Efnisflokkur: Tölvur og tækni

Ritgerðir og breytingar

Þá er geðveikistörn þessarar annar lokið. Þrjár ritgerðir á rétt rúmum tveim vikum, auk þess sem ég skellti frá mér Vefritsgrein um mikilvægi þess að standa vörð um Lánasjóð íslenskra námsmanna á þessum síðustu og verstu. Ritgerðirnar voru annars hver annarri áhugaverðari… Sú fyrsta fjallaði um áhrif kosningakerfa á endurdreifingu gæða (betri þýðing á redistribution?), önnur fjallaði um gagnrýni Hayek á miðstýrðan áætlunarbúskap og sú þriðja um hvort að sjálfstæði seðlabanka samrýmist lýðræði í grundvallaratriðum. Það er örlítil ritgerðarpása framundan núna, en ég verð hins vegar að nýta tímann vel. Er alveg á síðasta snúningi með að velja mér ritgerðarefni fyrir meistararitgerðina og þarf að einhenda mér í það. Seinni partinn í mars byrjar svo annað ritgerðarbrjálæði – þá hef ég reyndar rétt rúman mánuð til að gera fjórar ritgerðir. Svo hangir próflesturinn náttúrulega yfir manni eins og langar skuggi á köldum haustdegi.

*

Eftir að hafa setið sveittur við skriftir síðustu vikurnar hefur mig sárlega vantað útrás fyrir (takmarkaða) sköpunargáfu mína. Ég hef því endrum og eins flúið raunveruleikann og mixað nokkrar heimasíður á milli ritgerðanna. Fannst ekki annað tækt en að taka síðuna mína í gegn í leiðinni og held ég að það hafi bara tekist nokkuð vel. Útlitið er reyndar að mestu byggt á öðru útliti, en ég hef aðlagað það mínum þörfum – bætt við kvikmyndadómafídus, kóða fyrir Google Reader, athugasemdir og fleira smálegt.

Eins og alltaf er það svo klárlega stefnan að láta þessa síðu snúast frekar um innihald en form… við skulum sjá hvernig það gengur!

Skype

Kjallinn er kominn á Skype, það magnaða samskiptatól. Almennileg vefmyndavél og alle græjer. Vinir og vandamenn mega endilega slá á þráðinn…

Talandi um það – samkvæmt teljara síðunnar koma rúmlega hundrað innlit á síðuna daglega, en varla nokkur fær það af sér að kommenta…. koma svo gott fólk!

Að henda aldrei neinu

Hvern hefði grunað að í möppunni

c:/bordtolvan/desktop/annad/eldri_icon/gamli_desktoppinn/desktop_stuff/

ymislegt/desktop_drasl/annad/gamla_tolvan/eldra/gomul_icon

myndu leynast myndir af söngvaranum í Creed, vidjó af Andy Cole og glósur úr íslensku 203?

Einfaldari Agnar

Ég hef tekið upp íburðarminni lifnaðarhætti hér á agnarfreyr.com. Var orðinn þreyttur á gamla útlitinu. Þetta lúkk er afskaplega einfalt sem hentar mér ágætlega. Neðst á forsíðunni má annars finna klassísku fídusana af gömlu síðunni. Þangað er hægt að ,,hoppa” með því að smella á takkann sem birtist þegar músin fer yfir svæðið rétt fyrir neðan efstu stikuna á síðunni. Mjög fansy.

Það eru annars tæpar 7 vikur í að ég flytji til Lundúna. Það er ekki laust við að maður sé orðinn nokkuð spenntur…

Breytingar á síðunni

Hef dundað mér við að setja inn nokkrar nýjungar á síðuna á meðan bloggpásunni stóð. Þeirra helstar eru tvær:

  • Skellti inn viðbót sem birtist fyrir neðan hverja færslu og sýnir þær færslur sem birst hafa á viðkomandi degi í fortíðinni. Þetta hefur ósköp lítið praktískt notagildi og gæti í rauninni orðið frekar bagalegt í ljósi þess að blogg mitt í fortíðinni hefur verið æði misjafnt. Lesendur síðunnar ættu þó vonandi að hafa gaman af!
  • Ég er farinn að nota Google Reader til að lesa öll bloggin í rúntinum mínum. Readerinn býður upp á þann skemmtilega fídus að eyrnamerkja færslur sem manni finnast góðar og getur maður sent þær áfram með tölvupósti eða birt, til dæmis á bloggi sem þessu. Skellti tengli á færslurnar sem ég eyrnamerki hérna til hliðar – aldrei að vita nema einhver hafi gaman af því að kíkja á færslur sem mér finnast áhugaverðar annars staðar.  Tenglasíðan er sömuleiðis drifin áfram af sama kerfi. Reyndar eitt: Það er mjög erfitt að eiga við kóðann sem er notaður til að búa til listana – fyrir vikið laumast með ensku orðin “from” og “read more”, sem fer óheyrilega mikið í taugarnar á mér!

Að öðru leyti hafa þetta verið smávægilegar breytingar sem ég hef gert á síðunni. Þar sem ég hef ekki prófað síðuna nema í Firefox og IE og ekkert athugað aðrar upplausnir eða stýrikerfi má vel vera að síðan sé alveg hökkuð í vöfrunum hjá einhverjum. Allar ábendingar um slíkt eru vel þegnar!

Staksteinar

Mæli hiklaust með lestri þessara Staksteina Ztyrmis… þeir eru hiklaust málefnalegri en frumgerðin.

Dæmi:

Hvers konar þvættingur er þetta? Hvernig getur maðurinn þóst zjá þá vinda sem blása um hans gamla vinnustað? Vindar sjást ekki. Og síst allra frá Beirút. Það veit hver heilvita maður. Sér er nú hver vindgangurinn. Svona málflutningur er ógeðfelldur.

Taglhnýtingar Samfylkingarinnar dirfazt jafnvel að gagnrýna skipun Krístínar Edwald sem formanns barnaverndarnefndar. Og í hinu orðinu krefjast þeir aukins hlutar kvenna í stjórnunarztöðum. Kristín, eins og aðrar konur, hafa áhuga á börnum og því töldu menn sjálfsagt að hún tæki þetta embætti. Ekki þótti þörf á að ræða þetta sérstaklega við hana. En hverjir kalla þetta flaustursleg vinnubrögð? Eru það ekki þeir sömu og gagnrýndu nýlega skipun héraðzdómara á ógeðfelldan hátt og hafa þar með dæmt sig úr leik í umræðunni?

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar