• Agnar veltir fyrir sér fórnarkostnaði. (Uppfært fyrir 2 dögum, 5 klst og 49 mínútum á Facebook)

Aggagagg

Óhátíðlegar hugleiðingar hagfræðings

Efnisflokkur: Stjórnmál

Pólitíkin

Ég verð ekkert mikið málefnalegri en þetta um þessar mundir.

Evrópuþingskosningar

eu_elections

EU Profiler

Tjékkit!

Að kjósa um hvort eigi að kjósa um hvort eiga að kjósa um…

Afskaplega finnst mér það klunnalegt hjá Sjálfstæðisflokknum að vilja tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi ESB.

Að kjósa um aðild er fullkomlega eðlilegt - að sjálfsögðu eiga svo veigamikil mál að vera sett í dóm þjóðarinnar. En að kjósa um hvort að við eigum að fara í aðildarviðræður er hvorki fugl né fiskur. Þótt að það sé engan vegin smávægileg ákvörðun, þá getur maður varla séð að ákvörðunin um að fara í viðræður um aðild snerti hagsmuni þjóðarinnar svo mikið að hún verðskuldi sérstaka þjóðaratkvæðagreiðslu. Fyrst Sjálfstæðismenn vilja á annað borð lækka þröskuldinn svo mikið eru þeir þá ekki komnir á hálan ís?  Hefðu þeir þá ekki átt að vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um stríðsþátttöku Íslands í Írak? Eða Kárahnjúkavirkjun? NATO-aðild? EES-aðild?

Talandi um EES-aðildina. Árið 1992, þegar EES-samningurinn var til umræðu á Alþingi lagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ásamt öðrum fram þingsályktunartillögu um að aðild Íslands að EES skildi vera sett í dóm þjóðarinnar. Sú tillaga var felld.

Í nefndaráliti varðandi málið, sem meðal annars Björn Bjarnason skrifaði undir, segir annars:

Allir meginþættir EES-málsins lágu skýrir fyrir við þingkosningarnar og kjósendur gátu einnig gert sér grein fyrir afstöðu einstakra þingmanna og flokka. Málið bar hátt í kosningabaráttunni. Þingmenn fengu því umboð í kosningunum til að ljúka málinu.
[...]
Með vísan til þess sem hér hefur verið sagt er lagt til að þessari tillögu til þingsályktunar verði hafnað.

Undanfarin misseri hafa fá mál fengið jafn mikla umræðu og aðildarviðræður við ESB. Kostirnir (að sækja ekki um aðild eða að sækja um aðild) liggja skýrir fyrir, en kjósendur geta reyndar illa gert sér grein fyrir afstöðu einstakra þingmanna Sjálfstæðisflokksins til kostanna. Málið mun bera hátt í kosningabaráttunni. Af hverju munu þingmenn næsta kjördæmabils þá ekki fá umboð í kosningunum til að ganga til aðildarviðræðna, líkt og þá?

Nota bene, að ganga til aðildaviðræðna við ESB er miklu léttvægara en að gerast aðili að EES-samningnum.

Þessi stefna Sjálfstæðisflokksins er enda hvorki fugl né fiskur. Götótt ábreiða yfir klofinn flokk, sem getur ekki myndað sér alvöru stefnu í einu mikilvægasta hagsmunamáli Íslendinga.

Vinstri-sósíalismi

Á bloggi sínu segir Sigurður Kári, alþingismaður, eftirfarandi:

Það bendir allt til þess að kjósendur fái að velja á milli nokkuð skýrra kosta í kosningunum.

Annars vegar vinstri-sósíalíska ríkisstjórn sem leggja mun áherslu á umfangsmikil ríkisumsvif, mikla skattheimtu og útgjaldapólitík, og hins vegar ríkisstjórn frjálslyndra og borgaralegra afla.

Þvílík og önnur eins della. Að greindur maður eins og SKK leyfi sér að tala með þessum hætti er alveg fráleitt. Alveg sama hvaða ríkisstjórn mun taka við þá þarf að gera allt af því sem hann nefnir.

Já, ríkisumsvif munu aukist á næstu misserum. Hrun íslenska hagkerfisins, sem er bein afleiðing efnahagsstjórnar Sjálfstæðisflokksins síðustu 18 árin, gerði það að verkum að nauðsynlegt var að ríkisvæða öll stærstu fjármálafyrirtæki landsins. Af sömu ástæðu mun fjöldi fyrirtækja sem rambar nú á barmi gjaldþrots þurfa ríkisaðstoð á næstu mánuðum og misserum.

