Efnisflokkur: Nám

Að koma sér aftur í gírinn

Þá er skólinn byrjaður aftur og maður í óða önn að koma sér í námsgírinn. Sökum einstakrar leti í jólafríinu er ég reyndar ekki alveg búinn með verkefni haustannarinnar – þarf að skila tveim ritgerðum núna í janúar sem tengjast haustkúrsum, svo það verður nóg að gera hjá manni. Sú fyrri mun fjalla um hvort efnahagslegar framfarir stuðli að lýðræði, en sú síðari mun (sennilega) fjalla um að hvaða leyti – ef einhverju – efnahagsstefna Breta hafi breyst þegar New Labour tók við af Íhaldsflokknum 1997. Ég er hins vegar ekki einn í letibátnum – heyrist á flestum félögunum mínum í náminu að það séu vökunætur framundan!

Verð í þrem kúrsum á þessari önn eins og þeirri síðustu. Er búinn að festa tvo þeirra niður og er fáránlega spenntur fyrir þeim báðum: Capitalism and Democracy og Comparative Politics of Redistribution in Advanced Democracies.  Er að velja á milli þriggja kúrsa til að verða sá síðasti… mætti í The Liberal Idea of Freedom í gær, er á leiðinni í European Models of Capitalism eftir 10 mínútur og fer svo í Twentieth Century European Liberal Thought á föstudaginn. Finnst líklegast að sá síðasti verði fyrir valinu, en það er aldrei að vita.

Meira var það ekki í bili.

Ísland í samhengi, Ungfrú LSE og þráðlaust net

Þá eru síðustu tímar annarinnar framundan á morgun. Annar þeirra verður sérlega áhugaverður – síðasti umræðutíminn í States and Markets. Síðustu tvær vikurnar höfum við verið að ræða um efnahagskreppur í sögulegu samhengi og sérstaklega hlutverk hins opinbera á slíkum tímum. Á morgun er umræðuefnið hins vegar núverandi heimskreppa, hvaða áhrif hún hefur í mismunandi löndum og hvernig stjórnvöld hafa brugðist við henni. Til að gefa fólki samanburðarvinkil á þetta voru allir beðnir um að taka saman 2ja blaðsíðna samantekt um eitt land og áhrif kreppunnar á það. Fólk var að sjálfsögðu beðið um að taka heimalandið sitt ef það hefði áhuga á því – ég skoraðist nú ekki undan því. Og ekki tókst mér að koma því frá mér sem ég ætlaði að segja á 2 síðum.. nei, ekkert minna en 5 blaðsíður gátu dugað! Aldrei að vita nema maður setjist niður og skelli saman grein um þetta í jólafríinu.

*

Svo virðist vera sem heitasta málið á campus sé Ungfrú LSE keppnin sem var haldin um daginn. Rakst á umfjöllun um málið í skólablaðinu The Beaver. Frekar grillað!

*

Hversu steiktur þarf maður annars að vera til að spyrja afgreiðslukonu hvort að það sé “threadless network” á svæðinu?

Löngu tímabær færsla!

Það verður seint hægt að stilla klukku eftir stopulum bloggfærslum mínum. Það er nokkuð ljóst.

En hvað um það.

Ég kem heim næsta föstudag. Og hlakka mikið til. Þetta hefur verið mjög strembin önn – mikið að lesa og mikið að skrifa. Það verður því kærkomið að koma heim, hitta vini og fjölskyldu, borða á sig gat af smákökum og njóta jólanna.

Fékk mína fyrstu einkunn núna um helgina. Úr ritgerð í Innganginum að samanburðarstjórnmálum þar sem ég bar saman structural-aðferðir (íslenskt orð, hjálp!) og rational choice-aðferðir við að útskýra lýðræði – hvers vegna það er til staðar í sumum löndum, en ekki öðrum og við hvaða skilyrði lýðræði kemst á. Var í alvarlegu tímahraki þegar ég skrifaði ritgerðina og var nokkuð sáttur með að ná að skrifa 2000 (ensk) orð á innan við sólarhring. Matið á ritgerðinni kom því afar skemmtilega á óvart:

Very good paper, you have summarized each argument well, critiqued them thoroughly, and noted how they relate to one another. You write well and the paper is well structured. I would give it a solid merit.

Jibbí kóla!

Í fréttum er þetta helst

Bretar eru mjög meðvitaðir um eldvarnaröryggi. Hér á vistinni eru ítarlegar reglur um allt sem tengist rafmagnstækjum, sem ganga meira að segja svo langt að maður þarf að fá leyfi fyrir öllum rafmagnstækjum sem maður er með í herberginu sínu. Klukkan 8.30 í gærmorgun var svo brunaæfing öllum að óvörum. Maður hafði nú hæfilegar áhyggjur af því að eitthvað væri að gerast í alvörunni, og flýtti sér því nokkuð hratt út. Úti söfnuðust svo allir – myglaðir og mismikið klæddir. Einhverjir ruku beint úr sturtunni…

Bestur var þó klárlega Spánverjinn Antonio. Hann kom cirka 5 mínútum á eftir öllum út, fullklæddur, með fartölvutöskuna á öxlinni og dragandi ferðatöskuna á eftir sér! Einn sem ætlaði sko ekki að glata neinu!

Af einskærri góðvild var svo önnur brunaæfing kl. 10.30 í morgun. Fólkið var nú öllu fljótara út í það skiptið…  Antonio þar á meðal :)

*

Kíkti á pöbbarölt með fólkinu í prógramminu mínu á fimmtudaginn. Þar á meðal voru þrír Norðmenn, sem spurði mig allir að því við mismunandi tækifæri hvenær (ekki hvort!) Ísland myndi taka upp norsku krónuna! Þeim leiðist ekki að stríða manni.

