef ég orðið veikur í nóvember. Fæ í hálsinn, svo hita, byrja svo að hósta og er svo hóstandi næstu 2 vikurnar. Ekki breytist þetta hérna í London – hef verið meira og minna veikur síðustu vikuna. Þetta kemur á versta tíma enda þarf ég að skila þrem ritgerðum á næstu dögum.
*
Ég er þó ekki sá eini sem er veikur. Svona lagað dreifist nokkuð hratt þegar maður býr á heimavist þar sem samneyti á milli fólks er mikið. Fólk er orðið nokkuð sammála um að við á annarri hæðinni erum sérstaklega illa haldin og því er þetta kallað “Second floor flu” í Passfield. Fólk á þriðju hæðinni er hins vegar farið að fá fyrstu einkennin, svo eitthvað er þetta farið að breiða sig lengra út…
Einlægar áskoranir í athugasemdum við síðustu færslu hafa verið teknar til greina. Í fréttum er þetta helst…
*
Síðasta föstudag var hrekkjavökuball íbúanna á Passfield Hall. Eins og ég er nú gjarnan utan við mig var ég að sjálfsögðu ekki kominn með neinskonar búning um kvöldmatarleytið… mér tókst þó að redda því í tæka tíð. Tók myndavélina með mér, lét spjátrungslega og sagðist vera papparazzi kvöldsins. Það vakti kátínu.
Myndin hér að ofan er annars af hluta hópsins… Megan, í miðjunni, var verulega sannfærandi í hlutverki Söru Palin og restin snerist svoldið í kringum hana.
*
Restin af helginni fór annars mestmegnis í lestur og meiri lestur. Það er svínslega mikið af lesefni sett fyrir hvern tíma og ef maður ætlar að eiga einhvern sjens á góðri einkunn þá þarf maður að liggja vel yfir bókunum. Eins steikarpönnulegt og það er nú, þá eru heldur engin jólapróf hérna, þannig að verð ekki prófaður úr efninu sem ég er að fara yfir núna fyrr en í júní! Eins gott að glósa skipulega og skiljanlega.
*
Ég reif augun þó aðeins af bókunum í gærkvöldi og fór á Quantum of Solace ásamt Ítalanum Francesco og Bretanum Hugh. 007 var eins og við var að búast fínasta skemmtun, þó að ég verði nú að segja að af Bondmynd að vera, þá var hún rétt svo í meðallagi. Casino Royale var að minnsta kosti talsvert betri.
*
Kennararnir mínir eru ansi skemmtilegir. Annar þeirra, sem er breskur, fer með gamanmál í hverjum einasta tíma og uppsker alltaf roknahlátur. Hinn leggur sig fram um að koma myndböndum af youtube í sem flesta fyrirlestra hjá sér…. sérstakt dálæti hefur hann á pandabjörnum… þeir hafa komið við sögu í þrem af fimm fyrirlestrum hans í Inngangi að samanburðarstjórnmálum!
*
Er annars á leiðinni á kosningavöku niðrí skóla… það verður ekki leiðinlegt, get sko lofað því. Spái Obama landslæd sigri með, tjah, ca. 350 kjörmönnum. Jájájá!