Efnisflokkur: Vinir og fjölskylda

Guf.fi syrgð.ur

Maðurinn sem veitti mér hvað mestan andlegan stuðning við endurkomu mína í bloggheima hefur sjálfur ákveðið að hverfa á brott af öldum internetsins. Um leið og ég skora á alla velmeinandi menn að stoppa við á síðunni hans (eða mæta heim til hans) og mótmæla þessu mikla óréttlæti, vil ég jafnframt skora á Gæsina (eins og ég hef kallað hann lengi lengi leeeengi) að halda áfram að ausa úr viskubrunni sínum með athugasemdaskrifum – þá sérstaklega á þessa síðu.

Neyðarkall úr Breiðholtinu

Símtal móttekið kl. 12.56:

[...]

Viðmælandi: ,,Svo hef ég verið að reyna að setja ryksugupoka í ryksuguna og það bara gengur ekki neitt!”

Aggi: ,,Núnú, ég get nú kíkt á það”

V: ,,Já, þú verður bara að gera það  – ég er búinn að sitja yfir þessu í tvo tíma og það gengur ekkert”.

A: ,,Hvern….”

V: ,,Og ekki nóg með það. Heldurðu að það sé ekki kónguló úti á svölum, fyrir utan gluggann”

A: ,,Nú já.”

V: ,,Já, hún er búin að spinna vef yfir allan gluggann. Þú verður að blása á hana eða eitthvað”

[...]

Símtali slitið kl. 12.57.

Ég er semsagt á leiðinni upp í Breiðholt STRAX eftir vinnu.

Gera eitthvað á laugardaginn?

Gott laugardagskvöld?Ég er ekki frá því að hjálögð myndskilaboð, sem ég fékk send frá söngelskandi pilti úr Hlíðunum, séu með  þeim betri sem ég hef fengið send í símann minn!

Megaflott fólk

Ritstjórnin

Ritstjórn Vefritsins er megaflott í Fréttablaðinu í dag!

Magnaður fagnaður

BjarniJáhá – sendi til gamans mynd sem ég tók af Bjarna frænda mínum í ferðinni austur í ljósmyndakeppni með þemað ,,krakkar” á ljosmyndakeppni.is. Viti menn, ég krækti í 9. sæti af 54 þátttakendum!

Vindar fortíðar

Það voru nú nokkrar flugar slegnar í einu höggi í ferðinni austur á land, já heldur betur. Heimsótti fyrsta heimili beggja foreldra minna og myndaði í bak og fyrir.

ViðborðForeldrar pabba fluttu á Viðborð í Austur-Skaftafellssýslu í kringum 1930, að því er ég best veit. Húsið byggðu þau og bjuggu í því til ca. 1940, en pabbi gamli fæddist 1938. Húsið hefur nokkurn veginn staðið autt síðan þá og ætti ekki að fara framhjá neinum sem keyrir hringveginn. Útsýnið frá bæjardyrunum út Hornafjörðinn er alveg magnað.

|

BrautarholtForeldrar múttu áttu heima á Strandgötu 23 á Eskifirði, sem hét Brautarholt áður en farið var að gefa götum sérstök nöfn. Mamma átti heima þarna fyrstu 23 árin. Merkilegt nokk þá þekkti húsfreyjan mömmu þegar ég var að mynda húsið og bauð okkur inn… get ekki sagt annað en að það hafi verið gaman að sjá gamla herbergið þeirrar gömlu!

|

BakkiMyndin hérna til hliðar er svo af Bakka á Eskifirði, en báðar ömmur mömmu og annar afinn áttu saman heima í þessu litla húsi. Guðjón og Halldóra, foreldrar mömmu, áttu semsagt bæði heima þarna þegar þau voru yngri og er það varla djarft að álykta sem svo að það hafi haft mikið um það að segja að þau giftust síðar meir… gaman að þessu.

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar