Í sveiflunni

Einar Örn tók þessa af mér um síðustu helgi… Ég verð nú bara að segja að mér finnst hún nokkuð skemmtileg!

Einar Örn tók þessa af mér um síðustu helgi… Ég verð nú bara að segja að mér finnst hún nokkuð skemmtileg!
Ég er ekki frá því að hjálögð myndskilaboð, sem ég fékk send frá söngelskandi pilti úr Hlíðunum, séu með þeim betri sem ég hef fengið send í símann minn!

Ritstjórn Vefritsins er megaflott í Fréttablaðinu í dag!
Jáhá – sendi til gamans mynd sem ég tók af Bjarna frænda mínum í ferðinni austur í ljósmyndakeppni með þemað ,,krakkar” á ljosmyndakeppni.is. Viti menn, ég krækti í 9. sæti af 54 þátttakendum!
Það voru nú nokkrar flugar slegnar í einu höggi í ferðinni austur á land, já heldur betur. Heimsótti fyrsta heimili beggja foreldra minna og myndaði í bak og fyrir.
Foreldrar pabba fluttu á Viðborð í Austur-Skaftafellssýslu í kringum 1930, að því er ég best veit. Húsið byggðu þau og bjuggu í því til ca. 1940, en pabbi gamli fæddist 1938. Húsið hefur nokkurn veginn staðið autt síðan þá og ætti ekki að fara framhjá neinum sem keyrir hringveginn. Útsýnið frá bæjardyrunum út Hornafjörðinn er alveg magnað.
|
Foreldrar múttu áttu heima á Strandgötu 23 á Eskifirði, sem hét Brautarholt áður en farið var að gefa götum sérstök nöfn. Mamma átti heima þarna fyrstu 23 árin. Merkilegt nokk þá þekkti húsfreyjan mömmu þegar ég var að mynda húsið og bauð okkur inn… get ekki sagt annað en að það hafi verið gaman að sjá gamla herbergið þeirrar gömlu!
|
Myndin hérna til hliðar er svo af Bakka á Eskifirði, en báðar ömmur mömmu og annar afinn áttu saman heima í þessu litla húsi. Guðjón og Halldóra, foreldrar mömmu, áttu semsagt bæði heima þarna þegar þau voru yngri og er það varla djarft að álykta sem svo að það hafi haft mikið um það að segja að þau giftust síðar meir… gaman að þessu.
Jæja, þá er fínni ferð um gjörvallt Austurlandið lokið. Fórum víða – heimsóttum Viðborð, Djúpavog, Breiðdal, Reyðarfjörð, Eskifjörð, Borgarfjörð eystri, Hollormsstaði, Atlavík, Lagarfljótið, Skriðuklaustur, Kárahnjúka, Egilsstaði og Tókastaði. Skemmtilegast var auðvitað að rölta um Eskifjörð með múttu en hún átti einmitt heima þar í ein fjörutíu ár eða svo.