*

Undirritaður var annars í símaviðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi.

Að vera í ‘góðum’ skóla

Það er ekki hægt að segja annað en að undanfarin vika hafi verið afskaplega erfið. Maður hefur lítið getað einbeitt sér að náminu og fylgst óhóflega mikið með því sem er að gerast á gamla góða Íslandi. Hugurinn hefur meira og minna verið með öllu fólkinu þar, sérstaklega gömlu vinnufélögunum í Landsbankanum, sem standa nú margir hverjir frammi fyrir því að vera án vinnu.

Harmsögum af raunum námsmanna erlendis hefur líka rignt yfir mann. Námsmenn hafa nú oftast ekki mikið á milli handanna og skakkaföll á borð við þau sem urðu í síðustu viku geta haft hrikaleg áhrif á aðstæður þeirra. Þannig hefur maður heyrt nokkrar sögur af fólki sem hefur lent í veseni með leigu og skólagjöld vegna ástandsins heima og auðvitað líka af fólki sem hefur ekki getað millifært pening að heiman fyrir helstu nauðsynjavörum.

Í öllu þessu ástandi hef ég hins vegar verið afskaplega heppinn. Ég hef getað tekið pening út af íslenska debetkortinu mínu – á fáránlega háu gengi þó – og hef því átt pening fyrir helstu nauðsynjavörum. Ég er með gistingu á heimavist hjá LSE og þeir hafa sömuleiðis verið afskaplega sveigjanlegir vegna þessara tímabundnu erfiðleika. Það sem meira er, þá fékk ég e-mail frá skólanum á fimmtudaginn, sem ég held að hafi farið á alla íslensku námsmennina við skólann.

Meginatriði póstsins voru á þessa leið:

I am writing to you on behalf of the School to say that we hope that you are settling in to your studies here.

We are of course aware from the international media about the financial crisis in Iceland: and the purpose of this message is to point you to some sources of support if this is affecting you directly.

As you will know if you attended one of the Support Services Induction sessions last week, there are a range of support services available at the School. If the circumstances in Iceland are affecting your ability to concentrate on your academic work, you should talk to your Departmental Tutor. Another good starting point for more general help and advice is the Student Services Centre, where there are advice staff on the counter each weekday. They can refer you to more specialised help if necessary.

If you have a specific problem over the financial arrangements you made for your time at LSE, then please make use of the Financial Support Office. The FSO may be able to help you to secure special funding which is available to registered students who encounter unexpected difficulty. This fund is open throughout the academic year: so if the current crisis is not having an immediate effect but causes you a problem at a later point during your studies, then there will still be help available at that time. [...]

Mér finnast þessi viðbrögð skólans alveg til fyrirmyndar og ég er ótrúlega þakklátur fyrir að vera í skóla sem býður manni slíkan stuðning á þessum síðustu og verstu. Þetta hefur heldur betur dregið úr áhyggjunum af eigin ástand enda líklegt að ég geti sótt mér þá aðstoð sem ég þarf ef ég lendi í einhverju frekara veseni útaf þessu ástandi.

Langaði bara að deila þessu með lesendum síðunnar… sendi annars baráttukveðjur til annarra námsmanna erlendis og fólksins heima – þetta fer allt einhvernveginn, þó margur efist um það á tímabili!

Tög:

Einn, tveir og…

Loksins, loksins. Skólinn byrjar í fyrramálið kl. 10.30 með tíma í Inngangi að samanburðarstjórnmálum. Fór og hitti aðalkennarana í náminu og krakkana sem verða með mér í því á fimmtudaginn og leist bara rosalega vel á allt og alla. Þetta er sennilega ca. 30 manna hópur og rétt tæpur helmingur þeirra frá N-Ameríku. Restin er svo nokkuð dreifð um heiminn – ásamt tveim norsurum er ég þó sá eini frá Norðurlöndunum. Flestir virtust vera með bakgrunn í stjórnmálafræði, þó að margir höfðu líka lokið grunnnámi í hagfræði.

Ég verð í þrem kúrsum á þessari önn. Inngangurinn og “States & Markets” (sem hét “States & Prosperity” í fyrra og mun örugglega bara heita “States” á næsta ári samkvæmt kennaranum…) eru skyldukúrsar og svo get ég tekið einn valkúrs. Er búinn að þrengja valið niður í tvo – annar er um breska pólitik en hinn um stjórnmál efnahagsmála. Skrifa örugglega meira um þá síðar…

Á fimmtudag og föstudag var annars hið svokallaða “Freshers Fayre”. Þar kynna allir klúbbarnir og samfélögin sem eru starfrækt í skólanum starfsemi sína og reyna að fá mann til að skrá sig hjá sér – flest fyrir pund eða tvö. Klúbbarnir eru yfir 200 talsins og spanna allt sviðið: Pólitík, íþróttir, lönd, menningu, borðspil, trúarbrögð og sa videre. Ég var nú ekki mikið að færa mig út fyrir boxið í minni skráningu… skráði mig í efnahagsmálaklúbbinn, skákklúbbinn, skandinavíska klúbbinn, tennisklúbbinn og Fabien Society. Held að þetta sé mjög skemmtileg leið til að kynnast fólki í öðrum deildum og sinna áhugamálunum… það fyrsta sem mér datt reyndar í hug eftir að hafa ráfað þarna um í einhvern tíma var að svona millideildamenningu vantaði alveg heima í HÍ – þar eru það helst Röskva, Vaka og Háskólakórinn sem stuðla að einhverju slíku, en það mætti gera miklu meira af því. En já.. maður ætti að hafa nóg að gera í frítímanum (ef hann verður þá einhver…)!

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar