Efnisflokkur: Tónlist

The Swingle Singers

Francesco, félagi minn hérna á vistinni úti, kynnti mig nýlega fyrir snilldargrúppunni The Swingle Singers. Þetta er semsagt acapella sönghópur sem hefur verið starfræktur frá sjöunda áratugnum (með mismunandi söngvurum vitanlega) og er mest megnis í því að syngja (eða tóna) klassíska tónlist og fleira í þeim dúr. Ég er gjörsamlega orðinn húkkt á þessu!

Heyrum hljóðbrot:

Þeim sem hafa áhuga á að heyra í grúppunni bendi ég á www.deezer.com, sem er frönsk tónlistarsíða svipuð last.fm. Maður þarf reyndar að skrá sig (sem tekur lágmarkstíma), en fær í staðinn aðgang að yfir 200 lögum með Swingle Singers… og auðvitað fullt af annarri tónlist.

Tjékkit!

Tónlist

Mig vantar ferska tónlist í eyrun. Einhverjar uppástungur?

Varðandi Eurovision

Allt gott fólk kýs að sjálfsögðu hjálagt lag sem framlag Íslands til evrópsku tónlistarsenunnar 2008. Það liggur í augum uppi.

I see the nuns are gay!

Benny LavaÉg er kominn með lagið Kalluri Vaanil með Prabhu Deva Sundaram á heilann… Fyrir utan að vera alveg fáránlega hressilegt, þá er dansinn alveg svakalegur og fatnaðurinn ekki verri. Það er enda ekki að ástæðulausu að Prabhu er kallaður hinn indversku Michael Jackson! Tengt því – ábendingar um hvar ég geti keypt úlpu svipaða þeirri og hann er í á myndinni hérna til hliðar væru afar vel þegnar.

Myndbandið, með góðum enskum texta, geta áhugasamir séð hérna fyrir neðan.

The Oscar for best soundtrack goes to…

Ég verð víst að vera eins og hinir og gleyma mér örlítið í að setja saman tónlistina í ímyndaða bíómynd um sjálfan mig – lögin eru valin af handahófi með iPod-Shuffle. Myndin er beisk og súr – sennilega gott fæði í Sundance-hátíðina, frekar en í mainstream-dreifingu. Já, það er vandlifað í þessum heimi.

RABITTOpening Credits: Kanínan með Sálinni hans Jóns míns startar myndinni minni, jahso! Aldrei hef ég hlustað sérstaklega á þetta lag, en það er líka svona helvíti hresst. Myndin er nottla hin skemmtilegasta – aðalsöguhetjan óhefluð og léttleikandi og aldrei með meira en dass af alvarleika í pokahorninu. Ætli fyrsta atriðið sé ekki partý-atriði, miðað við lagið að minnsta kosti.

belize-city-slum-2_jpgWaking up: In the Ghetto með Nick Cave… Við förum 15 ár aftur í tímann. Fimm ára drengur nuddar stírurnar úr augunum. Hann er að vakna í félagsíbúð hjá einstæðri móður sinni í Breiðholtinu. Framundan er langur dagur, Ghettóið er erfiður staður. Atriðið endar á mælska sérvitringnum sem er við dauðans dyr. Er hann horfir á hetjuna okkar sparka knetti (sem hann fékk í gegnum hjálparstarf kirkjunnar) sér hann að drengurinn ætlar sér langt. Sá gamli gleymir þó aldrei að uppruninn skapar manninn… ,,Þú getur tekið stráklinginn úr ghettóinu, en ghettóið fer aldrei úr stráknum.”

DirtySocksFirst day at school: Dirty Trip með Air. Erindisleysa, rugl. Dagurinn er hálf súr. Stráksi er á útivelli í skólastofunni – seinna meir á hún þó auðvitað eftir að verða hans sterkasta vígi. Og enginn skilur lagið, hvaða erindi á það í þessa minningu? Jú, ,,drullusokkur” var viðurnefnið. Hann mætti aldrei aftur í skítugum sokkum í skólann.

Falling in love: I Want to Break Free með Queen, Live at Wembley ‘86. Hann verður ekki haminn auðveldlega. Fjötrar ástarinnar reyndust íþyngjandi – Hetjunni okkar líkaði varla þrúgandi andrúmsloft Amors. NBA-myndirnar áttu hug hans allan.

thinkingcapwhoaFight song: Borgin með Hjálmum. Þetta eru víst afar tjilluð slagsmál (já slagsmál, ekkert rifrildi í myndinni minni). Sýnd í sló-mó. Í rauninni meira svona innri togstreita. Á maður að hrökkva eða stökkva? Erfið ákvörðun fyrir tíu ára dreng.

Breaking up: Peaches með The Presidents of the United States of America, úje! ,,Millions of peaches, peaches for me. Millions of peaches, peaches for free” Táknræn og sterk mynd. Það eru jú fleiri ferskjur á akrinum en þessi eina (svona eins og með fiskana í sjónum sko).

islanderProm: Island in the Sun með Weezer. Stráksi mætti einn á lokaballið. Maðurinn er eyland.

