Efnisflokkur: Kvikmyndir og sjónvarp
Upphaf (e. Inception)
Ég var að kaupa mér miða á forsýningu Inception, sem verður annað kvöld kl. 23 í Kringlubíói.
Ég held að mér sé óhætt að fullyrða að ég hef ekki verið jafnspenntur fyrir neinni mynd síðan ég sá síðustu mynd sama leikstjóra, The Dark Knight, fyrir akkúrat tveim árum. Leikstjórinn, Nolan, finnst mér eiginlega vera sá allra flottasti í Hollywood um þessar mundir og ekki skemmir fyrir að hann hefur raðar einvalaliði í kringum sig. Áhugamenn um kvikmyndatónlist þurfa til dæmis ekki að hlusta á nema hluta af stiklunni hér að neðan til að heyra að meistari Hans Zimmer sér um tónlistina í Inception. Svo eru leikararnir ekki af lakari gerðinni: Joseph Gordon-Levitt og Ellen Page eru bæði virkilega skemmtileg, og svo er ég farinn að kunna betur við Leo í seinni tíð. Allir góðir menn hljóta líka að fagna því þegar kempan Tom Berenger birtist á hvíta tjaldinu. Mæli annars með stiklunni hér að neðan – mér er reyndar sagt að því minna sem maður viti um myndina, því betra, svo fólk ætti ekkert endilega að horfa á hana!
Ég vænti þess að ég muni smella að minnsta kosti 4,5 stjörnu á hana af 5 – eins gott að hún valdi ekki vonbrigðum!
Maximus
Maximus úr Gladiator í góðum gír…
The Trap: What Happened To Our Dream Of Freedom?
Félagi minn hérna í náminu úti benti mér um daginn á heimildaþáttaröðina ‘The Trap: What Happened To Our Dream Of Freedom?’, sem gerð var af Adam Curtis og sýnd á BBC í fyrra. Þættirnir flétta saman hagfræði, sálfræði, mannfræði, heimspeki og stjórnmálafræði til að gagnrýna harkalega hvernig frelsishugtakið hefur verið misskilið og skrumskælt á undanförnum þrem áratugum. Sérstaklega eru þættirnir gagnrýnir gagnvart hugmyndum hagfræðinga um homo economicus – hinn rökrétta mann – og hvernig tilvist hans hefur brenglað hugmyndir okkar um hegðun fólks. Sósíalískir vinir mínir ættu að hafa einkar gaman af þáttunum – öðrum kann að finnast Curtis lita fullfrjálslega út fyrir línurnar. Mér þóttu þættirnir allavegana mjög skemmtilegir og áhugaverðir.
Þættirnir eru þrír, hver þeirra er klukkustundar langur og hver þáttur er brotinn niður í sex parta. Tenglarnir hér að neðan vísa á hvern part.
F?#k You Buddy: 1, 2, 3, 4, 5 og 6.
The Lonely Robot: 1, 2, 3, 4, 5 og 6.
We Will Force You to Be Free: 1, 2, 3, 4, 5 og 6.
I.O.U.S.A.
Ég skynja epíska dramatík í þessum kvikmyndatrailer.
You-tube tenglablogg
Síðasta vika eða svo hefur verið alveg meiriháttar brilljant. Útilega í Úthlíð, ferð austur á slóðir forfeðranna í Hornafirði og önnur úti-inni-leiga á Sturlureyki. Ekki hægt að kvarta undan því. Nú tekur hins vegar hversdagsleikinn við… og þá er ekki síðra að hafa nokkur myndbönd til að skemmta sér.
- Þetta er það súrasta sem ég hef séð lengi – mér finnst tilfinnanlega vanta meiri súrleika í íslenska dagskrárgerð. Þetta myndband eftir sama aðila er líka í súrari kantinum.
- Afi kemur í heimsókn er fyndnasti Fóstbræðra-skets sem ég hef nokkurn tímann séð. Indriði á stjórnarfundi og Indriði og hljóðið í bílnum stendur líka fyrir sínu.
- Ég fæ Singstar-fráhvarfseinkenni þegar ég sé þennan.
- Þetta finnst mér svo skemmtileg útgáfa af annars óheppilega klístruðu lagi. Dittó þetta.
- Ooooog. Ég get ekki beðið eftir því að sjá þessa. Þetta verður langbesta myndin í sumar.