Já, það þarf að auka skattheimtu. Í kjölfar hruns íslenska hagkerfisins, sem er bein afleiðing efnahagsstjórnar Sjálfstæðisflokksins síðustu 18 árin, hafa skuldir íslenska ríkisins margfaldast. Einhvernveginn þarf að greiða skuldirnar til baka - einn liður í því er aukin skattheimta.

Já, gósentíð útgjaldapólitíkur er framundan. Vegna hruns íslenska hagkerfisins, sem er bein afleiðing efnahagsstjórnar Sjálfstæðisflokksins síðustu 18 árin, munu stjórnvöld sem aldrei fyrr þurfa að forgangsraða útgjöldum ríkisins og taka gífurlega erfiðar ákvarðanir um hvar þurfi að skera niður í ríkisbúskapnum. Á sama tíma dragast tekjur ríkissjóðs saman vegna minni umsvifa í hagkerfinu, auk þess sem sífellt fleiri þurfa á aðstoð velferðarkerfisins að halda vegna atvinnumissis - hvoru tveggja má rekja til hruns íslenska hagkerfisins, sem er bein afleiðing efnahagsstjórnar Sjálfstæðisflokksins síðustu 18 árin.

Að þykjast búa til einhvern kontrast á milli þeirra aðgerða sem vinstri eða hægri stjórn myndi grípa til á næstu misserum með þessum hætti er beinlínis hlægilegt. Sama hver mun stjórna, þá verður viðkomandi nánast með báðar hendur bundnar fyrir aftan bak vegna afleiðinga efnahagskreppunnar. Það litla svigrúm sem viðkomandi mun hafa er hins vegar hægt að nýta til eins af tvennu: Að skapa skilyrði fyrir réttlátara og jafnaðara samfélag, eða halda áfram á sömu braut og kom okkur í þá stöðu sem við erum að kljást við núna.

Sigurður Kári segir: “Fulla ferð áfram!” - frjálslynt félagshyggjufólk (”vinstri-sósíalistar”) segir: “Nei takk, nýtum tækifærið til að skapa efnahagsumgjörð sem er hvort tveggja í senn, skilvirk og réttlát”.

Kynjað líf

Í dag hef ég meðal annars lesið greinarnar:

  • Gender and the Development of Welfare Regimes,
  • Gendar and the Social Rights of Citizenship: The Comparative Analysis of Gender Relations and Welfare States,
  • Divorce and the Gender Division of Labor in Comparative Perspective,
  • The Political Economy of Gender: Explaining Cross-National Variation in The Gender Division of Labor and the Gender Voting Gap,
  • The Politics of Women’s Economic Independence,
  • Gender and Welfare State Change,
  • og Gendering the Varieties of Capitalism.

Í fréttum les maður svo um kynjaða hagstjórn, brot á jafnréttislögum og bann við nektardansi.

Mér finnst ég afskaplega nútímalegur.

Sjónarhóll síðuhaldara

Reiður!Síðuhaldari er viðmælandi Fréttablaðsins í dálkinum “Sjónarhóll” í dag. Ég beið spenntur eftir að sjá hvaða fyrirsögn viðtalið yrði undir og varð talsvert létt þegar ég sá hina meinlausu niðurstöðu - “Líst nokkuð vel á Oygard”.

Síðast þegar undirritaður var viðmælandi blaðsins þá var niðurstaðan öllu verri - “Reiður”(!).

Familíunni minni - og sérstaklega bróður mínum - þótti það alveg óheyrilega fyndið og ætlaði aldrei að hætta að japla á því!

Þetta tókst þó öllu betur - mæli auðvitað með því við lesendur Aggagaggsins að þeir kíki á stöffið.

    Nýjustu ummælin

  • Guffi um Að ferðast (3):

    Ég las þennan texta og brosti út í annað. Sá svo að Aganar er kominn með tenglalista á... (Skoða)
  • Andri um Að ferðast (3):

    Skemmtilega mörg sannleikskorn þarna (Skoða)
  • Elín Sigrún um Að ferðast (3):

    Hahaha þetta er stöffið! (Skoða)
  • Elín Sigrún um Kvöldið fyrir próf (5):

    Oj þetta var sko ekki gaman að lesa að vera i eilífðri sumarfríi! Hvenær á... (Skoða)
  • Aggi um Kvöldið fyrir próf (5):

    Takk fyrir það Anna Herdís Eiríksdóttir! Prófin klárast annars næsta föstudag -... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

-->

Tenglar

Fáðu uppfærslur
sendar í pósti

< ?php wp_footer(); ?>