Life: What Would I Say in Your Funeral með Mugison. Einstaklega súrt. Efnilegur breyttist aldrei í góðan. Efasemdir um eigið ágæti fara að sækja á hetjuna okkar… ,,hvað ef” verður viðkvæðið og ekkert gerist. Áhorfendurnir fá það á tilfinninguna um það bil hérna að það sé eitthvað vont á leiðinni… svona svipað eins og þegar Káta útgáfan af OTH!One Tree Hill byrjar á svarta-intróinu í staðinn fyrir hið hressilega “I don’t wanna be anything other than what I’ve been tryin’ to be lately…” (9. þáttur 4. seríu byrjar einmitt þannig.. og sá þáttur er sko SLÆMUR). En já, hvað ætli sé í vændum? Taugaáfall?

Mental Breakdown: Jesu bleibet meine Freude from Herz und Mund eftir J.S. Bach, og hananú! Últrasúrt taugaáfall. Örugglega eitthvað sem BARA hagfræðingar lenda í.

politicianDriving: Í nafni frjálshyggju og frelsis með Bubba, já drengstaulinn finnur sinn drifkraft. Hann verður predikari og predikar félagshyggjuna – óheft frjálshyggjan hefur skilið eftir sig sviðna jörð um allt Vestrið og það þarf að spyrna við fótum. Rússíbanareið myndarinnar er rétt að byrja. Þetta er orðinn pólitískur þriller.

Flashback: Wake Me Up Before You Go Go með Wham. Já, Jesús Pétur það var gaman í gamla daga. Ekkert sýruflashbakk (eins og ég hafði áhyggjur af) heldur ekta SingStar-flashback. Já, maðurinn kann sko að syngja!49d012ce.jpg

Getting back together: Rocket með Smashing Pumpkins. Hmm, ekki er þetta nú eitthvað æði. Það er hins vegar mikilvægt að hafa í huga að þó að það sé endalaust af ferskjum (sjá hér að ofan), þá eru þær auðvitað ekkert allar eins. Drengsi sem er gjarn á eldflaugasendingar verður að hafa ferskju sér við hlið sem kann að meta þær… og þær eru sko vandfundnar!

8792~Whipped-Cream-PostersWedding: All She Wants Is með Duran Duran. Svipubrestirnir skera í eyrun. Þrátt fyrir falleg orð og fögur fyrirheit hættir gamli að mæta í póker og á kvikmyndakvöldin. ,,Electric Barbarella”, eins og konan vill kalla sig, kallar sko ekki allt ömmu sína.

Birth of a child: Fire með Jimi Hendrix. Klárlega ofvirkt barn.

Final Battle: Popeye Theme – Me First & the Gimme Gimmes. Rokk og ról, hamar og hól. Svo virðist sem lokabaráttan verði við lúxuslifnaðarhætti nútímans. McDonalds og KFC víkja fyrir spínati og öðru grænu í öll mál. Sá gamli verður helsti talsmaður grænmetisæta á Íslandi og fær landann til að finna til samkenndar með öllum fisknum sem er slátrað á hverju ári. Í kjölfar algilds veiðibanns á allar lifandi verur, sem sá gamli knýr í gegn, er íslenska þjóðarbúið lýst gjaldþrota. zyuganov(13701)Rússar kaupa síðar þrotabúið og nota landspilduna sem fangelsi, eins og Gennady Zyuganov lagði til forðum daga.

Deathscene: Saturday Night’s Alright með Anastacia og Elton John (ef einhver heldur að ég hafi handvalið lögin, þá ætti þetta lag að sýna, svo ekki verði um villst, að ég gerði ekkert slíkt). En já, kallinn kveður allavegana með stæl. Og það á laugardegi… örugglega yfir enska boltanum.

barks5Funeral Song: Du Hast með Rammstein. Botnlausar óvinsældir birtast greinilega í afar óhúmanískri jarðarför minni. Kórinn syngur af krafti, en verst er þegar presturinn og söfnuðurinn taka undir í viðlaginu. Ekkjan og börnin klappa í takt og hlæja dátt (sá hlær best sem síðast hlær: ég var auðvitað vitavonlaus í peningamálum og löngu orðin gjaldþrota, svo arfurinn er enginn).

End Credit: Sweet Home Alabama með Creedence Clearwater Revival. Já, heldur hressileg rússíbanareið. Allir fara hressir og hlæjandi heim og hugsa um hinn mikla og mæta mann sem myndin fjallar um. Þvílík gleði, þvílík ánægja.

The End.

Miðað við ótrúlega mikið magn af lögum með Pink Floyd og Led Zeppelin á iPodnum undra ég mig á því að ekkert slíkt skyldi poppa upp. En svona er það nú bara. Var annars að hlusta á FM957 áðan í góðu flippi. Chris Cornell var að ljúka lagi þegar einhver snillingurinn tekur til máls. Lofar Casino Royal í bak og fyrir og mælir með henni. Bætir svo við, án gríns(!), ,,já, Casino Royal er miklu betri en hinar tvær Bond-myndirnar!

Sem er fyndið.

Superstar

9.720 og hananú!

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar