Þegar ég gekk að bílnum mínum eftir vinnu í dag var veðrið frekar súrt – grár himinn og súld. Hinum megin við bílastæðið sá ég nýjasta skemmtiferðaskipið til að heimsækja höfnina í Reykjavík og hugsaði með mér hvað lífið á slíku fleyi væri eflaust yndislegt. Þegar ég rak svo augun í nafnið á skipinu varð mér verulega skemmt.

Skýrari skilaboð fær maður varla frá almættinu!
Ég er kominn heim og hef það frekar fínt.
Vanti einhverjum annars hugmynd að jólagjöf fyrir karlmann, þá hlýtur hjálagður ilmur að leysa vandann…

Svei mér þá, ég held að Baggalútur fái mig til að hlæja á hverjum einasta degi. Bloggið hjá Jesúsi Kr. í dag er sérstaklega gott!
Mikið finnst manni nú leiðinlegt að fólk sé almennt hætt að þéra. Svona í tilefni dagsins.

Sama hvernig ég forgangsraða verkefnunum á borðinu mínu, þá virðist þessum tímaþjófi alltaf takast að lauma sér með… ég þarf klárlega að beita sjálfan mig meiri aga!
Ég kann ónefndum blaðamanni Fréttablaðsins bestu þakkir fyrir að vekja athygli á hversu reiður ég er í blaði dagsins.
Annars keypti ég dýrasta hamborgara seinni ára á Thorvaldsen í gærkvöldi – 1890 krónur takk fyrir kærlega. Hafandi smakkað allnokkra borgara á ævinni verður þó að segjast alveg eins og er að þetta er sennilega sá besti sem komið hefur inn fyrir varir mínar!