Efnisflokkur: Mambó
Skilgreiningin á heimsku
- Maður, köllum hann A, stelur fartölvu.
- A tekur myndir af sér og ákveður að hlaða inn á flickr-myndareikninginn sinn í gegnum nýju fartölvuna sína.
- A gerir sér ekki grein fyrir því að tölvan skráist sjálfkrafa inn á flickr-reikning raunverulegs eiganda tölvunnar.
Útkoman: Snillingurinn setur inn mynd af sjálfum sér á myndasíðu eiganda tölvunnar og kemur gjörsamlega upp um sig!
Klippt og skorið
Mikilvægi þess að vera vel klipptur verður seint ofmetið, því hef ég komist að á mínum rúma aldarfjórðungi í þessum heimi. Hárvöxtur minn er þannig með ólíkindum sveipóttur og sjálfstæður og er mér oft til trafala. Hvað þá þegar yfir 6 vikur eru liðnar frá síðustu heimsókn til rakarans.
Það var mér því til mikillar gleði þegar ég fann loksins hárgreiðslukonu sem virðist vera með doktorspróf í að hemja hárvöxtinn minn á sómasamlegan hátt. Hef ég nú farið til hennar nokkrum sinnum og sjaldan verið ánægðari með toppstykkið.
Í síðustu ferð minni til hennar virðumst við þó hafa misstigið okkur eilítið í því hversu mikið ætti að taka af hárinu. Eða öllu heldur, hversu mikið ætti að grisja það. Ég sjálfur orðinn hundleiður á svepplaga 7-vikna lúkkinu sagði dömunni að klippa vel af því og ekki síður þynna það vel.
Þegar ég skellti vaxi í hárið í gær tók ég hins vegar eftir því að nú er engu líkara en að undir þunnleitu hárinu sé ekki ríkulegur hárvöxtur heldur sportlegar skallarákir á víð og dreif! Mjög smart og passar furðu vel við Hondu Civic-bifreiðina mína.
Ég mun vonandi læra af þessu og gera hófsamari kröfur næst þegar ég fer í hársnyrtingu…
Þráhyggja
Á sínum tíma var ég spurður að því hvernig í ósköpunum væri hægt að skrifa heilar þrjár greinar um verðtrygginguna. Ég fussaði nú yfirleitt yfir slíkum vangaveltum enda verðtryggingin margslungin og athyglisvert viðfangsefni. Það er hins vegar ekki laust við að ég finni mig í sömu sporum og viðmælendur mínir yfir greinum rokkarans Bjarna Más á Deiglunni um landgrunnið… Hann er kominn í sex og virðist ótrauður halda áfram! Ætli hann nái 10?
Að koma illa undan vetri
Nú þegar fyrstu sólargeislar sumarsins eru farnir að leika um loftið er ekki úr vegi að velta sér upp úr því í hversu arfaslöku ástandi maður er eftir veturinn. Þannig skellti ég mér á fótboltaæfingu á fimmtudaginn síðasta: Eftir tvo frekar hressilega spretti á fyrstu 4 mínútunum var ég sprunginn á limminu og eyddi næstu 56 mínútum í markinu… og var frekar móður við það. Eins pólitískur og maður er nú var maður fljótur að afsaka þetta – ég hafði jú nýlokið við að gúffa í mig hálfri Megaviku-pepperoni pizzu!
Landvinningar mínir í hreyfingu héldu síðan áfram fyrr í dag þegar ég hjólaði héðan úr Vesturbænum í heimsókn til múttu upp í Breiðholtið. Þrátt fyrir að hér sé verið að velta sér upp úr vafasömu líkamlegu ástandi mínu eftir veturinn er ekki úr vegi að velta vitsmunalega ástandinu líka fyrir sér, enda hafði ég einungis eitt stykki Snickers súkkulaði og hálfan lítra af Coke Zero með mér í þessa svaðilför…
Snickersið fór frekar illa í magann og ég þurfti að stoppa svona fjórum sinnum á leiðinni sökum þess hvað ég varð uppþembdur af hinum ljúfa sykurlausa mjöð!
Ferðin uppeftir tók mig annars 69 mínútur með öllum stoppum meðtöldum, sem mér fannst alveg ágætt miðað við allt og allt. Það var þó gjörsamlega allur vindur úr mér eftir ferðalagið, enda gjörsamlega orkulaus og búinn á því. Þegar ég lyppaðist síðan ofan í stofusófann í Strandaseli 5 horfði móðir mín alvörugefin á mig og spurði með áhyggjufullum tón: ,,Þú ert ekkert búinn að missa prófið, er það nokkuð?”
Móðir mín hefur semsagt alveg óbilandi trú á mér.
Eftir endurnærandi stopp hélt ég síðan heim á leið og get vottað að sú leið er mun fljótfarnari. Var bara 44 mínútur þá leiðina…. og inn í því er m.a.s. stopp í búð til að kaupa mjólk út á hafragraut morgundagsins!
Bls. 28 í Fréttablaðinu
Mikið svakalega finnst mér myndin á bls. 28 í Fréttablaðinu fyndin – bleiku sokkarnir gera klárlega útslagið!

